Vikan - 11.02.1988, Síða 38
Sterkasti Norðmaðurinn
Alþjóðaskáksambandið út-
nefndi fyrstu stórmelstarana
í skák árið 1950 og þar í hópi
var Svíinn Gideon Stahlberg.
Landi hans og kunningi,
Gösta Stoltz, var síðan út-
nefndur stórmeistari fjórum
árum síðar og sá þriðji, Erik
Lundin, fékk heiðursstór-
meistaranafnbót árið 1983- Á
þessum árum náðu snjöll-
ustu norsku skákmeistar-
arnir ekkl nærri eins langt.
Þannig getur skákstyrk og
áhuga verið mlsskipt milli
landa.
Á síðari árum hafa efnilegustu
norsku skákmennimir einnig
brugðist löndum sínum. Knut
Jöran Helmers og Leif ögaard
hafa orðið að láta sér nægja
naíhbót alþjóðlegs meistara.
ögaard hefur reyndar náð
áföngum að stórmeistaratitli en
titillinn sjálfur hefur látið bíða
eftir sér. Hann er mistækur skák-
maður. Hann getur teflt listavel
ef svo ber undir en þess á milli
er eins og hann skelli í baklás.
Helmers er aftur á móti allt of
ragur við skákborðið. Hann náði
því reyndar að verða Norður-
landameistari 1983 á miklu jafh-
teflismóti en skákstíll hans býð-
ur ekki upp á afburðaárangur.
Síðan kom Simen Agdestein
fram á sjónarsviðið. Með honum
hafa Norðmenn loks eignast af-
burðaskákmeistara. Hann er
tvítugur að aldri og varð stór-
meistari átján ára gamail. Agde-
stein er íslenskum skákunnend-
um vel kunnur frá taflmennsku
sinni hér á landi og sannast
sagna hefur hann reynst ís-
lensku stórmeisturunum erfið-
ur. Fyrst vann hann Margeir
með nokkrum yfirburðum í ein-
vígi um réttinn til að tefla á
millisvæðamóti, skömmu síðar
skaut hann Helga og Jóhanni
aftur fyrir sig í úrslitakeppni
um Norðurlandameistaratitilinn
(1985) og á IBM mótinu í fyrra
vann hann alla íslendingana
nema Jóhann.
í janúar náði Agdestein besta
árangri sínum til þessa er hann
varð 'þriðji á stórmeistaramót-
inu í Wijk aan Zee. Sigurvegari
varð Anatoly Karpov með 9 v.,
Svíinn Ulf Andersson kom næst-
ur með 8V2 v., síðan Agdestein og
Búlgarinn Kiril Georgiev með
7 Vt v., þá Tal, Húbner og Farago
með 6V2 v., Curt Hansen, Niko-
lic og Piket fengu 6 v., Van der
Wiel, Sosonko og Van der Sterr-
en fengu 5V2 v. og Ljubomir Lju-
bojevic rak lestina með 4Vi v.
Hér er staða úr skák Agde-
stein sem hefur svart gegn
Piket. Flækjustíll Norðmannsins
er slíkur að oftar en ekki verður
mótherjum hans hált á svellinu.
Hvítur á leik í stöðunni en „eðli-
legur“ leikur hans reynist ekki
eins snjall og hann hélt:
8
7
6
5
4
3
2
1
20. g3? Kannski hélt hvítur að
hann væri að vinna, því að ef 20.
— Df6, þá 21. Hf3 og þrýstir á f7.
20. — Hxg3! En þetta einfalda
svar kemur honum aftur niður á
jörðina. Ef 21. fsg3 þá 21. —
Dxe3+ og ef 21. Hxg3 þá 21. -
Dd2 mát. Hvíta staðan er töpuð
en Agdestein heldur áfram að
tefla af þrótti. 21. Rf3 Bc6! 22.
Bxa6 Hd5! 23. Rg5 Hxe3+ 24.
fxe3 Dxe3+ 25. Be2 Dg3+.
Missti of fallegri viimingsleið
Nú er nýlokið undan-
keppninni í Reykjavíkur-
mótlnu í sveitakeppni. í
henni tóku þátt 22 sveitir og
af þeim unnu 15 sér rétt til
setu í undanrásum íslands-
mótsins I sveitakeppni.
Til úrslita um Reykjavíkurbik-
arinn keppa 4 sveitir.og kom lít-
ið á óvart hvaða sveitir komust
þar í úrslit. Sveitir Verðbréfa-
markaðs Iðnaðarbankans, Sam-
vinnuferða, Pólaris og Flugleiða
komust í úrslitin. Meðlimir
Samvinnuferða eru flestir korn-
ungir spilarar en þeir hafa sýnt
afbragðs árangur í vetur svo það
þarf ekki að koma neinum á
óvart að þeir skyldu komast í
úrslit. Nokkuð kom þó á óvart
að sveit Esterar Jakobsdóttur,
sem meðal annars er byggð upp á
kvennalandsliðinu, skyldi ekki
komast áfram í undanrásir.
Reykjavíkurmótið í sveita-
keppni er óþrjótandi náma af
ranegum spuum enda voru
spiluð þar hátt í 350 spil á
hverju kvöldi. f spili viknnar
missti Magnús Ólafsson af fal-
legri vinningsleið en hann spilar
i sveit Fatalands. Spilið var allt
svona og sagnir gegnu þannig:
KG9x
KDG
AKxxx
x
Ax
9xx
DGx
KDlOxx
lOxxx
AlOxxx
XX
Gx
V N A S
1 lauf dobl 1 gr pass
pass 2tíglar pass 2hjörtu
pass 4hjörtu allirpass
Útspilið var laufa kóngur og
síðan skipt yfir í hjarta. Sagnhafi
átti slaginn á gosa, tók drottn-
inguna og spilaði síðan ás og
kóng í tígli og trompaði lítinn
tígul. Spilaði síðan hjarta tíu á
kóng og einu laufi og einum
spaða hent í frítíglana tvo. Síðan
varð hann að spila litlum spaða
frá blindum sem austur stakk
drottningu á og réði sagnhafi þá
ekki lengur við laufsóknina eins
og lesendur geta sannreynt.
Vinningsleiðin var þannig að i
stað þess að spila sig inn á
hjarta kóng með tíu er betra að
trompa laufgosa með hjarta
kóng og spila síðan frítígli og
henda spaða. Síðan verður sagn-
hafi aðeins að hitta í spaðann
hvort sem vöminn spilar
honum eða hann sjáliur. Pað
eru miklar líkur fýrir því að
vestur eigi spaða ás úr því hann
opnaði.
Dxx
XX
lOxx
AGxxx
38 VIKAN