Vikan - 11.02.1988, Síða 51
Lifí Irfinu lifandi
■■ -—V '
\
c
p
c
4
/ fyrsta sinn í mörg ár eru Sovét-
menn ekki taldir sigurstrangleg-
astir í íshokkýkeppninni.
hæstu einkunn sem gefin er fyrir
æfingar sínar í Heimsmeistara-
keppninni f fyrra.
Keppnin er talin verða mun tví-
sýnni í karlaflokki en þar keppa
þrír núverandi og fyrrverandi
heimsmeistarar, Bandraríkja-
maðurinn Boitano, Sovétmaður-
inn Alexander Fadeév og Kan-
adamaðurinn Brian Orser sem er
núverandi heimsmeistari.
í skautahlaupi er Karin Kania
frá Austur-Þýskalandi talin sig-
urstranglegust i öllum hlaupum. f
karlaflokki er talið að baráttan
komi til með að standa á milli So-
vétmanna og Norðmanna.
Óvænt úrslit
Þrátt fyrir að reiknað sé með að
einhverjir keppendur séu sigur-
stranglegir getur alltaf gerst að
óþekktur keppandi slái í gegn og
hreppi gullið. Það er einmitt það
sem gerir iþróttir heillandi, óviss-
an og spennan. Og þökk sé nú-
tíma tækni og Ríkissjónvarpinu fá
íþróttaáhugamenn hér á Fróni nú
tækifæri til að fylgjast með at-
burðum sem skráðir verða (
íþróttasöguna um leið og þeir
gerast.
Árni Magnússon er ungur mað-
ur sem margir hafa sjálfsagt
tekið eftir á öldum Ijósvakans.
Bæði fyrir óvenju djúpa rödd
og svo fyrir það að þátturinn
hans, Mannlegi þátturinn, sem
er á dagskránni alla virka daga
á milli klukkan 16 og 18 er sér-
lega áhlýðilegur þar sem sam-
an fara þægileg tónlist, gam-
anmál og fréttatengt efni.
Segja má að Árni eigi hvorki
langt að sækja röddina né þægi-
legheitin þar sem hann er sonur
Magnúsar Bjarnfreðssonar sem
er þekktur fyrir annað en skræki
eða óhófleg læti. Enda tók Árni
því með stöku jafnaðargeði þegar
blaðamaður Vikunnar ákvað að
hnýsast ögn í manninn á bakvið
röddina í útvarþinu og þáttinn
hans.
Árni er 22ja ára, laus og liðugur
og úr Kópavoginum. Ekki hefur
hann þó haldið sig þar alla tíð því
eftir grunnskólann lá leið hans
upp í Borgarfjörð þar sem við tók
nám við Samvinnuskólann í
Bifröst. í þeim skóla erfélagslífið
geysilega stór partur af skólalíf-
inu og ekki lét Árni sitt eftir liggja á
því sviði. Hann var formaður Ijós-
myndaklúbbsins, tók virkan þátt í
leikfélaginu og söng með karla-
kórnum Spældum tónum, en
hann var skipaður þeim sem ekki
komust í skólakórinn. Eftir útskrift
frá Bifröst flutti Árni norður í land
og settist að á Blönduósi hvar
hann bjó í þrjú ár og léði Búnað-
Mannlegi
þátturinn
hans Áma
arbankanum og kaupfélaginu á
staðnum starfskrafta sína.
Árið 1986 lá leiðin svo aftur í
heimahagana og þar til í sept-
ember síðastliðnum vann hann í
fraktinni hjá Flugleiðum. En í
september var hann einmitt ráð-
inn á Stjörnuna sjálfum sér og
hlustendum til mikillar kæti. En
var ekki erfitt að gefa frimiðana
upp á bátinn?
„Ekki aldeilis. Það er miklu
betra að vera í skemmtilegri og
vel launaðri vinnu og borga bara
fullt fyrir utanlandsferðirnar.1'
- Hvernig vinnur þú þættina
þína?
„Ég mæti hingað um níu á
morgnana og byrja yfirleitt á
draumaráðningunum sem eru
fastur liður i þættinum. Svo er að
athuga hvað er að gerast í þjóð-
félaginu og reyna að finna sér
viðmælendur fyrir þáttinn. Þegar
klukkan fer að nálgast fjögur
hringi ég í flugfélögin, Vegagerð-
ina, Veðurstofuna og víðar til að
afla upplýsinga um flug, færð og
veður. Svo er þetta bein útsend-
ing í tvo tíma.“
- Nú er þessi þáttur í beinni
samkeppni við þættina Reykjavík
síðdegis og Dagskrá Dægur-
málaútvarpsins. Hefur þú það
eitthvað í huga?
„Ég neita því ekki að maður
hefur það í huga að samkeppnin
er mikil á þessum tíma dagsins.
En ég reyni að mæta henni með
því að gera þáttinn minn svolítið
öðruvísi en hinir. Skapa honum
sérstöðu."
- Nú sérð þú um annan þátt á
Stjörnunni?
„Það er rétt. Á sunnudags-
kvöldum er ég með þátt þar sem
ég spila eingöngu rólega tónlist
undir svefninn hjá fólki. Þetta er
svona vangalagaþáttur þar sem
ég spila þekktar Ijúfar ballöður frá
ýmsum tímurn."
- Hvað gerir Árni Magnússon
svo þegar hann er ekki að vinna
við útvarþ?
„Ég reyni að ferðast mikið,
bæði hér heima og erlendis. Það
má segja að það sé mesta
áhugamálið hjá mér. Mér líkar
mjög vel að vera úti við og lifa lif-
inu lifandi. Þó fer ég mikið í bíó.
Ég hef aldrei verið íþróttafrík en
hef farið svolítið á skíði og sþilað
golf.“
- