Vikan

Útgáva

Vikan - 24.04.1986, Síða 35

Vikan - 24.04.1986, Síða 35
Notkunin á díazepam á árinu 1976 var 55,5 DDD á 1000 íbúa á dag. DDD er skammstöfun fyr- ir ensku mælieininguna Defined Daily Dose sem hér útleggst á íslensku „skilgreindur daglegur skammtur“. Á árinu 1984 var notkunin komin niður í 28,2 DDD á 1000 íbúa á dag. Þetta þýðir á einföldu máli að í stað þess að fimmtíu og fimm af hverjum þúsund Islendingum hafi daglega tekið díazepam- skammtinn sinn árið 1976 þá séu það tuttugu og átta sem gera það 1984. Fyrir þá sem hafa gaman af að velta fyrir sér tölum skal upplýst að það ár voru seld geðlyf fyrir um 86 milljónir króna. Og af 900 millj- óna heildarlyfjasölu 1984 þá er kostnaðurinn við geðlyfin því um einn tíundi hluti. Til saman- burðar má nefna að seld voru verkjalyf fyrir tæpar 18 milljón- ir það ár og eru þar meðtalin öll verkjalyf, bæði þau sem seld eru í lausasölu og þau lyfseðils- skyldu, nema þau sterkustu eins og morfín. INNLEND LYFJAFRAM- LEIÐSLA í heimsókninni í Laugavegs- apóteki fengum við að skoða vinnuaðstöðuna og spurðum Hjörleif þá um innlenda lyfja- framleiðslu. „Hérlendis eru framleidd sérlyf, lyf eftir for- skriftarbókum, gamalreyndar uppskriftir, og lyf eftir forskrift- um, það er að segja lyfseðlum lækna. Sífellt eru gerðar meiri og meiri kröfur til framleiðsl- unnar svo það er varla lengur forsvaranlegt að apótek séu að framleiða lyf nema í litlum mæli, því það er bæði mjög er- fitt og dýrt. Nú eru það aðallega fjögur lyfjaframleiðslufyrirtæki sem sjá um innlendu framleiðsl- una: Lyfjaverslun ríkisins, Delta, Stefán Thorarensen hf. og Reykjavíkurapótek sem Há- skólinn á. Það hefur verið þannig að fólk veit lítið um það sem það Hjörleifur blandar fljótandi lausn sem nota skal við útbrot- um á húð. I hana feraluminium- saltlausn sem dregur saman húðina. vatn til þynningar og bórsýrulausn sem er léttsótt- hreinsandi. er að setja ofan í sig en mér finnst það hafa breyst að undan- förnu, með þessum tveimur nýju íslensku bókum um lyf. Mér finnst sjálfsagt að fólk viti hvaða lyf það tekur og hvaða áhrif það getur haft því öll lyf hafa einhverjar aukaverkanir og það er betra að vita um þær. Við alla lyfjagjöf þurfa læknar að meta kostina og gallana en í þeim lyfjum, sem við höfiun hérlendis, eru kostirnir yfir- gnæfandi ef þau eru notuð rétt og aðeins þegar á þarf að halda. Margir hafa fordóma gagn- vart lyfjum og vilja ekki taka þau en ég tel það vera rangt viðhorf. Ef til dæmis greinist insúlínháð sykursýki hjá fólki eru það lyfin ein sem geta bjarg- að því.“ - Þegar mixtúrur eru seldar lyfseðilslaust, eru það þá ykkar einkauppskriftir? „Nei, þá eru það yfirleitt mixtúrur, til dæmis hóstamixt- úrur, sem gerðar eru eftir uppskriftum úr löggiltum for- skriftarbókum. Þær eru í rauninni eins og mat- reiðslubækur og þar má til dæmis finna norska brjóst- dropa, sem flestir kannast við, en þeir eru eins í öllum apótek- um.“ STEINOLÍA OG ULLARFEITI - En kremin sem þið búið til, hver er aðaluppistaðan í raka- kremum og hreinsikremum sem apótekin búa til sjálf? „Uppistaðan í hreinsikrem- inu, sem við búum til hér í Laugavegsapóteki, er svokölluð parafínefni sem unnin eru úr steinolíu. Parafínefnin eru föst og fljótandi og þau leysa vel upp efni sem ekki leysast upp í vatni, eins og sumar tegundir augna- háralita og fleira. Rakakrem inniheldur hins vegar mýkjandi efni, vax eða vaselín, og svoköli- uð yfirborðsvirk efni sem hafa þá eiginleika að geta bundið saman fitu og vatn, til dæmis ullarfitu eða lanolín. Vatn er um helmingurinn af rakakrem- inu því það er einmitt markmið- ið að koma raka í húðina.