Vikan - 11.02.1988, Síða 43
SKOP /
Heyrt í hátalarakerfi flug-
stöðvarinnar í Keflavík: Vill sá
sem tapaði heyrnartæki sínu
vinsamlega koma í afgreiðsl-
una.
í Hafnarfirði á að taka í
notkun nýja gerð af strætis-
vögnum. Þeir verða aðeins
2ja metra langir en 25 metra
breiðir. Það er sökum þess að
allir Hafnfirðingar vilja sitja við
hliðina á bílstjóranum í
strætó.
Presturinn spurði guttann
hvort hann færi með
kvöldbæn.
„Nei, en mamma gerir
það,“ svaraði guttinn.
„Hvað segir hún?“ spurði
presturinn.
„Guð minn almáttugur,
loksins ertu kominn í rúmið."
Heyrt í bókabúðinni:
„Eigið þið einhverja bók
með dularfullum endi?“
„Ja, ég er hér með eina
sem búið er að rífa síðasta
kaflann úr.“
Ljóhið gekk öskrandi um
frumskóginn. Er það hitti
páfagaukinn kallaði það til
hans: „Hver er konungúr
hér?“
„Það ert þú, herra," svaraði
páfagaukurinn.
Ljónið gekk áfram og hitti
apann: „Hver er konungur
hér?“
„Það ert þú, herra," svaraði
apinn.
Ljónið gekk áfram og hitti
fílinn: „Hver er konungur
hér?“
í stað þess að svara greip
fíllinn Ijónið með rananum og
giýtti því utan í næsta tré.
Ljónið stóð upp og dustaði af
sér rykið um leið og það
sagði: „Allt í lagi, vinur, allt í
lagi. Það er alveg óþarfi að
æsa sig þótt maður viti ekki
svarið.“
Með frúnna á
hreindýraveiðar
Maður nokkur fór með kon-
una sína í fyrsta sinn á
hreindýraveiðar. Eftir að hafa
leiðbeint henni um grunnatr-
iðin á þessu sviði ákváðu þau
að halda sitt hvora leið og hitt-
ast síðan í lok dagsins. Áður
en þau skildu sagði maðurinn
konunni að passa sig á öðr-
um veiðimönnum sem gætu
orðið á undan henni að dauðu
dýri og sagst eiga það. Ef
slíkt kæmi upp á átti hún að
skjóta þrisvar sinnum úr riffli
sínum og þá kæmi hann
hlaupandi henni til aðstoðar.
Stuttu eftir að þau skilja
heyrir maðurinn að skotið er
þrisvar sinnum úr riffli. Er
hann kemur á staðinn stendur
kona hans yfir dauðu dýri og
mjög taugaveiklaður náungi
horfir í riffilhlaupið hjá henni.
„Hann segir að hann eigi
þetta," segir konan.
„Hún má halda því, hún má
halda því,“ kallar maðurinn.
„Ég vil bara fá hnakkinn minn
aftur."
Stjörnuspá fyrir vikuna 11. -17. febrúar
Hrúturinn
21. mars - 19. apríl
Þessa viku skaltu hafa aug-
un opin og láta ekki góð tækifæri
ganga þér úr greipum. Þú munt af
hreinni tilviljun kynnast rosknum
manni eða konu og þú munt ekki
sjá eftir að hafa kynnst honum
(henni).
Nautið
20. apríl - 20. mal
Hætt er við að þú takir að
þér verk þessa viku sem verður þér
algerlega ofviða. Heimsóknin sem
þú færð um helgina kemur sér
fremur illa en þú mátt ekki ætlast
til þess að lífið leiki sífellt við þig.
Eftir mánudaginn fer að rofa til.
Tvíburarnir
21. mai - 21. júní
Vegna mikilla anna þessa
viku gefst þér ekki tækifæri til þess
að sinna áhugamálum þínum sem
skyldi. Þú verður fyrir talsverðri
gagnrýni þessa viku en taktu hana
ekki of illa upp því að vafalaust
áttu hana skilið.
Krabbinn
22. júní - 22. júll
Loksins munt þú uppskera
ávöxt iðju þinnar síðustu vikur. Að
því er virðist ert þú allt of tortrygg-
inn og nýtir ekki góð tækifæri.
Þessi sífellda tortryggni getur orð-
ið þér bagaleg með tfmanum.
Ljónið
23. júlf - 22. ágúst
Það bíður einhver eftir
bréfi frá þér með óþreyju. Þér ætti
ekki að vera skotaskuld úr þvf að
setjast niður og hripa nokkrar
línur. Það getur orðið þér heilla-
drýgra en þig órar fyrir. Þú skalt
ekki lifa um efni fram þessa viku.
Meyjan
23. ágúst - 22. sept.
Þú virðist ætla að verða
óvenju uppstökkur og önuglyndur
þessa viku og hætt er við að þú
skeytir skapi þínu á alsaklausum
mönnum. Þú skalt fara að hugsa til
þess hvað þú eigir að gera við tóm-
strundir þínar í vetur.
Vogin
23. sept. - 23. okt.
Fyrri hluta vikunnar skaltu
umfram allt nota til þess að hrinda
áformum þfnum f framkvæmd því
að ekki blæs byrlega síðari hluta
vikunnar. Ef einhver býður þér að-
stoð sína skaltu taka því með
þökkum.
Sporðdrekinn
24. okt. - 21. nóv.
Vikan verður dapurlega
tfðindalítil nema hvað mánudag-
urinn býður upp á óvænt atvik sem
snertir þig óbeinlfnis en mun verða
þér afdrifarfkt sfðar meir. Þú skalt
samt ekki láta dapurleika hvers-
dagsins á þig fá.
Bogamaðurinn
22. nóv. - 21. des.
Þú reynir að gera góð-
kunningja þínum greiða - líklega
um helgina - en hætt er við að
góðvild þín verði misskilin og tekin
illa upp. Ef þú ætlast eitthvað mik-
ið fyrir þessa viku skaltu ekki leita
ráða annarra.
Steingeitin
22. des. - 19. janúar
Um helgina verður þér
hrósað mjög fyrir eitthvert athæfi
þitt og það átt þú fyllilega skilið.
Þetta getur orðið til þess að einn
kunningi þinn falli f skuggann en
þú skalt gera allt sem f þínu valdi
stendur til þess að rétta hlut hans.
Vatnsberinn
20. janúar - 18. febrúar
Þér býðst einstakt tækifæri
þessa viku en hryggilegt er að
þurfa að segja það - þú misnótar
það herfilega einungis vegna fljót-
færni þinnar. Þú skalt hugsa þig
um tvisvar áður en þú ræðst í stór-
ræði næst.
Fiskar
19. febrúar - 20. mars
Reiddu þig ekki um of á
kunningja þína og láttu dóm-
greind þfna ráða þvf að allt bendir
til þess að þú einn sért fær um að
ráða fram úr verkefni þvf sem þú
færð í hendur. Annars virðist allt
ætla að leika f lyndi fyrir þér þessa
viku.
VIKAN 43