Vikan - 14.05.1987, Blaðsíða 29
Sólgleraugu frá versluninni Partý.
góð til að verjast útfjólubláu ljósi, grænt
oggrátteru líka nokkuð algengir litir á
gleraugum sem útiloka vel útfjólublátt
ljósen þaðerekki hægtað faraeftir
litnum eingöngu.
Ef maður vill fá sér sólgleraugu sem
dökkna eftir því sem sólarljósið eykst
ber að gæta þess að þau dökkni nógu
mikið þegar farið er út í sólskin. Þess
ber líka að gæta að sólgleraugu, sem
dökkna aðeins þegar þau verða fyrir
miklu útfjólubláu ljósi, geta verið alls-
endis ófullnægjandi við akstur. Ástæðan
er sú að framrúður sumra bíla skilja frá
útfjólublátt ljós og þess vegna dökkna
sólgleraugun ekki nægilega til þessað
verja mann fyrir sýnilega Ijósinu.
Það er liæltulegt að ganga sífellt með
gleraugu sem dökkna við aukið ljós því
þá geta augun misst þann eiginleika að
aðlaga sig Ijósinu.
Polaroid sólgleraugu eru þannig úr
garði gerð að þau skilja frá ljósið sem
endurkastast. Gott er að nota þessi gler-
augu þar sem mikið endurvarp er, til
dæmis í sandi, snjó eða vatni.
Það verður hver og einn að gera upp
við sig hvort hann vill hafa plast eða
gler í sólgleraugunum sínum. Plast er
allt að því helmingi léttara en gler. Hins
vegar er plastinu hætt við að rispast og
oft verða sólgleraugu fyrir hnjaski. í
rannsókninni, sem Fishman gerði, kom
í ljós að plastgleraugu útilokuðu betur
útfjólublátt Ijós en þau sem voru með
gleri en þetta er auðvitað bara niður-
staða einnar könnunar og þess ber
einnig að gæta að það er afskaplega
erfitt, ef ekki ómögulegt, að búa til góð
gleraugu úr plasti sem dökkna við auk-
ið Ijós.
Við val á sólgleraugum er rétt að
minnast þess að dýr gleraugu eru ekki
endilega betri en þau sem ódýrari eru.
Verðið á sólgleraugum fer reyndar meira
eftir tískunni en eiginleikunum.
frá sjáanlega Ijósið en að vera með eng-
in. „Efmaðurerekki með sólgleraugu
getur maður ekki horft í sólina," segir
Fishman. Ef fólk er með sólgleraugu
sem skilja bara frá sýnilega Ijósið heldur
það að gleraugun geri sitl gagn og ligg-
ur á ströndinni og fær útfjölubláll Ijós
í augun án þess að gera sér grein fyrir
þvi. Reyndar komst Fishman að því að
sum sólgleraugu hleypa meira en áttatíu
og fimm prósentum af útfjólubláa Ijós-
inu í gegnum sig.
Hvernig er þá hægt að segja til um
hvort maðurerað kaupa sólgleraugu
sem eru góð vörn gegn útfjólubláum
geislum?
Vertu viss um að sólgleraugun séu
nógu dökk. „Efmaður vill vera viss um
að geta séð vel í mjög miklu sólskini
ættu gleraugun að skilja frá að minnsta
kosli áttatíu prósent af hinu sýnilega
ljósi," segir Fishman.
Rallituð og brún sólgleraugu eru olt
20. TBL VIK A N 29