Vikan - 30.10.1986, Qupperneq 20
VIKAN
E L D H Ú S
Ofiibökuð ýsa í sveppasósu
Gestur í Viku-eldhúsínu er Jóhanna Ingimarsdóttir
150 g nýir sveppir, niðursneiddir
ostur, rifinn
_ Paprikan og sveppirnir steiktir í smjörinu.
Ýsubitunum raðað á botninn á eldföstu
fonni, smávegis af súpunni er smurt yfir og
síðan er papriku og sveppum dreift yfir. Þá
er því sem eftir er af súpunni hellt yfir og
að lokum er rifinn ostur settur ofan á fisk-
inn. Bakað við 200° C í 20 mínútur.
Mjög gott er að borða kartöflumús með
réttinum, ásamt hrásalati, blönduðu eftir
smekk.
„Hjá mér borðuðu nokkur „tilraunadýr"
og þau voru öll sammála um að þetta væri
góður fiskréttur," sagði Jóhanna Ingimars-
dóttir sem býr í Hamraborg í Kópavoginum.
Jóhanna vinnur á veitingastaðnum Sprengi-
sandi þar sem hamborgarar eru vinsælasti
rétturinn þannig að varla á uppskriftin rætur
að rekja þangað.
„Við erum bara tvö, ég og maðurinn
minn, Marinó Birgisson, og þetta er uppá-
haldsmánudagsrétturinn hans,“ segir gesta-
kokkur Vikunnar að þessu sinni og hér er
uppskriftin, ætluð 4-5 manns:
750 g ýsuflök, roðflett og skorin í bita
1 dós sveppasúpa, Campbell
2-3 msk. smjör
1 stk. paprika, söxuð
Umsjón:
Bryndís Kristjánsdóttir
20 VI KAN 44. TBL