Vikan - 19.03.1987, Síða 54
Smásaga eftir Bergþóru Árnadóttur
ert útvarpað á rás tvö og ekkert sjónvarp
verður í kvöld. í landinu ríkir neyðarástand
og eftir því sem við höfum fregnað utan úr
heimi er algjör glundroði víðast hvar. Enginn
getur gefið skýringu á þessu fyrirbæri og um
allan heim eru vísindamenn að kanna málið.
Hér á landi hefur öllum verslunum, bönkum
og öðrum þjónustufyrirtækjum verið lokað,
enda ekkert hægt að selja þar sem peninga-
seðlar eru nú auðir og fólk á í erfiðleikum
með að þekkja þá í sundur."
Hann þagnaði og annar þulur tók við:
„Allar samgöngur liggja niðri og margar
bifreiðir eru bensínlausar úti um allan bæ en
ekki er heldur hægt að selja bensín, frekar en
annað. Mikið álag er á símanum og er fólk
beðið um að nota hann ekki nema um neyð-
artilfelli sé að ræða.“ Smáþögn varð og hún
fór að klæða sig eins og henni kæmi þetta
alls ekkert við. Hún vandaði fatavalið, fór í
nýja dragt sem Eiríkur hafði keypt á hana
síðast þegar hann var í London.
„Hvað skyldi Jóhönnu þykja um hana
þessa?“ hugsaði hún. Svo datt henni allt í einu
í hug að gaman væri að breyta einu sinni
rækilega um stíl - svona í tilefni dagsins!
Hún leitaði í fataskápnum og að lokum
fann hún gamalt pils, vítt og skrautlegt. Það
var örugglega tuttugu ára gamalt. Hún fór
úr dragtinni og mátaði pilsið. Það var orðið
svolítið of þröngt í mittið en það gerði ekkert
til. Hún fann gamla vinnuskyrtu af Eiríki,
köflótta og slitna. Henni fannst skyrtan fara
vel við pilsið. Eftir nokkra leit í herbergi dótt-
ur sinnar fann hún vesti sem passaði við
múnderinguna. Þetta var gamalt vesti af föð-
ur hennar en hann hafði gefið Maríu það til
að nota á grímuballi. Hún nappaði í leiðinni
slitnum kínaskóm af dótturinni og fór í þá
utan yfir græna sokka sem hún hafði síðast
notað þegar þau voru að taka upp kartöflurn-
ar haustið áður. Þessu næst fór hún inn á bað
og tók til við að snyrta sig. Hún ákvað að
mála sig lítið, enga augnskugga, bara ofurlít-
inn maskara. Hún mundi ekki í svipinn hvort
það var maxfaktor eða díor en það skipti
hana engu máli. Hún setti ekki upp á sér
hárið, eins og hún var vön, heldur burstaði
það létt. Hún gat ekki annað en hlegið þegar
hún leit á sjálfa sig í speglinum.
„Hvað skyldi Jóhanna segja nú, ætli hún
myndi ekki bjóða henni kettling til eignar og
ábúðar!"
Nú byrjaði þulurinn í útvarpinu aftur: „All-
ir fiskibátar streyma nú í átt til hafnar um
land allt. Fyrirsjáanlegt er að veiðar muni
liggja niðri vegna ástandsins. Ekki er hægt
að vinna aflann í landi og fiskimenn geta
ekki lesið á kort og dýptarmæla, auk þess sem
starfsfólk í frystihúsum og öðrum fiskverkun-
arhúsum kemst ekki til vinnu.“
Hún slökkti á útvarpinu. „Hvað þurfti hún
að hlusta á þetta?“
Hún fór í gamla peysu. Það var hlýtt úti,
sannkallað sumarveður. í dag skyldi hún njóta
lífsins. Hún fór út og gekk að bílnum sínum,
konubílnum, sem Eiríkur hafði gefið henni í
afmælisgjöf í fyrra þegar hún varð fertug.
Það var ekkert númer á honum, það gerði
nú ekki mikið til. Hún ók sem leið lá í áttina
að miðbænum. Alls staðar voru bilar stoppað-
ir og fólk talaðist við í gegnum gluggana eða
stóð í smáhópum. Við bensínstöðvarnar voru
margir bílar. „Það verða víst margir bensín-
lausir í dag,“ hugsaði hún og leit á mælaborð-
ið. Hún hafði nóg bensín, þökk skyldi Eiríki,
hann sá um þessa hluti fyrir hana. Þegar hún
kom í miðbæinn sá hún að bærinn var fullur
af fólki. Hún fann stæði fyrir framan stjórnar-
ráðshúsið. Þegar hún fór út úr bílnum sá hún
að þetta var forsetastæðið. Henni leið eins
og hún hefði tekið við embættinu. „Skrítin
tilfinning!“
Jóhanna var ekki komin, allavega sá hún
hana ekki. „Stundvís, eins og vanalega," hugs-
aði hún og hló innra með sér. Hún settist á
bekk. Það sat maður fyrir á bekknum. Honum
virtist líða illa. Við hlið hans lágu margir
pennar og blýantar af öllum mögulegum gerð-
um og hann reyndi árangurslaust að skrifa
eitthvað á blað. Hún kíkti yfir á blaðið hjá
honum. Engin orð komu hvernig sem hann
reyndi að skrifa. Svitinn perlaði á enni hans.
Hún fann til með honum.
„Gengur þetta ekki hjá þér?“ áræddi hún
að spyrja. Hann leit á hana og það var þján-
ing í svipnum. „Nei,“ hvíslaði hann á móti.
„Reyndu að teikna," sagði hún og minntist
myndanna á mjólkurfernunum. Hann horfði
á hana stundarkorn: „Já, þú segir nokkuð,“
svaraði hann og gerði tilraun til þess. Það
GEKK! „Ja, hugsa sér,“ sagði maðurinn eins
og við sjálfan sig. „Þetta gengur bara vel.“
Hann virtist taka gleði sina aftur
„Hvernig datt þér þetta í hug?“ spurði hann
og horfði fullur aðdáunar á hana. Hún gat
ekki farið að segja bláókunnugum manni að
hún hefði séð það á mjólkurfernum svo hún
sagðist bara hafa látið sér detta það si svona
óforvarandis i hug. „Þú ert snillingur,“ sagði
maðurinn hrifinn. Hún fór hjá sér. Enginn
hafði sagt neitt þessu líkt við hana fyrr.
„Hvaða vitleysa, þetta er bara hugmynd,"
sagði hún lágt. „Og skratti góð hugmynd,"
sagði maðurinn. Hann stóð upp og þakkaði
henni fyrir hjálpina. „Þú ert séní,“ sagði hann
og kyssti á hönd hennar í kveðjuskyni. „Við
sjáumst síðar.“
I sömu mund gekk Jóhanna fratnhjá. „Jó-
hanna,“ kallaði hún. Jú, þetta var hún, á þvi
var enginn vafí. Þær stóðu smástund og virtu
hvor aðra fyrir sér.
„I hverju ertu?“ spurði Jóhanna. „Sömu-
leiðis," svaraði hún. Þær hlógu. Jóhanna var
klædd dragt, svipaðri þeirri sem hún hafði
fyrst ætlað að fara í. Hárið var vandlega
greitt, andlitið málað og ekki nóg með það,
hún var í skóm og með veski af sömu gerð
og með HATT á höfðinu! „Hvar fékkstu
þetta?“ spurði hún og skellihló. „Eins og ég
geti ekki fengið mér föt eins og lleiri," svar-
aði Jóhanna. „Og útgangurinn á þér, það
mætti halda að þú hefðir komist í skápana
hjá nrér!“ Þær hlógu svo mikið að andlits-
málning Jóhönnu var í stórhættu. Þær settust
á bekkinn og héldu áfram að hlæja. Svona
vel höfðu þær ekki skemmt sér lengi. Jóhanna
varð allt í einu íbyggin á svip:
„Sjáðu hvað ég er með,“ sagði hún lágt og
sýndi vinkonu sinni ofan í veskið sitt.
„Gvuuð, þú ert brjáluð, kallaði hún upp
þegar Jóhanna dró vasapela upp úr veskinu.
„Alveg snar,“ svaraði Jóhanna, „fáðu þér
dramm.“
Hún saup á. Það var sterkt. „Hvað er
þetta?“ spurði hún og reyndi að ná andanum.
„Ekta íslenskt brennivin, í tilefni dagsins,"
svaraði Jóhanna og fékk sér vænan slurk án
þess að blikna. Þær komu sér saman um að
reyna að finna eitthvert kaffihús svo þær
gætu laumað úr pelanum út í bollana. Það
hljómaði spennandi. Þær olnboguðu sig gegn-
um iðandi mannþvöguna. Alls staðar var fólk
að tala saman, ýmist í lágum hljóðum eða
hátt og með æsingi. Þær kærðu sig kollóttar.
Fyrst reyndu þær að komast inn á Hressó.
Þar var læst.
„Auðvitað er alls staðar lokað í dag," sagði
hún.
„Reynum Borgina, ég þekki þjón þar.“
Jóhanna dró hana með sér. Hurðin á Hótel
Borg var ekki læst svo þær gengu inn. Þjónn
kom með miklu írafári á móti þeim. „Það er
lokað, ekkert hægt að selja, allir peningar
ónýtir," sagði hann andstuttur.
„Slappaðu af, maður," sagði Jóhanna. „Við
ætlum bara að tala við hann Konráð. Er hann
ekki að vinna í dag?“ „Jú, ég skal ná i hann,“
svaraði þjónninn og snerist á hæli. Þær fylgdu
á eftir inn í salinn.
Við nokkur borð sat starfsfólkið og ræddi
málin sin á milli. „Hræðilegt," heyröist frá
einhverjum. „Mágkona min hringdi frá Njú
jork í morgun og sagði að allt væri í kaos
þar,“ sagði stúlka með svuntu sem sat við
hlið þess sem fyrst hafði talað. „Hvað skyldi
vera hægt að gera, þetta er eins og heimsstyrj-
öld?“ sagði cinhver. „Æ, ég veit ekki hvar
þetta endar,“ sagði annar. Þær stóðu á gólfinu
og hlustuöu á umræðurnar.
Allt í einu lók einhver el'tir þcim. „Það er
lokað hér i dag,“ var sagt. „Viö erum að bíða
eftir honum Konráði," sagði Jóhanna. „Nújá,
láið ykkur bara sæti," svaraði maðurinn. Þær
settust. Eftir smástund kom Konráð.
„Nei, ert þú þarna, clskan mín," sagði liann
fagnandi við Jóhönnu. „í hverju erlu eigin-
lega?“ „Ég er bara að æfa mig l'yrir grímu-
ball,“ sagði Jóhanna hlæjandi. Hún kynnti
þau Konráð. „Okkur langarsvo mikið í kalfi-
sopa,“ sagði hún við hann. „Það er ekkcrt
mál þegar svona fallegar konur eiga í hlut.“
Hann fór fram i eldhúsið. „Hvað sagði ég
ekki?“ sagði Jóhanna, Konráð kom með kal'f-
ið.
Jóhanna laumaði bollanunt undir borð og
hellti í hann úr pelanum góða. Ilún rélti vin-
54 VIKAN 12 TBL