Vikan


Vikan - 24.04.1986, Page 33

Vikan - 24.04.1986, Page 33
f Flest innbyrðum við töluvert magn lyfja um ævina án þess að gera okkur nokkra grein fyrir hvað við látum ofan í okkur. Við treystum bara læknavísind- unum í blindni. Það er í sjálfu sér ágætt en þó gildir sama um lyfjamál og önnur mál að örlítil innsýn skaðar ekki. Hér er ekki á borð borin lærð grein um innviði lyfjafræðinnar heldur viðtal við Hjörleif Þórarinsson lyfjafræðing og ýmsir fróðleiksmolar um lyfjamál hérlendis. Lyfjafræði á rætur að rekja til grasalækninga svo það eru engar grund- vallarandstæður milli lyflækninga og náttúru- lækninga. Öfgamenn deila þó jafnan um þessi mál, sumir telja að lækna megi næstum allt með lyfjagjöf og meina að heilsulækningadótið allt megi fella undir hverja aðra fjárplógsstarfsemi. Aðrir telja lyfjaneyslu landsmanna til megnustu óþurftar, fólki kæmi betur að borða hollari mat og nýta sér árþúsunda þekkingu þeirra náttúrulækningafræða sem enn lifa góðu lífi og njóta nú víða vaxandi fylgis. Hjörleifur Þórarinsson, lyfja- fræðingur hjá Laugavegsapó- teki, telur þetta tvennt vel geta farið saman enda sé engin grundvallarmótsögn þar á milli. „Mjög mörg ný lyf, sem hafa uppgötvast, eru úr náttúrunni, það er að segja menn fá hug- myndina úr náttúrunni og frá náttúrulækningum en í nútíma- lyfjagerð eru virku efnin, sem hafa áhrif, einangruð úr plönt- unum. Á þann hátt er hægt að stjórna lyfjagjöfinni nákvæm- lega sem er grundvallaratriði því of lítill lyfjaskammtur getur verið gagnslaus en of stór skammtur skaðlegur ef um mjög virkt efni er að ræða.“ GRASAKERLINGAR OG LYF- LÆKNINGAR „Svona sem dæmi um það dettur mér í hug saga af enskum lækni sem var uppi á átjándu öld. Hann frétti af grasakerl- ingu sem bjó til ansi góðan drykk við hjartveiki og fór til kerlingar og fékk uppskriftina hjá henni. í drykkinn notaði kerlingin um tuttugu plöntur en læknirinn vinsaði úr þær plöntur sem hann fann út að höfðu ekkert að segja. Loks fann hann plöntuna sem virkaði á hjartveiki og bjúg og úr henni var síðar unnið mjög virkt efni sem þykir enn mjög gott hjarta- íyf. Eitt nýlegt blóðþrýstingslyf er runnið frá eitri úr snákum, sem uppgötvað var að hafði meðal annars áhrif til lækkunar á blóðþrýstingi. Þá var búið til efni, lyf, sem hefur mjög svipaða eiginleika og snákaeitrið og virkar á of háan blóðþrýsting. Það er nú komið á markað. Til er grein innan lyfjafræð- innar sem er eins konar mann- fræðileg lyfjafræði. Þeir lyfjafræðingar og efnafræðing- ar, sem hana stunda, fara og kynnast frumstæðum þjóð- flokkum og athuga hvað þeir nota til lækninga. Vitneskjan, sem þeir þannig afla, er notuð til þróunar á nýjum lyfjum. Lík- lega er meirihluti efna, sem notuð eru í lyf, búinn til á rann- sóknarstofum, en einnig eru mikið notuð háhreinsuð nátt- úruleg efni og stundum er efnafræðilegri byggingu þá breytt eða þau bætt lítillega." - Nú virðist vera togstreita milli þeirra sem hallast að nátt- úrulækningum og lyfjayfir- valda? „Mér finnst notkun náttúru- lyfja ágæt, svo langt sem hún nær, og ég sé hana sem nokkurs konar svar við hinum sterku lyfjum sem læknar vísa á. Auka- verkanir náttúrulyfja eru oftast færri en á móti kemur að lyfja- framleiðendur, sem vilja skrá- setja lyf, verða að sýna og sanna með vísindalegum aðferðum að lyfið virki á sjúkdóminn sem um ræðir. Framleiðendur náttúru- lyíja eru ekki háðir þessu skilyrði og því er verkun og samsetning þessarar fram- leiðslu oft óviss. Notkun náttúrulyfja er oftast handahófskennd, menn prófa sig áfram en ef þeim finnst eitt- hvert efni gera sér gott þá er það bara jákvætt. Trúin hefur svo mikið að segja í þessu en það á bæði við um viðurkennd lyf og náttúrulækningalyfin. Menn vita hvaða áhrif þeir eiga að finna og þá finna þeir þau í flestum tilfellum. Það er sterk tilhneiging innan læknavísind- anna að skilja á milli líkama og sálar en auðvitað skiptir samspilið þarna á milli miklu máli.“ NÝ LYF OG LYFHRIF „Uppgötvanir á nýjum lyfjum og lyfhrifum geta orðið með ýmsu móti, til dæmis getur upp- götvast fyrir tilviljun nýtt verkunarsvið hjá lyfi sem ætlað er að verka á allt annan hlut. Dæmi um þetta er þróun þvag- ræsilyfja (bjúgtaflna) út frá súlfalyfjum (sýklalyfjum). Önn- ur leið er til dæmis sú að menn hafa vitneskju um byggingu hormóns, sem verkar á ákveðin viðtæki á yfirborði frumna í líkamanum, og reyna meðal annars með hjálp tölva að hanna sameind sem ætla má að hafi æskileg áhrif á viðtækið og þar með frumuna. Það er svo í höndum lyfjafræðinga og efna- fræðinga að búa til þetta efni og fleiri skyld og finna hið eina sanna með prófunum. Svona vinna er yfirleitt framkvæmd á stórum rannsóknarstofum og innan háskóla. í tvö þrjú ár er efnið bara rannsakað í til- raunaglösum, hvort það hafi í fljótu bragði einhver óæskileg áhrif, sé krabbameinsvaldandi og fleira. Síðan er farið að gera tilraunir á dýrum, þær taka kannski tvö þrjú ár því það þarf að fylgjast vel með hvort lyfið hafi einhver óæskileg áhrif á dýr, valdi fósturskaða eða öðru slíku og hvort eiturverkanir og því um líkt komi fram vegna of stórra skammta. Loks er farið að prófa lyfið á mönnum. Það eru þá oftast lyfjafræðingar og þeir sem vinna á rannsóknar- stofum sem taka lyfið sjálfir, í misstórum skömmtum, til að athuga hvort það hafi einhver slæm áhrif á þá. Út frá því reyna menn að finna út hæfilegan skammt og þá er farið að láta lækna hafa þetta í mjög þröng- um hópi, yfirleitt lækna sem starfa með fyrirtækjunum að lyfjaþróuninni. Þeir gefa sjúkl- /þessum hillum eru ýmsarefna- blöndur sem notaöar eru til lyfjagerðar. Hjörleifur tekur til það sem hann þarf að nota I þetta sinn samkvæmt því sem óskað er eftir á lyfseðlinum. 17. TBL VI KAN 33

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.