Vikan


Vikan - 24.04.1986, Page 26

Vikan - 24.04.1986, Page 26
„ Jájá. Mér dettur í hug Oddur Björnsson. Og Svava. En hún er nú vel að merkja ekki prestsson- ur... “ Djúpstæðar, sálrænar ástæð- ur? „ Ja, ég held að þetta sé bara mjög eðlilegt. Þegar maður er ómálga barn og alvitlaus sér maður föður sinn performera einhverjar undarlegar seremóní- ur, hann er klæddur grímuballs- fötum og það er spenna í loftinu. Þessi kristnu ritúöl - hvort sem um er að ræða skírn, giftingu eða jarðarför - hafa öll til að bera einhverja magnaða spennu sem svipar mikið til spennu leiksviðs- ins. Þetta er mjög víðtækt og djúptækt sjónarspil þannig að samkvæmt banal-Freudisma þá blasa ástæðurnar við!“ Sigurður hló, hvellum hlátri. Svo stóð hann á fætur og fór að ganga um gólf. „Jújú,“ hélt hann áfram, „ég er fæddur einhvem tíma og svo kom ég hingað til Reykjavíkur þegar ég var þrettán ára og fór í landspróf og síðan í mennta- skóla og þaðan til Frakklands þar sem ég lærði fyrst frönsku í einn vetur og svo leikhúsfræði í fjögur ár og svo kom ég heim og var viðloðandi Leiklistarskólann auk þess að skrifa og síðan fór ég út aftur og lauk magisters- prófi og meira að segja hálfu doktorsprófi sem fjallar aðallega um ýmis vandamál nútímaleik- ritunar með hliðsjón af frönskum höfundi sem heitir Michel Vina- ver og jafnframt lauk ég prófi í kvikmyndaleikstjórn og hér heima hef ég verið frá 82. Þetta er nú ferillinn í stuttu máli!“ Jips! En skriftirnar og þetta dót... „ Já, það liggur við að ég muni varla eftir mér öðruvísi en skrif- andi. Ég varð fljótt bæði læs og skrifandi - eða skrifandi og læs - og ég á til dæmis ennþá dag- bækur sem ég hélt á hverjum degi frá því ég var fimm ára og til svona tólf ára aldurs. Nú, maðurskrifaði aðallega skáld- sögur á þessum árum,“ glottandi, „en um tólf þrettán ára aldur lagðist ég í eitthvert stefnuleysi eins og algengt er á þeim aldri og vissi ekkert hvað ég ætti að taka mér fyrir hendur. Þegar ég fór aftur að skrifa í MR var það allt í ljóðformi og ég hef einhvern veginn aldrei náð sambandi við prósann aftur, ekki enn sem komið er að minnsta kosti og hef þó gert fáeinar tilraunir í þá átt. Það eru ljóðin sem henta mér best - og svo leikritunin, sem á náttúrlega meira skylt við ljóð en prósa ef út í það er farið.“ Stones-aðdáendur voru hengdir upp ásnaga egar Sigurður lagði skáldsagnaritun á hill- una snemma á gelgju- skeiðinu voru nýir tímar í veröldinni. Bítlarnir höfðu slegið í gegn og á hæla þeirra - The Rolling Stones. Þessum tímum er lýst bráðskemmtilega í nýjasta leik- riti Sigurðar, Húsið á hæðinni eða hring eftir hring, sem hann samdi sérstaklega fyrir Herra- nótt MR nú í vetur. Eitt fyndn- asta atriði þess ágæta leikrits var þegar ungpiltur einn er nýkom- inn af Stóra-Bretlandi með nýjar og æsandi rokkplötur og hringir í vini sína. Atriðið er endurtekið fjórum sinnum - orðrétt: „Hey, komdu yfir, maður-já, ég er kominn, maður- algert { æði, maður - ég er með tryllings- { legar plötur með mér - nú skal gamli Dúalinn fá að sýna hvað’- ann getur - komdu yfir!“ „Þetta er tekið svo til orðrétt eftir einum félaga mínum frá þessum árum, manni sem nú er helstil virðulegur lögfræðingur hér í bæ. Ég kom auðvitað yfir eins og skot og við læstum okkur inni í herberginu hans og gamli Dúalinn fékk að sýna hvað hann gat. Platan var Around and Around með Stóns og við hækk- uðum alltaf meira og meira þangað til Mikjáll og félagar endurómuðu um alla blokkina, nágrönnunum til mikils ama. Mamma þessa verðandi lögfræð- ings var sífellt að koma og banka varlega á dyrnar og biðja okkur um að lækka en við hækkuðum bara meira og fíluðum þetta al- veg í botn. Á meðan sat pabbi hans frammi í stofu og las Tím- ann hinn rólegasti - hann var nefnilega ekki bara framsóknar- maður heldur líka ansi heyrn- arsljór. Þessi ágæta skemmtun okkar endaði þegar einn ná- granninn lagði það á sig að klifra upp á svalirnar og brjótast þaðan til mngöngu til okkar.