Vikan - 11.02.1988, Blaðsíða 6
Meira en 80% fólks undir fertugu er fylgjandi sölu áfengs bjórs á íslandi
samkvæmt skoðnakönnun sem Hagvangur gerði fyrir Vikuna
80% kjósenda undir
fertugu með bjórnum
Það er áberandi í þessari
könnun hversu fáir svarendur
eru óákveðnir gagnvart spurn-
ingunni um hvort þeir séu fylgj-
andi eða andvígir bjór eða
6,8%. íslendingar eru því
greinilega almennt ákveðnir í af-
stöðu sinni í þessu umdeilda
máli.
Spurningar Hagvangs voru
þrjár:
1) Ertu því fylgjandi eða
andvíg(ur) að leyfð verði sala á
áfengum bjór hér á landi?
2) Telur þú að heildaráfengis-
neysla muni aukast hér á landi
ef sala verður leyfð á áfengum
bjór?
3) Telur þú að þingmenn muni
ganga til atkvæða á þessu þingi
varðandi það bjórfrumvarp sem
þar hefur verið lagt ffarn?
í spurningunum var ekki til-
greint hvar bjórinn ætti að
seljast, ef sala hans yrði leyfð en
svarendur gengu nær undan-
tekningalaust út frá því að um
yrði að ræða sölu áfengs bjórs í
verslunum ÁTVR og vínveit-
ingastöðum landsins en ekki í
matvöruverslunum eins og tíð-
kast víðast hvar erlendis.
Að meðaltali voru um 80%
kjósenda undir fertugu fylgjandi
6 VIKAN
Nær helmingur kjósenda á íslandi treystir því ekki aö
bjórfrumvarpið sem nú liggur fyrir Alþingi veröi afgreitt
af þjóðkjörnum fulltrúum þjóöarinnar. Hins vegar er mik-
ill meirihluti þjóöarinnar fylgjandi sölu áfengs bjórs á !s-
landi samkvæmt skoðanakönnun sem Hagvangur gerði
fyrir Vikuna í lok janúar. Úrtak Hagvangs var 1000 manns
af báðum kynjum um allt land á aldrinum 18 til 67 ára.
Svarendur voru valdir af handahófi úr þjóðskránni í sam-
ræmi við opinberar reglur um slíkar skoðanakannanir.
■ Skilaprósenta var 85,5 sem er mjög hátt hlutfall og ætti
að gefa nokkuð nákvæma mynd af vi|ja íslenskra kjós-
enda í bjórmálinu á þessum dögum hækkandi sólar.
„Egill sterki“, Polarbjór, er nú aðeins seldur í fríhöfninni og til
erlendra sendiráða.
sölu áfengs bjórs hér á landi en
fylgjendum fer ört fækkandi í
eldri aldurshópum og eru þeir
komnir í minnihluta í aldurs-
hópnum 60 ára og eldri. Það
skiptist hins vegar nokkuð jafht
á milli kjósenda hvort fólk telur
að heildaráfengisneysla muni
aukast með sölu áfengs bjórs
hér á landi. Eðli málsins sam-
kvæmt eru bjórandstæðingar í
meirihluta þeirra sem telja að
áfengisneyslan muni aukast eða
94,6% þeirra sem afstöðu tóku
á móti bjórnum. Tæpur
þriðjungur bjórfylgjenda eða
29,3% telur hins vegar líka að
heildaráfengisneyslan muni auk-
ast en þeir eru samt þeirrar
skoðunar að leyfa eigi bjórinn.
Nokkurt vantraust
til Alþingis
Óákveðnin var mest hjá svar-
endum gagnvart spurningunni
um hvort þeir teldu að þing-
menn muni ganga til atkvæða
um bjórfrumvarpið sem nú ligg-
ur fyrir Alþingi. 16,8% kjósenda
treystu sér ekki til að svara
þeirri spurningu en 58,2%
þeirra sem tóku afstöðu gagn-
vart þeirri spurningu svöruðu
játandi. Hins vegar telja 41,8%
þeirra sem tóku afstöðu að