Vikan


Vikan - 24.04.1986, Page 27

Vikan - 24.04.1986, Page 27
velja tólf gömul skáld - eitt á svona fimm ára fresti. Við vorum samt ekki nógu ánægðir með það, fannst vanta einhvern stíl yfir þetta, og þegar við ætluðum að taka viðtal við Tómas Guð- mundsson benti hann bara á samtalsbók sína og Matthíasar Johannessen svo ekkert kom út út því. Þá stakk einhver upp á því sem brandara að tala við Halldór Laxness og fá hann til að skrifa formála og það er til marks um aesinginn í okkur og framkvæmdagleðina að við hent- um þetta strax á lofti og töluðum undireins við Halldór. Hann varð svo hissa að hann sagði bara já og þegar við höfðum fengið Hannes Pétursson til að skrifa eftirmála þóttumst við harla góð- ir og gáfum þetta út í stóru upplagi, 1500 eða 2000 eintökum, minnir mig. Og vitaskuld rann bókin út eins og heitar lummur. Þetta var allt í þessum dúr - ein- hver athafnaorgía." Og svo var það Tómas Jónsson Metsölubók. „Já, Tommi var hreinasta himnasending fyrir okkur sem vorum að fást við ritlist. Það er skrýtið hvernig hlutirnir gerast - það er svo oft eins og menn fari að fást við svipaða hluti hver í sínu horni og án þess að vita hver af öðrum. Fáeinum árum á undan okkur í skólanum voru þeir Þórarinn Eldjárn og Ólafur Torfason og þeir voru farnir að fást við ýmislegt sem var í raun og veru furðulega líkt Tómasi Jónssyni. Svo kom Tommi og var eins og staðfesting á öllu því sem við vildum sagt hafa; þessi bók Guðbergs varð okkar bókmenntalega ritning og allt að því heilög.“ Parísarbúar, þessar elskur! igurðurhnyklaði brúnir. „Þetta var ansi ótrúlegur tími og geysileg gróska - það voru haldnar mál- verkasýningar í Casa Nova og ég veit ekki hvað og hvað. Svo upp úr 68 til 70 kom önnur bylgja sem var fremur tengd þjóðfélagsmálum, eða pólitík eins og það heitir, en þá var ég farinn úr skólanum og varð lítið var við hana. Alltso: Þá hafði ég líka öðlast mína fyrstu pólitísku reynslu og hana heldur óvenjulega - í París í maí 68.“ Drottinn minn! Þú hefur þó ekki verið í París í maí 68?! „ Jújú. Ég varð nefnilega stúd- ent 67 þó ég væri fæddur 48 - skólagangan var svolítið óreglu- leg á tímabili, ég hef til dæmis aldrei lokið unglingaprófi ef út í það er farið, og ég endaði ári á undan í skóla. Það stóð bara þannig á spori og þess vegna var ég búinn að vera úti í París í heilan vetur að læra frönsku þeg- ar maí-uppreisnin braust út.“ Og hvernig upplifðir þú maí 68? „Mai 68,“ svaraði Sigurður var- lega, „var miklu nær því að vera draumur en veruleiki. Ég er ekki einn um það að hafa upplifað at- burði þannig - mér sýnist það vera reglan fremur en undantekningin. Þetta var svo óvenjulegt og óvænt að slagorð eins og „Færum út landamæri hins mögulega!" voru ekki bara innantómt raus heldur var þeim hrint i framkvæmd! Andi maí 68 var einhvers konar ljóðrænt stjórnleysi - þetta var alger tján- ingarsprenging og auðvitað dálítið unglingsleg á stundum; það var mikið um vígorð gegn boðum og bönnum og hvers konar valdi og það má heldur ekki gleyma því hversu rosalega staðnað franskt skólakerfi var á þessum árum. Svo varð þetta náttúrlega þjóðfélags- mál þegar verkalýðsfélögin lýstu yfir stuðningi við stúdentana og fóru í allsherjarverkfall, en mér fannst það mjög merkilegt þegar einhver félagsfræðingur tók sig til og taldi höfunda þeirra tilvitnana sem málaðar voru á veggi Latínu- hverfisins í maí. Sá sem átti metið var hvorki Lenín né Marx heldur André Breton, súrrealistapáfinn. Marx var auðvitað víða og einkum þó Maó enda hafði þá nýlega verið hrint af stað stórfurðulegri bylt- ingu í Kína - það var áreiðanlega í fyrsta sinn í sögunni sem stjórn- völd hafa hvatt lýðinn „to bombard the headquarters"! Menningar- byltingin endaði, eins og við vitum, í andstyggilegum terror en á þess- um tíma vissu menn lítið um það og þetta var óvenjulegt og spenn- andi. Hugmyndin að maí 68 var svo „svikin“ afverkalýðsfélögunum þegar þau sömdu um verulegar kauphækkanir á gömlu nótunum og Kommúnistaflokkurinn og stjórnvöld sameinuðust um að láta þessari tilraun lokið. Það var raun- ar athyglisvert að meðal stúdent- anna, sem höfðu sig mest í frammi í maí 68, var gífurleg andstaða gegn Kommúnistaflokknum og Sovét- rikjunum - eiginlega meiri and- staða en gegn stjórnvöldunum sjálfum. Tíminn hefur líka leitt það líljós að Kommúnistaflokkurinn í | Frakklandi, með alla sína Sovét- hollustu, er orðinn eins og hver annar sérvitringaklúbbur." Svo þetta var ekki venjuleg vinstrimennska? „Nei. Ég