Vikan - 14.05.1987, Page 19
- — • ■'
Síi?l
„Bessie MouIford,“ sagði
hann. „Þér eruð handtekin
fyrir morðið á systur yðar,
Charlotte Blench. Ég vara
yður við því að allt sem þér
segið verður skráð og kann
að verða notað gegn yður við
réttarhöldin.“
„Já,“ sagði Fen þegar þeir
nokkru síðar sátu yfir kaffinu
sem Wyndham hafði lagað.
„Bessie hlýtur að hafa kyrkt
systur sína rétt áður en þú
•ókst í hlað. Flún hefur að öll-
um líkindum framið verknað-
inn inni í húsinu og
markmiðið var að komast
yfir peningana sem frú Blench
geymdi þar. Þegar þú komst
lokaðist undankomuleið
hennar. Flún greip þá til þess
ráðs að leika frú Blench og
um nóttina reyndi hún síðan
að fjarlægja líkið. Átökin,
sem þú taldir þig verða varan
við í garðinum, voru bara
smávaxin miðaldra kona að
burðast með þungt lík. Vasa-
klúturinn og varaliturinn
höfðu einmitt þveröfuga
merkingu við það sem þú
hélst.“
Wyndham kinkaði kolli:
„Ég skil. Flún varð vör við
mig þegar ég vaknaði og rétt
náði að fela líkið hjá sorp-
haugnum áður en ég komst
út úr húsinu og á vettvang.
Það var engin furða að hún
vildi ekki að ég væri að snuðra
þarna í nágrenninu og nú skil
ég líka hvers vegna hún varð
svona áhyggjufull þegar ég
sagði henni að ég þjáðist af
svefnleysi."
„Eftir að þú hafðir eyðilagt
þessa fyrstu tilráun fyrir henni
gat hún ekkert gert við líkið
fyrr en í nótt. Eins og þú get-
ur sjálfsagt getið þér til um
þá var ég búinn að finna líkið
áður en ég fór til lögreglunnar
en þeir töldu nauðsynlegt að
handtaka hana einmitt þegar
hún væri að flytja það til.“
„Hvað var það sem ég tók
ekki eftir?“ spurði Wyndham.
„Það sem gerðist þegar þú
dast með allt leirtauið í fang-
inu og braust það.“
„En hún varð ekki vör við
það.“
„Einmitt,“ sagði Fen, „Þá
áttaði ég mig á því að hún
þættist vera heyrnarlaus.
Manneskja, sem raunverulega
væri heyrnarlaus, hefði orðið
vör við titringinn þegar svo
mikill þungi fellur til jarðar
og hefði því snúið sér við.“
20. TBL VIKAN 19