Vikan - 19.03.1987, Side 6
Meðal meistara og spekinga
Fyrir tvo fákunnandi áhugamenn í skák var
það einnig frábær upplifun að fara á sjálfan
mótsstaðinn á Hótel Loftleiðum og anda að
sér því spennuþrungna og rafurmagnaða and-
rúmslofti sem þar var. Við vorurn litnar
forvitnu hornauga því þarna sást varla nokk-
ur kona, hvernig sem á því stendur. En við
settum upp einbeittan svip og fylgdumst vel
með öllu. Þarna var rnikið að gerast. Inni í
sjálfum mótssalnum sátu menn og fylgdust
með hverjum leik, hvísluðust á og sögðu álit
sitt. í skákskýringasalnum voru skákir skýrð-
ar og skeggræddar. Frammi á ganginum var
svo „spekingastúkan'1 svokallaða. Þar komu
gamlir skákjaxlar og áhugamenn saman og
ræddu stöðuna. Þarna var oft hið mesta fjör
og mörg gullkornin sem féllu. Spekingarnir
voru sko alveg með skákirnar á hreinu og
sótbölvuðu ef okkar menn við taflborðið
gerðu eitthvað sern þeim líkaði ekki. „Hann
brosandi og Timman úr annarri átt. Þeir
heilsuðust og hófu taflið. Þá þegar voru Port-
isch og Polugajevski komnir vel á skrið. Jón
L. og Kortsnoj fóru sér rólega en Margeir
og Ljubojevic og Helgi og Jóhann tóku
skyndilega smásprett. Tal fór að kíkja á hjá
hinum en Timman fékk sér kaffi. Short og
Agdestein voru mjög niðursokknir. Menn
tíndust í salinn og settu upp spekingssvipinn,
spáðu vel í stöðuna og hnykluðu brýrnar ef
svo bar undir. Svo kom Short allt í einu út í
sal og settist hjá kærustunni sallarólegur -
enda sömdu þeir Agdestein um jafntefli
skömmu síðar!!
Um kvöldið var aðeins tveimur skákum
ólokið; þeirra Jóns L. og Kortsnojs og
Ljubojevics og Margeirs. Spennan var mikil
og þegar skeggræðurnar urðu heldur of heitar
og búið að leika skákir Jóns og Margeirs
margsinnis til sigurs þarna í salnum dró einn
starfsmaðurinn upp hvítt skilti sem á stóð
ÞÖGN. Skvaldrið hljóðnaði. Svo kvað við
allt í einu rnikið lófaklapp; Jón hafði sigrað
Kortsnoj.
Undirritaðar sátu sem steinrunnar og fylgd-
ust með hinum fylgjast með. Stundum
gleymdum við að við kynnum ekkert í skák
og þóttumst vita hvað var að gerast og Val-
dís sem, eins og áður segir, er ögn upplýstari
og kann að verjast heimaskítsmáti sagði að
nú færu þeir Margeir og Ljubojevic að semja
um jafntefli. Og viti menn, sú varð raunin.
Þó var ekki allt þar með búið því þá fóru
þeir að rifja upp lcikina með því að hraðspila
skákina aftur á bak og áfram og ræða hvaða
Ljubojevic í þungum þönkum. Fyrsti leikur í höfn.
Sá „stutti“ brá sér út í sal i miöjum leik, til kærustunnar.
Helgi hugsar stórt.
fer of geyst," sagði einn. „Hann er af Laxa-
mýrarætt og veit hvað hann er að gera,“ sagði
annar og svo voru langar umræður um málið.
En svo mikið er vist að spekingarnir hefðu
unnið allar skákirnar á nó tæm ef þeir hefðu
setið við skákborðið!
Myndirnar hér á síðunni voru teknar þegar
síðasta umferðin var tefld. I upphafi sat
Ljubojevic í þungum þönkum og beið and-
stæðingsins, Margeirs. Tal geystist inn skæl-
vitleysur þeir hefðu gert. Loks kom Kortrnoj
og sagði þeim fiá hversu hrapallega hann
hefði leikið af sér i 39. leik og Ljubojevic var
honurn alveg hjartanlega sammála.
Það er alveg áreiðanlegt að eftir þá sér-
stæðu reynslu að fylgjast'með heilu skákmóti,
án þess svo mikið sem kunna mannganginn,
er ég ákveðin í að verða ntér úti unt það mikla
kunnáttu að ég að minnsta kosti geti gert
Valdisi heimaskítsmát.
6 VIKAN 12. TBL