Vikan - 11.02.1988, Blaðsíða 37
Magnaður
kúshir
„Merkilegt að manni skyldi
ekki hafa dottið þetta í hug
sjálfum." Þetta er oft fyrsta
hugsunin sem þýtur í gegn-
um huga fólks þegar það sér
einfalda uppfinnlngu sem
virðist svo nauðaómerkileg
að hvert mannsbam ætti
næstum að hafa getað fundið
hana upp. Þetta virðist nú
samt vera stóri galdurinn við
margar nytsamar uppfinn-
ingar, þær eru einfaldar og
hagnýtar.
Einhver uppflnningamaður-
inn úti í hinum stóra heimi lét
sér detta í hug að ffamleiða af-
þurrkunarkúst, sem lýtur sömu
einföldu lögmálunum og þegar
greiðu er renr.t í gegnum hár. Ef
kústurinn er hiistur og hárin á
honum ýfð hleðst hann raf-
magni, þannig að hann virkar
eins og segull á allt ryk.
Kústurinn hentar sérstaklega
vel til lausnar á því hvimleiða
vandamáli að þrífa rimlaglugga-
tjöld, eða svokallaðar hansa-
gardínur. Rykið hreinlega sogast
í kústinn svo flöturinn verður
hreinn að nýju. Samkvæmt leið-
beiningum á umbúðum kústsins
má þvo hann eins oft og hver
vill, þannig að hann getur skoð-
ast sem ffamtíðareign, svo fram-
arlega að hann týnist ekki. Tjón-
ið yrði þó ekki óbætanleg ef
hann týndist, þar sem auðvelt er
að eignast nýjan fyrir um 300
krónur í næstu matvöru- eða
búsáhaldaverslun.
munstri 6 er lokið prjónið þá tvær
bleikar umferðir aukalega og fell-
ið síðan af. Prjónið hina ermina
alveg eins.
HÁLSMÁL: Takið upp í hálsmál
74 lykkjur, þar af 14 lykkjur af
framstykki (geymdu lykkjurnar)
og 26 lykkjur af bakstykki (einnig
geymdar). Prjónið brugðning, 1
sl. og 1 br., 9 umferðir og fellið
síðan af.
HÚFA:
Eyrnalappi: Fitjið upp 5 lykkjur á
prjóna nr. 2Vfe og prjónið fram og
aftur brugðning, 1 sí. og 1 br., 18
cm. Aukið þá út þannig: Prjónið
tvær lykkjur og aukið út eina
lykkju, prjónið tvær lykkjur. Aukið
þannig út innan við endalykkju í
annarri hverri umferð þar til
komnar eru 25 lykkjur á prjóninn.
Fitjið nú upp 8 nýjar lykkjur í lok
umferðar (hnakki) og prjónið þrjár
umferðir, þ.e. 33 lykkjur á prjóni.
Geymið síðan lykkjurnar. Prjónið
nú hinn eyrnalappann eins en fitj-
ið upp 8 nýjar lykkjur í byrjun um-
ferðar.
Prjónið nú vinstri eyrnalapp-
ann, fitjið upp 29 lykkjur, prjónið
hægri eyrnalappann. Prjónið 8
umferðir brugðning, 1 sl. og 1 br.
Skiptið yfir á hringprjón nr. 4 og
prjónið eftir munstri í hring. Þegar
munstri er lokið er prjónað áfram
með bleiku en notaðir sokka-
prjónar nr. 4 vegna úrtöku.
Úrtaka: 1. umferð: Prjóniðfjór-
ar lykkjur og takið síðan tvær
lykkjur saman, endurtakið allan
hringinn. 2. umferð: Prjónið bara
slétt. 3. umferð: Prjónið þrjár
lykkjur og takið síðan tvær
saman, endurtakið allan hringinn.
4. umferð: Prjónið bara slétt. 5.
umferð: Prjónið tvær lykkjur og
takið síðan tvær lykkjur saman,
endurtakið allan hringinn. 6.
umferð: Prjónið eina lykkju og
takið síðan tvær saman, endur-
tekið hringinn. 7. umferð: Takið
tvær lykkjur saman allan hringinn.
Prjónið síðan þær sjö lykkjur sem
eftir eru 5 umferðir án þess að
taka nokkuð úr. Dragið band í
gegnum þessar sjö lykkjur og
gangið frá endum.
Kústurinn gleypti allt ryk af
gluggatjöldunum á auga-
bragði. Þægileg og hávaðalaus
rykhreinsun.
VIKAN 37