Vikan

Eksemplar

Vikan - 24.04.1986, Side 53

Vikan - 24.04.1986, Side 53
Þetta voru Bonnie og Clyde. Þau fóru með ránum og morðum um bæi og sveitir Bandaríkj- anna í fáein ár í upphafi fjórða áratugarins og þó þau svifust einskis lá við að þau væru orðin nokkurs konar alþýðuhetjur þegar yfir lauk. Enda þótt sögur eins og sú sem hér var skráð að ofan hafi verið á allra vörum litu margir framhjá þeim og skötuhjúin skotglöðu hafa með tímanum öðlast ekki ósvipaða stöðu í vitund fjölda Bandaríkjamanna og herra Hrói höttur í Skírisskógi og mær hans, Marion, höfðu og hafa í vitund Englendinga - eða Gísli Súrsson og Auður í huga Islendinga; Fjalla-Eyvindur og Halla ... Hér skiptir ekki máli að sagan um það hvernig Bonnie og Clyde stóðu að morðun- um í Grapewine er ef til vill eitthvað málum blandin; flestir trúðu henni en létu sér það í léttu rúmi liggja og þegar hjúin voru loks drep- in af lögreglunni fylgdu þúsundir manna þeim til grafar og ættingjar Clydes voru næstum dottnir ofan í gröf hans er lágfleyg flugvél varp- aði geysistórum kransi inn í hóp þeirra. AFREKUÐU SJARDAN MEIRA EN AÐ RÆNA BENSINSTÖÐVAR Þau Bonnie og Clyde voru ekki beinlinis lík- leg efni í alþýðuhetjur eins og Hróa hött og Marion. Þetta voru smáglæpamenn sem sjaldan afrekuðu meira en að ræna bensínstöðvar fyrir brýnustu lífsnauðsynjum og stundum var út- legð þeirra engu bærilegri en vist Fjalla- Eyvindar uppi á öræfum. Bófar með sjálfsvirð- ingu töluðu jafnan um þau með mestu fyrirlitn- ingu; nægir að nefna John Dillinger sem á hinn bóginn var ekki alveg laus við eðlisþætti Hróa hattar. Þau urðu fræg fyrir tilgangslaus dráp og handahófskennt ofbeldi en eigi að síður var svo komið, þrjátíu árum eftir dauða þeirra, að víðkunn kvikmynd um ævi þeirra sýndi þau sem geðslegasta fólk; bráðmyndarlegt og heldur vel gefið par sem drap ekki nema í nauðvörn. Enn halda þau áfram að heilla fólk og það eru skrif- aðar um þau bækur og ritgerðir; eftirfarandi greinar um skötuhjúin eru byggðar á því alnýj- asta í Bonnie-og-Clyde-fræðum og enn hefur ýmislegt óvænt komið í ljós. Við athugun á blóði drifnum ferli þeirra má svo íhuga spurn- inguna sem farið var í kringum hér að ofan: hvers vegna verða ótíndir bófar og morðingjar að alþýðuhetjum og átrúnaðargoðum? Bonnie Parker væri sjálfsagt enn í fullu fjöri ef hún hefði ekki látið leiðast út á þjóðvegina. Hún fæddist árið 1910 í smábænum Rowena í Texas; faðir hennar var byggingaverkamaður og fjölskyldan þokkalega stæð. Bonnie var í miðju þriggja systkina; hróðir hennar, sem allt- af var kallaður Buster, var tveimur árum eldri en systirin Billie þremur árum yngri. Er Bonnie var fjögurra ára lést faðir hennar býsna skyndi- lega og ekkja hans stóð uppi með þrjú ung börn og lítil fjárráð. Hún fluttist þá til Cement City, heldur ógæfulegs úthverfis Dallas, og fékk sér vinnu meðan amma gætti barnanna. Amm- an var orðin fornfáleg og leyfði börnunum að miklu leyti að leika lausum hala - það var nokkuð sem Bonnie litla kunni vel að meta. UPPVARTAÐIÞANN SEM SIÐAR DRAP HANA Hún var afskaplega fjörugur og uppátækja- samur krakki; sumir myndu líklega segja að hún hefði verið mesti villingur. Hún var stríðin og orðljót eins og ýmsir leikfélagar hennar