“ þessum árum voru mikl- ar væringar með að- dáendum Bítlanna og Stóns og Sigurður sagði að hann hefði iðulega mátt þola það að vera hengdur upp á snaga í Hagaskólanum eins og hver önn- ur úlpa fyrir dálæti sitt á Stóns. Það er líka greinilega stutt niður í gamla Stónsfríkið þrátt fyrir snyrtilegt yfirbragð Frankófíls- ins - Sigurður sagði mér frá því allshugar glaður að nýja Stóns- platan væri til stakrar prýði og mikillar fyrirmyndar: „Þetta er svona Exile On Main Street-fíl- ingur,“ sagði hann og þá vita allir Stónsaðdáendur hvað við er átt. Keith Richards í fínu formi. „Ég sá þá einu sinni,“ hélt Sig- urður áfram, „það var 82, minnir mig, á risastórum íþróttaleik- vangi í París og þeir ollu mér engum vonbrigðum. Gamla Stónsfríkinu hlýnaði um hjarta- rætur þegar þeir tóku öll gömlu lögin. Keith var bókstaflega að springa af heilbrigði - þeir höfðu reynt að mála á hann einhverjar heróínrúnir en þegar maður komst nálægt sviðinu sá maður að það var bara eins og hver önnur blekking. Svo varð ég þeirrar ánægju aðnjótandi að þegar ég skrapp á krá um k völd- ið, krá sem er fjölsótt af alls konar listamönnum, blaðamönn- um og svoleiðis fólki, þá mætti Keith þar á svæðið með vinum sínum og settist á næsta borð við mig. Þjónarnirlétu vitaskuld eins og þjóðhöfðingi væri kom- inn í heimsókn og komu og sprengdu kampavínsflöskur í gríð og erg og svo sat Keith þarna og þjóraði ósleitilega lengi nætur og var í hinu besta skapi. Hann var meira að segja svo vin- samlegur að skrifa stutta kveðju handa gömlu Stónsfríki sem sat á næsta borði og það þótti mér vænt um. Ég vildi náttúrlega ekkert vera að trufla hann sjálf- ur - hann var þarna með vinum sínum - en það vildi svo vel til að þjónninn, sem f'ærði mér drykkina, var líka Stónsfrík og tók að sér með ánægju að fá gamla manninn til að skrifa nafnið sitt á pappírsblað fyrir mig. Svo bætti hann við „With Love“, eða einhverju álíka huggulegu. Aftur á móti hefur mér enn ekki tekist að rekast á Mikka sjálfan á Polly Magoo.. 68-kynslóðin álíka skrautleg og símaskráin Eftir þennan útúrdúr um rokktónlist fórum við aft- ur að tala um skáldskap og einkum og sér í lagi skáldskap í MR. „Jájá, ég var mennta- skólaskáld - að vísu ekki einn af sextán heldur einn af tólf. Það varð eins konar sprenging í listalífi MR á árunum 64,65 - furðuleg sprenging. Ég held til dæmis að enginn hafi ennþá bent á þá sögulegu staðreynd að ís- lenska kvikmyndavorið - sem að vísu leið hjá og nú er komið haust en úr því árstíðirnar virð- ast líða svona hratt treysti ég á að það fari að vora von bráðar aftur - en sem sé, að íslenska kvikmyndavorið var búið til af fólki sem stóð að Kvikmynda- klúbbi MR á árunum 64 til 67. Þetta fólk kom sér í samband við danska Cinematekið - sem er það næstbesta í heimi og einmitt í miklum tengslum við það besta, sem er í Frakklandi - og gerði þá einföldu uppgötvun að það gat fengið lánaðar þaðan myndir sem kennslugögn án þess að borga tolla eða svoleiðis. Það voru sýn- ingar tvisvar þrisvar í viku og af því danska Cinematekið átti hér um bil allt var hægt að horfa þar á alla kvikmyndaklassíkina eins og hún lagði sig. I stjórn þessa klúbbs eða í kringum hana voru Ágúst Guðmundsson, Hrafn Gunnlaugsson, Kristín Jóhann- esdóttir, Þorsteinn Jónsson, Þráinn Bertelsson - og svo fram- vegis. Allt þetta lið fékk þarna gífurlega þjálfun, því það er álíka mikið út í hött að kvikmynda- leikstjóri geti gert góða mynd án þess að þekkja kvikmyndasög- una eins og að rithöfundur, sem aldrei hefur lesið neitt, geti skrif- að almennilegt verk. Svona var þetta á öllum sviðum í MR á þessum árum - það er miklu nær að líkja þessu við spreng- ingu en einhvers konar þróun. Aktevítetið var allsráðandi. Auðvitað hafði alltaf verið áhugi á listum í skólanum en í árgöngunum á undan okkur hafði verið áber- andi svona gáfumannagengi sem hafði megnustu andúð á athöfn- um - ég tala nú ekki um ef í því fólst að dreifa listinni til hins óvitandi pöpuls. Það voru hins vegar okkar ær og kýr. Við gáf- um til dæmis út Menntaskólaljóð árið 1965 eða 66 og ritstjórar voru, í stafrófsröð að sjálfsögðu, Hrafn Gunnlaugsson, Ingólfur Margeirsson, ég og Vilmundur Gylfason. Við vorum tólf póet í skólanum og svo ætluðum við að 26 VIKAN 17. TBL

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.