held að ef menn reyna að tengja maí 68 þessari klassísku vinstrihreyfingu séu þeir á villigötum, að minnsta kosti ef miðað er við Frakkland. Hvert land kallar auðvitað á sinn eigin mai 68 eihs og sést best af því að þegar þessi hreyfing barst hingað til lands tveimur þremur árum síðar þá var hún á mun hefðbundnari vinstrinótum en í París. Annars ættu menn að varast að alhæfa um þetta fyrirbrigði - menn eru alltaf að reyna að sjá kynslóðirn- ar sem einlitan massa en ef það er til eitthvað sem heitir 68- kynslóðin þá held ég að hún sé álíka skrautleg og símaskráin. Þessi kynslóð á það eitt sameig- inlegt að hafa verið á tánings- aldri þegar Bítlarnir slógu í gegn og hafa svo hlotið sína þjóðfé- lagslegu eldskírn um og upp úr tvítugu - í umrótinu frá maí 68.“ Við skulum halda okkur í Par- ís. Hvað varstu að gera í maí 68? Sigurður hló. „Ég skal segja þér að ég reyni jafnan að hlýða á innra eyrað og fara eftir því sem því heyrist. Þannig vildi til að seinni partinn í apríl keypti ég mér handboltaskó, ágætis apparöt, þó ég ætlaði mér alls ekki í handbolta né heldur að fara að stunda skipulögð hlaup. Satt að segja veit ég ekki hvers vegna ég keypti þessa skó en þeir komu sér vel í maí - þá þurfti oft að spretta úr spori til að komast út úr táragasþykkn- inu! Ég var náttúrlega útlend- ingur og varð þess vegna aldrei meira en áhorfandi að þessum atburðum en maður varð alltaf að vera viðbúinn því að króast ekki inni um nætur í Latínu- hverfinu. Það brutust yfirleitt út óeirðir eftir kröfugöngu dagsins og þegar líða tók á nóttina náði lögreglan oftast yfirhöndinni og táragasið fór að súrna í augum. Þá reið á að ná góðri spyrnu á handboltaskónum! Þetta var auðvitað alveg makalaus tími,“ hélt Sigurður áfram, steinhissa á svipinn. „Ég hafði verið að læra frönsku heil- an vetur en á þessum eina mánuði þjálfaðist ég meira en allan tímann fram að því, bara á því að hlusta á endalaus ræðu- höldin og lesa graffitíið á veggj- unum og öll þau óteljandi dreifibréf sem að manni voru rétt á degi hverjum - og svo með sam- ræðum við fólk. Parísarbúar eru annálaðir þursar, sérstaklega í samskiptum sínum við útlend- inga, svo það er stundum sagt að í landinu búi tvær þjóðir: Parísarbúar og rest, en það átti svo sannarlega ekki við í maí 68. Parísarbúar - þessar elskur! - létu eins og þeir hefðu mannkær- leikann að sérgrein og voru bæði opnir og vingjarnlegir við mann. Metró gekk ekki og þá fór maður bara á puttanum milli hverfa - meðan bensín entist. I maí 68 náði ég loks þokkalegum tökum á frönsku. Og ræðurnar - svona ræður hélt ég að ekki væri hægt að halda! Þetta voru sannkallað- ir málfrelsisdagar og enn hef ég ekki heyrt í ræðumönnum sem jafnast á við stúdentana í maí 68. Ég prísa mig til dæmis sælan að hafa verið staddur í Sorbonne af einhverri tilviljun 3. maí þegar 22. mars hreyfingin með Daniel Cohn Bendit og félaga í farar- broddi mætti til leiks. Þeir voru allir jafn-brilljant! - Daniel kannski mest áberandi af því hann var raddsterkastur. 22. mars hreyfingin var annars mjög merkileg því hún var aldrei skipulögð - hún var lifandi dæmi um anarkisma í framkvæmd. Cohn Bendit og félagar rifust linnulaust við Kommúnista- flokkinn og Sovétríkin og það var einkenni hreyfingarinnar að allir voru tilbúnir að taka foryst- una. Einu sinni var Cohn Bendit og helstu samstarfsmönnum hans stungið inn og hreyfingin var aldrei sterkari! Samt var hann alveg ótrúlegur - þurfti til dæmis aldrei míkrófón, sama fyr- ir hversu stóran hóp hann var að tala. yrir aðra tilviljun var ég staddur í Odeon-leikhús- inu þegar það var tekið af stúdentum - aðgerð sem endaði því miður heldur leiðinlega því sá merki leikstjóri, Jcan- Louis Barrault, sem þar réð hús- um, var á endanum rekinn fyrir að hafa ekki farið eftir skipun menningarmálaráðuneytisins um að taka rafmagnið af húsinu - skipun sem var alveg fáránleg og stórhættuleg. Það var reyndar mjög algengt að alls konar bygg- ingar væru teknar herskildi eða okkúperaðar. Það ríkti eiginlega okkúperingaæði í Frakklandi - það var aðalmálið að setjast að í skólum, verksmiðjum og öðrum álíka lókölum, og á hverjum morgni heyrði maður í morgun- útvarpinu samviskusamlegar fréttir af því hvaða byggingar höfðu verið okkúperaðar daginn áður og um nóttina. Þetta gekk svo langt að einu sinni okkúper- aði einhver tólf ára bekkur skólabílinn sinn og neitaði að fara út! Kennararnir voru læstir 17. TBL VIKAN 27

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.