Vikan - 24.04.1986, Page 50
D R A U M A R
HRINGURÍ
BANDI
Kæri draumráðandi.
Mig hefur tvisvar dreymt undar-
legan draum með stuttu millibili.
Draumurinn var á þessa leið: Mér
fannst ég vera að leita að konu
sem hét Sigríður Þorgeirsdóttir
(þekki enga konu með því nafni).
Ég kom inn í stórt hús og tók lyftu
upp á sjöundu hæð. Með mér í
lyftunni voru tíu manneskjur. Er
ég svo steig út úr lyftunni gekk
ég eftir löngum gangi sem var með
tólf dyrum á. Ég las nöfn á dyrun-
um en hvergi sá ég nafn þessarar
konu sem ég var að leita að. Komu
þá tvær konur gangandi eftir
ganginum. Ég spurði þær hvort
þær vissu hvar þessi kona væri.
Þær svöruðu neitandi en sögðu
að það væri þarna kona sem gæti
hjálpað mér. Síðan gekk önnur
konan inn um einar dyrnar og ég
á eftir. Þar inni sat kona sem ég
kannaðist við í raunveruleikanum.
Hún sat þarna á stól og prjónaði.
Hún stóð upp er hún sá mig og
heilsaði og varð mjög ánægð yfir
því að ég skyldi vera komin. Hin
konan kvaddi og ég spurði hana
að nafni. Ég heiti Sigrún, sagði
hún og hvarf út um dyrnar. Ég
sneri mér þá að hinni konunni og
fór að spyrja hana um Sigríði. Hún
vildi engu svara en fór að tala um
að maðurinn sinn væri fjarverandi
og henni leiddist og bað mig að
gista. Hún bað mig að fylgja sér
og opnaði dyr. Inni í stóru her-
bergi var rúm með Ijósum
sængurfötum og á sængurverinu
voru tvær bláar rendur og ein
græn. Hún sagði að þetta væri
herbergi mannsins síns og þarna
skyldi ég sofa. Ég spurði hana
hvar hún ætlaði að sofa. Hún opn-
aði dyr beint á móti og ég sá þar
bleikt herbergi með bleikum rúm-
fötum. Þar ætla ég að sofa, sagði
hún. Hún gekk síðan út en kom
aftur með giftingarhringinn sinn í
bandi og setti hann um hálsinn á
mér. Ég spurði hana hvað hún
væri að gera. Ég þarf ekki á honum
að halda lengur, sagði hún og
gekk út. Ég hugsaði með mér að
þarna gæti ég ekki verið, læddist
út og fór heim. Þá hringdi síminn
og þá er þetta maðurinn hennar
og spurði hvort ég væri ekki að
koma. Varð mér þá litið á höndina
á mér og var þá með giftingar-
hringinn hennar á hendinni. Ég
ætlaði að taka hann af en þá
þrengdi hann svo að fingrinum að
hann blánaði upp. Mér fannst þá
að ég yrði alltaf að vera með hring-
inn og skyndilega voru komnir
tveir bláir steinar á hann. Lengri
varð draumurinn ekki. Vona að þú
getir ráðið hann fyrir mig.
Með fyrirfram þökk.
X.
Þessi draumur er þér fyrir vegs-
auka í veraldlegum efnum og
togstreitu á tilfinningasviðinu. Þú
munt hafa sigur á báðum stöðum
en þú þarft að sækja hann fast.
Þú verður ekki laus við að velkjast
i vafa þegar þú stendur frammi
fyrir stórri ákvörðun en þú munt
sigrast á þeim Ijónum sem eru I
veginum, einnig eigin efasemdum
og ef til vill vantrausti á sjálfri
þér. Það eru allar Hkur á að þú
fáir á svolítið fölskum forsendum
þætta og/eða breytta stöðu i hjú-
‘skaparmálum, en það er ekki laust
við að þér finnist sú staða þrengja
að þér. Þú hefur sennilega á til-
finningunni að þú getir ekki ráðið
við að þreyta þessu sjálf en veist
innst inni að það er ekki rétt. Hvað
úr verður getur tíminn og þú sjálf
leitt i Ijós.
HJÓLBÖRUR
Kæri draumráðandi!
,Ég hef aldrei skrifað þér áður
svo ég vona að þú ráðir þennan
draum. Ég á heima í H. og er 1 3
ára. Sko, það er dálítið langt síðan
mig dreymdi þennan draum en ég
gleymi honum aldrei. Svo, kæri
draumráðandi, viltu ráða hann.
Ég var að fara í kaupfélagið með
mömmu minni. Ég sagði henni að
ég ætlaði út að leika mér. Ég fór
en ég sá einn mann með hjólbörur,
þau rændu mér og drusluðu mér
upp í hjólbörurnar. Svo fóru þau
með mig í Sjóváhúsið beint á móti.
Þau fór með mig niður stiga og þá
sagði ég við kallinn: Má ég fara
yfir og kaupa mér tyggjó? Já, sagði
hann. Ég talaði við mömmu en hún
trúði ekki að það væri ver-
ið að ræna mér. Svo fór ég aftur.