“ - Eru rakakrem og hreinsi- krem apótekanna jafngóð og þau sem seld eru undir dýrum snyrtivörumerkjum og kosta svona fjórum sinnum meira? „Grunnurinn var til skamms tíma sá sami og í flestum tilfell- um er verkanin sú sama en í sumum snyrtivörum eru dýr ilmefni og fleira sem skilur að. En það er svo mikið framboð og úrval af snyrtivörum að oft getur verið erfitt fyrir fólk að átta sig á hvað það á að velja og hvað það er að kaupa. Snyrti- vörur eru háðar tísku líðandi stundar og fyrir vikið er vanda- samara að ráðleggja fólki. Vöruvöndun er yfirleitt -með Við gægjumst inn í hið allra heilagasta. Þarna eru búin til dauðhreinsuð lyf og aðgangur er stranglega bannaður. öllum nema /yfjafræðingum. ágætum og það má hafa það að leiðarljósi að nóta ofnæmispróf- aðar snyrtivörur og sem eru án óæskilegra aukaefna. Snyrti- vöruframleiðsla apóteka er mjög hefðbundin og mest er um að ræða vörur sem koma að notum við húðvernd." Hjörleif- ur bætir við að lyfjabúðir geri lítið að því að kynna snyrti- vöruframleiðslu sína og lyf sé alfarið bannað að auglýsa fyrir almenningi. LEIÐIN FRÁ LYFSEÐLI f LYFJAGLAS Þessar fimmtán mínútur, sem við flest eyðum í óþolinmæðis- bið í apótekinu, eru í rauninni vel nýttar af þeim sem vinna við lyfjaafgreiðsluna því ferlið er flóknara en svo að lyfjapakkn- ing sé tekin ofan úr hillu og lyfseðillinn settur þar í staðinn. Hjörleifur segir frá: „Þegar lyfseðill er lagður inn, segjum til dæmis mixtúrulyfseðill, það er að segja forskriftarlyf læknis, þarf fyrst að reikna út allt sem í lyfið á að fara, skrifa magn og verð á seðilinn og taka svo ljós- rit af honum. Það tekur lyfja- fræðingurinn með sér þangað sem lyfin eru geymd og blönduð og þar tekur hann öll efnin til, vegur og mælir og blandar síðan lyfið samkvæmt uppskriftinni 'VílGANCUR ' inni í þar til höfðu herbergi. Hann kvittar á lyfseðilsljósritið fyrir hvert efni fyrir sig sem hann notar í lyfið og síðan er farið yfir það þannig að tvöfalt eftirlit er með öllu því sem notað er til lyfjablöndunarinnar. Þeg- ar lyfið er tilbúið ber lyfjafræð- ingurinn saman lyfseðilinn og það sem vélritað hefur verið á merkimiðann sem á að fara á mixtúruflöskuna og setur svo stafina sína á miðann til stað- festingar því að allt sé nú rétt. Þá og fyrst þá er mixtúran til- búin til afgreiðslu. Ferli venjulegs lyfseðils með skráðu sérlyfi í staðlaðri pakkn- ingu er ekki svona margbrotið. Verð lyfsins er fundið og hluti sjúklingsins reiknaður út, vél- ritaður miði límdur á pakkning- una sem lyfjafræðingur tekur til. Hann athugar að rétt sé af- greitt og setur þá upphafsstafi sína á miðann. Við afliendingu les afgreiðslumaður yfir lyfseð- ilinn og ber saman á ný.“ Þegar þessu spjalli við Hjör- leif Þórarinsson lauk var ýmislegt ljósara um starfsemi apóteka og störf lyfjafræðinga, þó öll vonumst við líklega til að þurfa að vita sem minnst af lyfjum og þeirra fylgifiskum. 17. TBL VIKAN 35

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.