fengu að kenna á en jafnframt var hún ósköp sæt og kunni að koma sér vel við fólk svo hún lenti aldrei í vandræðum vegna þessa. Þá gekk henni vel í skóla og var alla tíð meðal hinna hæstu í sínum bekk. Sakleysislegt yfirbragð hennar og fínleiki var hvort tveggja annálað og á barnsaldri réðu ýmsir pólitíkusar hana til þess að vera viðstödd útifundi þeirra á þeim forsendum að þetta barn myndi draga að fólk ef mælskulist þeirra sjálfradygði ekki til. Hún virðist frá blautu barnsbeini hafa notið allrar athygli og hafa haft djúpan snert af exibisjón- isma i sér. Ekki er vitað til þess að Bonnie hafi haft mikinn áhuga á strákum fyrr en hún var fimm- tán ára gömul en þá varð hún upp úr þurru yfir sig ástfangin af skólafélaga sínum að nafni Roy Thornton. Af dæmigerðri tilgerð lét hún tattóvera nafn hans á læri sér og ári síðar gift- ust þau, þrátt fyrir ákafa andstöðu móður hennar. Giftingin breytti þvi ekki að Bonnie hélt sem fyrr mjög góðu sambandi við móður sína og voru þau Roy oft meira hjá henni en í sínum eigin híbýlum. Hjónabandið varð ekki farsælt - Roy Thornton tók íljótlega upp á því að hverfa út í buskann dögum saman og gaf engar skýringar á fjarveru sinni. Síðla árs 1927 fór hann til að mynda í burtu og sneri ekki aftur fyrr en eftir rúmt ár. Bonnie var í fyrstu óhuggandi en reyndi svo að standa á eigin fót- um og fékk sér vinnu við afgreiðslustörf á kaffihúsi í miðborg Dallas. Hún varð afar vin- sæl meðal gestanna enda var hún lífleg og hress og meira en til í að borga viðurgjörninginn úr eigin vasa ef illa stóð á hjá kúnnunum. Einn gestanna var maður að nafni Ted Hinton og hreifst hann af henni eins og aðrir. Hann minnt- ist þess síðar að hún hefði sagt sér að hana langaði til þess að verða söngkona, leikkona eða jafnvel ljóðskáld. Nokkrum árum síðar var Ted Hinton einn þeirra lögreglumanna sem stóðu á eyðilegum þjóðvegi í Louisiana og dældu vélbyssukúlum inn í bíl Bonnie og Cly- des. JESSE JAMES OG COLE YOUNGER VORU HETJUR CLYDES Þegar eiginmaðurinn birtist aftur tók Bonnie honum í fyrstu vel .en aðskilnaður þeirra hafði verið of langur og brátt rak hún hann á dyr. Skömmu seinna var hann handtekinn fyrir vopnað rán og dæmdur í fimm ára fangelsi og raunar hafði hann lengi verið lögbrjótur þó lít- ið bæri á. Bonnie kenndi í brjósti um hann en kippti sér að öðru leyti ekki mikið upp við þess- ar upplýsingar; í Cement City hélt nefnilega til alls konar vafasamur lýður og Bonnie hafði vanist því að líta á rán og gripdeildir sem harla eðlilegan hlut. Bonnie hætti að vinna á kaffihúsinu þegar kreppan mikla skall á og um hríð hafðist hún lítið að nema að fara í bíó og heimsækja kunn- ingja sína. I einni slíkri heimsókn í janúar 1930 hitti hún ungan og grannvaxinn mann með útstæð eyru og prakkarasvip á andlitinu. Hún virðist hafa orðið ástfangin af honum eins og skot því þegar Emma Parker, móðir hennar, sá þau saman nokkrum dögum síðar þóttist hún strax vita að eitthvað meiri háttar væri á seyði. Ungi maðurinn var vitaskuld Clyde Barrow. Clyde var einu ári eldri en Bonnie og kominn af fátæku fólki. Faðir hans var bóndi nálægt smábænum Telico ekki fjarri Dallas og varð að puða myrkranna á milli. Það dugði þó vart til þess að fjölskyldan