Vikan - 14.05.1987, Page 47
Veiðimenn eru farnir að dorga og fiskurinn farinn að
taka eins og hjá þessum unga Neskaupstaðarbúa sem
rennir fyrir ufsa og fær hann.
Stuttar veiðifréttir
Sigurður Sigurjónsson leikari er einn af veiðimönnunum
sjúku og rennir fyrir fisk þegar hann getur og hefur tíma.
Sigurður tók veiðitímann snemma og renndi fyrir fisk og
ýmislegt annað í Þorleifslæk. Veiðitúrinn gekk vel hjá
Sigurði og veiddi hann fjölda fiska, smáa og stóra. Þar
sem fiskurinn í læknum hefur hingað til ekki þótt fallegur
og matarmikill tók Sigurður aðeins fimm með sér heirn
og gaf kettinum sínum. Heilsan hjá kettinum eftir þetta
át á fiskinum úr Þorleifslæk var slæm og tók það víst
köttinn nokkra daga að jafna sig eftir fiskátið. Skyldi
nokkurn undra?
Þeir eru margir, veiðimennirnir, sem hafa farið í Þor-
leifslæk og rennt. Við fréttum af einum sem gafst upp
og fór heim. Hvers vegna? Hann hafði séð alltof margt
torkennilegt renna framhjá agninu, eins og gulan,
grænan og hvítan smokk. Þá var honum nóg boðið
og fór heim. Við heyrðum nýlega að það ætti að
hreinsa lækinn innan tíðar og setja rotþró til að
stoppa...
Landssamband stangaveiðimanna er vaxandi félag
og mikið hefur verið gert síðustu mánuði. Þar fara
fremst í flokki Rafn Hafnfjörð og stjórnin og
ýmislegt hefur verið gert. Stærsta verkefnið verður
veiðidagur fjölskyldunnar sem haldinn verður 21.
júní og búist er við miklu fjölmenni við veiðivötn
víðs vegar um landið. Hafa þeir hjá Landssam-
bandinu staðið fyrir miklu happdrætti og hefur
gengið vel að selja niiða enda glæsilegir vinningar
í boði, eins og veiðileyfi í mörgum góðum veiðiám
og vötnum víða unt landið.
Mörgum hefur orðið tíðrætt urn hið milda veður
sem ríkt hefur í vetur. Til rnarks um veðurblíðuna
er sönn saga af maðkatínslumanni sem tíndi hundr-
að og sextíu skoska maðka í garði sínuni í janúar.
Mun þetta einsdænti hér á landi. Eitthvað munu
þeir sem áhuga hafa á þeirn slímuga þurfa að bíða
enn eftir „tínsluveðri" en væntanlega verður nóg
til af maðki í sumar.
20. TBL VIKAN 47