Vikan - 12.02.1987, Page 30
EGGERT GUÐMUNDSSOIM
NAFN VIKUNNAR:
Keðjan er aldra steáari
en veskastí hlekkur hennar
Maður er nefndur Eggert Guðmundsson.
Hann er blikksmíðameistari og vinnur í
Reykjavíkurborg við ýmis störf.
En nú nýlega átti það sér stað að Eggert
gerðist annar aðalleikarinn í kvikmynd Frið-
riks Þórs Friðrikssonar, Skyttunum þremur.
Þetta er kvikmynd i fullri lengd, leikstýrð af
Friðriki.
En hvernig stendur á því að óþekktur bikk-
smíðameistari gerist kvikmyndastjarna?
Fyrir um það bil tveimur árum fór ég á
svonefnt Dale Carnegie námskeið. Þar vildi
svo skemmtilega til að ég kom út úr skelinni.
Þetta endaði með að ég fékk verðlaun fyrir
leiklistarhæfileika. Skömmu síðar hitti ég
gamlan skólafélaga minn, Bjarna Ingvarsson.
Hann er líka blikksmiður og við erum góðir
vinir. Tal okkar barst að leiklistinni. Bjarni
starfar með áhugamannaleikhúsi, sem nefnist
Hugleikur. Það varð úr að ég tók að starfa
með þessu félagi einnig og er þar ennþá. Leik-
húsið er starfandi við Hafnarstræti níu, á
Galdraloftinu. I þessum leikhópi eru sennilega
um fimmtíu til hundrað manns þegar allt er
meðtalið. Við höfum sett upp þrjár sýningar.
Sú fyrsta var Bónusferðin, svo kom Skugga-
Björg og síðast Sálir Jónanna. Núna erum
við að vinna að þeirri fjórðu en sú hefur ekki
hlotið nafn ennþá. Leikstjórinn heitir Sigrún
Valbergsdóttir. Þessi hópur áhugaleikara er
mjög samstilltur.
Við Friðrik Þór unnum saman í garðyrkju
fyrir um það bil sautján árum. Síðan þá höfum
við alltaf hist öðru hvoru fyrir tilviljun. Ein-
hvern tíma nefndi hann við mig hvort ég vildi
ekki leika í kvikmynd. Eg tók þessu meira í
gríni en alvöru. Friðrik impraði á þessu
nokkrum sinnum. Fyrir rúmu ári hringdi hann
svo i mig og sagði mér frá þessari mynd sem
hann var með í bígerð. Hann spurði hvort ég
vildi leika í henni.
Þessi mynd er í raun og veru bæði gaman-
og spennumynd. Hún fjallar um tvo sjómenn
sem eru að koma af vertíð. Þeir hafa verið
sjómenn nær alla sína ævi. Myndin hefst á
þvi að þessir tveir menn eru að tala um hvað
muni taka við hjá þeim. Það sem eftir er
myndarinnar segir svo frá ævintýrum þeirra
í borginni. Þar rekur hver atburðurinn annan.
Þetta gerist hins vegar á aðeins einum til
tveimur sólarhringum.
Fyrstu vikurnar sem ég lék í myndinni voru
gífurlega erfiðar. Það er erfitt að þekkja sína
eigin rödd og ég hafði aldrei leikið fyrir fram-
an kvikmyndavél. Ég ætlaði að stunda aðra
vinnu með og gerði það raunar fyrstu vikurn-
ar. En fljótlega gerði ég mér Ijóst að það var
allt of erfitt. Það er mikil vinna að leika í
kvikmynd. Bæði fer tími í að læra hlutverkið
og að taka myndina, ásamt fleiru.
Sennilega höfum við unnið um tiu tíma á
sólarhring að meðaltali. I fyrstu unnum við á
morgnana og daginn. Þá tókum við mikið
af útiatriðum, í Hvalfirðinum. Við vorum
heppin með veður. En síðar hófum við starf
okkar um sexleytið á kvöldin og unnum svo
fram eftir nóttu. Það fór að mestu leyti fram
inni. Smám saman fór maður að mæta, eins
og þetta væri hver önnur vinna.
Þegar ég lít til baka sé ég að þetta var mjög
skemmtilegur tími. Það er garnan að hafa
öðlast þessa reynslu. Auðvitað er mikil spenna
þegar maður bíður eftir frumsýningu og
spennan eykst því nær sem dregur henni. En
ég held að það sé samt sem áður ekki rétt að
segja að ég sé kvíðinn.
Ég fór einu sinni kringum landið á frakt-
ara. Það er sú eina reynsla sem ég hef af
sjómennsku. En það kemur alls ekki að sök
því myndin gerist öll í landi og ég þarf ekki
að túlka þessa persónu sem sjómann fremur
en eitthvað annað.
Það er stór hópur manna sem á heiðurinn
af þessari mynd og það yrði of langt mál að
telja þá alla upp. Auðvitað á Frikki stærsta
heiðurinn og það er líka hann sem tekur
mestu áhættuna.
Það myndast sérstakt andrúmsloft við gerð
svona rnyndar því fólk er í nánu samstarfi
og er saman mikinn hluta sólarhringsins.
Þetta er allt mjög gott fólk sem ég vann með.
Mótleikari minn heitir Þórarinn Óskar
Þórarinsson, kallaður Aggi. Hann leikur
Grím sem hefur oftast orðið fyrir þeim félög-
um. Hinn ólæsi Búbbi, Guðbjartur Hafsteins-
son frá Hellissandi, er hins vegar einfaldur
maður.
Aðrir leikarar í þessari mynd eru; Eggert
Þorleifsson, Helgi Björnsson, Karl Guð-
mundsson, Bríet Héðinsdóttir, Baldvin
Halldórsson, Valdimar Örn Flygenring, Har-
ald G. Haraldsson, Auður Jónsdóttir og
Hrönn Hafliðadóttir.
Það koma lika fram margir statistar og jafn-
framt meðlimir úr áhugamannaleikhúsum hér
í borginni. Einnig koma við sögu félagar úr
Leikfélagi Hafnarljarðar.
En eins og áður segir er svona mynd engan
veginn bara verk leikaranna. Það má ekkert
fara úrskeiðis. Leikstjórn, hljóð, kvikmynda-
taka, klipping, lýsing, allt verður að standast
til að rnyndin heppnist. Því keðjan er aldrei
sterkari en veikasti hlekkur hennar.
Viðtal: Hlynur Örn Þórisson Mynd: Valdís Óskarsdóttir