hefði í sig og á og Clyde ólst upp við skort bæði á efnalegum gæðum og athygli. Hann var sjötti í röðinni af átta systk- inum og var einkum í umsjá systur sinnar, Nell, sem var fimm árum eldri en hann. Hún dáði hann takmarkalaust en virðist vart hafa verið fær um að annast hann: tvívegis var hann nærri dauður af hennar völdum. Hann var líka ævintýragjarn krakki og sögurnar um bófa- flokkana, sem fóru um villta vestrið áður fyrr, höfðuðu sterkt til hans. Þar höfðu verið fremst- ir í flokki þeir Cole Younger og Jesse James og hafa ber í huga að þegar Clyde var að alast upp voru þeir ekki neinar þjóðsagnaverur aftan úr grárri forneskju - The Cole Younger-Frank James Wild West Show fór enn um sveitir Tex- as og síðasti útlaginn af gamla skólanum, Henry Starr, var ekki drepinn fyrr en 1921 er hann freistaði þess að ræna banka í Arkansas. Þessir bófar urðu hetjur Clydes í æsku og í leikjum sínum heimtaði hann jafnan að fá að vera Jesse James. KLAUFSK BYRJUN Á GLÆPAFERLI Ólíkt Bonnie var Clyde enginn námsmaður; honum gekk illa i flestum fögum og svo sem ekki ýtt undir áhugann heima hjá honum: fað- ir hans var til dæmis bæði ólæs og óskrifandi. Hann skrópaði því oft og komst í vandræði af þeim sökum. Enn meiri urðu vandræði hans þó þegar nágrannar Barrow-hjónanna kvört- uðu undan þeirri ástríðu hans að kvelja dýr. Honum þótti það til að mynda ágæt skemmtun að vængbrjóta fugla og fylgjast svo með van- máttugum tilraunum þeirra til að hefja sig til flugs - einnig dundaði hann við að snúa til hálfs upp á háls kjúklinga og njóta síðan lang- vinnra kvala þeirra. Þegar Clyde var tólf ára gafst faðir hans upp á búskapnum og fluttist á mölina í Dallas. Fjár- hagurinn leyfði engan munað og fjölskyldan settist að í einu versta hverfinu, West Dallas, þar sem þjófar og hvers konar krimmar héldu mikið til. Þetta var umhverfi að skapi Clydes Barrow og hann lenti fljótlega í heldur óvönd- uðum félagsskap. Sextán ára gamall hætti hann í skóla og fékk sér vinnu við að sendast fyrir járnbrautarfyrirtækið Western Union. Sendl- arnir hjá Western Union voru oft heldur óprúðir piltar. Ted Hiiiton, sem áður var nefnd- ur, starfaði við þetta um tíma og af samtíma- mönnum hans í starfi enduðu tólf í fangelsi og fjórir í rafmagnsstólnum. Hinton kannaðist líka við Clyde og líkaði allvel við hann. Clyde hélst ekki lengi við í fastri vinnu en virðist hafa farið að dufla við smáglæpi fyrir tvítugsaldur. Hann uppgötvaði ást sína á bílum um þetta leyti og nokkru síðar varð hann í fyrsta sinn ástfanginn af stúlku. Sú hét Anne og var af mun „betra“ fólki komin en Clyde Barrow. Sambandið varð ekki langt: stúlkunni og foreldrum hennar blöskraði gróflyndið í Clyde - þó hann gæti verið hvers manns hug- ljúfi þegar svo bar undir- og þau fengu nasasjón af fyrstu sporum hans á glæpabraut- inni. Þau spor voru raunar ekki burðug - Clyde virðist hafa verið klaufskur, taugaóstyrkur og fljótfær um þetta leyti og einkenndi það hann raunar allt til dánardægurs. Hann vildi þó ekki snúa af villu síns vegar og var afundinn og hranalegur þegar háttsettur lögreglufulltrúi í Dallas kallaði hann til sín og bað hann að láta 17. TBL VIKAN 53

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.