Svo þurfti ég að halda á fiski en
það var mamma. Hann sagði við
mig: Ekki gráta, vertu eðlileg. Þá
vaknaði ég hágrátandi.
Kæri draumráðandi, þú verður
að ráða hann. Ég hef ekki gleymt
einu orði úr draumnum svo gerðu
Bless.
R.S.
Þessi draumur gæti nú þent til
þess að þú værir svekkt á þvi að
mamma þin skilji ekki alltaf hvað
þú ert að meina, en það er nú í
framhjáhlaupi sagt. Draumurinn
er ágætur tákndraumur og það
sem mestu máli skiptir er að hann
endar vel með grátnum. Sennilega
er hann ekki kominn fram en þú
þekkir það þá ef svo er. i stórum
dráttum er hann vísbending um
að þú megir eiga von á einhverjum
leiðindum og látum útafeinhverju
sem þú vilt gera og það jafnvel
með dálitlum hamagangi. Þú ættir
ekki að vera fljót á þér, það er þér
sennilega fyrir bestu að ekki fari
eins og þú vilt. Ef þú hefur verið
að hugsa eða ert að hugsa um að
gera eitthvað sem hefur mikil áhrif
á framtíð þina er það augljóslega
ekki timabært og þótt þú verðir
mjög óhress yfir málalokum
muntu verða mjög hamingjusöm
i framtíðinni yfir þvi hvernig þessi
mál þróast.
FROSKUR í
HOLU
Kæri draumráðandi.
Ég sendi þér einn draum sem
ég vonast eftir ráðningu á. Ég var
á gangi við verslun með tveim vin-
um mínum eitt kvöldið. Einhvern
veginn vissum við að vinkona
okkar ætti hálfa milljón (gömul
kærasta min) og við ákváðum að
ná í hana og ná peningunum ein-
hvern veginn af henni. Við fórum
inn í bílinn hennar og ókum af
stað þar sem hún var. Og þegar
við vorum búnirað ná í hana ókum
við á drungalegan stað þar sem
allt var skrælþurrt og engin lauf-
blöð á trjánum. Og allt í einu stökk
vinur minn niður á fjóra fætur og
byrjaði að grafa eins og hundur.
Er hann var búinn að grafa nokkuð
niður kom hann með frosk upp
úr holunni. Skyndilega var vin-
kona okkar orðin jafnlítil og
froskurinn og froskurinn gleypti
hana. Þegar froskurinn var búinn
að gleypa hana fóru vinir mínar
að dansa og hlæja en ég var
hræðilega dapur og hryggur og
mér fannst ég allt í einu orðinn
morðingi. Svo leit ég á froskinn
og sá hann spýta út úr sér augan-
um í henni en það var jafnlítið og
augu kisu og við augað var fast
brúnt slím. Ég sá froskinn eins og
hann væri að hlæja og sá ég sams
konar brúnt slím uppi í honum.
Svo fór ég heim og fór svo á ball
í skólanum. Og enginn vildi vera
formaður félagsmiðstöðvarinnar
svo ég var kosinn það. Og ég sá
vinkonu mín aftur á ballinu. Hún
mundi ekki eftir neinu, en það var
eins og hún forðaðist að tala við
mig. Og síðan hringdi síminn og
ég svaraði og þá var komið hátal-
arakerfi svo allir heyrðu hvað ég
sagði í símann. í símanum var
stelpa sem var einu sinni með mér
í bekk og hún spurði um mig. Ég
sagði: Þetta er hann og spurði
hver þetta væri. Þá sagði hún að
þetta væri hóra. Þá vissi ég að
þetta var at og sagðist ekki mega
vera að þessu lengur og lagði á.
Þakka gott blað og vonast eftir
birtingu fljótt.
Þessi draumur tengist vinum
þínum og þeim félagsskap sem
þú ert í. Það er útlit fyrir tif og fjör
en nokkra óvissu i innbyrðis sam-
skiptum á næstunni. Það er eins
og einhverjar sviptingar gætu orð-
ið, einhver ,,gleypi“ annan i
óeiginlegri merkingu og sjálfsagt
verður þú ekki sáttur við allt sem
þarna verður um að vera. Flest þau
tákn, sem varða þig, eru jákvæð-
ari en þau sem eiga við vini þína,
þannig að þú mátt þá gera ráð
fyrir að þessi umbrot i vinahópn-
um verði þér til góðs, hvort sem
þú kannt strax að meta það eða
seinna. Yfirleitt má gera ráð fyrir
að þau tilfinningabrigði, sem þú
sýnir í draumnum, snúist rang-
hverf, það ert þú sem ert leiður,
þannig að það verður þú sem
gleðst. Þú verður fyrir ásökunum
og það þýðir að þú ættir að verða
firrtur þeim. En þegar þú kemur
illa fram merkir það líka göfug-
lyndi af þinni hálfu. Þannig er
margt öfugsnúið i draumum og
þessar upplýsingar ættu að hjálpa
þérað ráða enn frekarí drauminn.
50 VI KAN 17. TBL