Vikan - 12.02.1987, Blaðsíða 5
d. Setustofu.
e. Þú lætur það óhreyft.
Líttu nú á töfluna og teldu saman X merkin
og Y merkin sem koma heim og saman við
svör þín. X-in tilheyra kvenlegum eðlisþáttum
en Y-in karlmannlegu eðlisþáttunum. Þar sem
tvö X eða tvö Y koma fyrir þýðir það að sá
eðlisþáttur sé mjög sterkur í viðkomandi
svari. En í öðrum er kynferðið hlutlaust. Bók-
... eða þessum
Jafnmörg X og Y, karlmannlegir og kvenlegir
eiginleikar í jafnvægi:
Þú ert kona en þrátt fyrir það gætir þú allt
eins verið karlmaður. Gott jafnvægi. Karl-
mennskueinkenni þín gera það að verkum að
þér ætti að ganga vel í tækniþjóðfélagi nútím-
ans. Kvenlegir eiginleikar þínir gera það að
verkum að þú átt gott með að umgangast
annað fólk. Það er einungis ein hætta: full-
komnun er leiðinleg. Hvernig væri að gefa
Hvað um þennan.
stafirnir A F koma upp um hvers
mann þú hefur að geyma.
Þremur fleiri Y svör en X svör:
Þú myndir kunna vel við þig í hlutverki kari-
mannsins. Kannski hefur móðir þin alið þig
upp eins og strákinn sem hún eignaðist aldr-
ei. Ef til vill er sagt um þig að þú sért full af
krafti, vilja og hugrekki. En vertu varkár,
árásargirnin gæti gengið út í öfgar. Það getur
verið ágætt að þróa upp svokallaða karl-
mennskuþætti en þú mátt ekki gleyma því að
innsæi, viðkvæmni og blíðar tilfinningar eru
að mörgu leyti undirstaða mannlegs lífs.
ímyndunaraflinu og skopskyninu svolítið
lausari tauminn við og við?
Þremur fleiri X svör en Y svör:
Þú ert kona sem ferð ekki í grafgötur um
kvenlegan yndisþokka þinn og notar hann
sem vopn hvenær sem þú kemur því við.
Ágætt, en þú ættir aldrei að gleyma því að
jörðin heldur áfram að snúast þrátt fyrir það.
Eiginleikar eins og einbeitni og áræðni í þjóð-
félagi dagsins í dag skaða engan. En það
gæti verið nauðsynlegt fyrir þig til þess að ná
lengra að þú sýndir meiri dirfsku í mannlegum
samskiptum, án þess þó að þú hættir að sýna
þínar betri hliðar.
Þessu næst átt þú að athuga við hvaða staf
frá A - F þú krossar oftast. Það er líka hægt
að skoða hvers konar karlmannlega eiginleika
þú hefur að geyma út frá litum. Teldu saman
stigin og athugaðu í hvaða flokk þú fellur.
A - gulur: Hlutlausa persónan:
Þú fellur i flokk með hinum þögla meirihluta.
Þú ert á móti allri róttækni í stjórnmálum og
ert þjóðernissinni fram í fmgurgóma. Þú dáir
íþróttir, sérstaklega ef þú horftr á þær í sjón-
varpi. Skapið er gott en sköpunargáfan léleg.
B - rauður: Baráttumaðurinn:
Þú frestar aldrei til morguns því sem hægt er
að gera í dag. Þú hefur hugrekki, þor og ótt-
ast ekki samkeppni við að ná markmiðum
þínum. Þú nærð þeim markmiðum sem þú
setur þér, jafnvel þótt þú þurfir að berjast
fyrir þeim. Þitt mottó er: Hver er sinnar gæfu
smiður.
C - blár: Sá fastheldni á gamla siði:
Ómögulegt að finna nokkurn sem er heiðar-
legri. Réttlætið er ofar öllu, hvort sem er í
viðskiptum eða einkalífinu. Þú fylgir dyggi-
lega skoðunum föður þíns og óttast allar
breytingar, þær valda þér öryggisleysi. Þú
metur andleg verðmæti ofar veraldlegum og
ert þeirrar skoðunar að andleg verðmæti séu
ofar öllu öðru.
D - fjólublár: Gáfumaðurinn:
Að þínu mati hefur allt sínar orsakir. Þess
vegna lætur þú ekki stjórnast af tilfmningum.
Þú hefur ekki mikið skopskyn og skapið er
frekar þungt. Slíkir menn vinna sérhvert verk
af miklu öryggi en eru mjög uppteknir af
vinnu sinni og láta hana ganga fyrir íjölskyldu
og vinum. Þeir eru yfirleitt vel menntaðir og
bráðgáfaðir.
E - bleikur: Rómantíska manngerðin:
Þú ert maður tilfinninganna. Þegar þú ert
með elskunni þinni getur þú einangrað þig
fullkomlega frá umhverfinu. Þú hefur unun
af skáldskap og rólegri tónlist en í daglega
lífinu er erfitt að treysta á þig, þú býrð í eigin
heimi. Á hinn bóginn ertu góður ástvinur,
hugsanlega með tveimur undantekningum:
Þú ert tungulipur og stundum dálítið upptek-
inn af sjálfum þér.
F - grænn: Nýi maðurinn:
Þú trúir á jafnrétti karla og kvenna. Þú deilir
ábyrgð með maka þínum, gætir barnanna og
vilt eiga gáfaðan maka sem hugsar líkt og þú.
Þitt mottó er: Hver og einn kýs sinn eigin lífs-
máta. i
7. TBL VI KAN 5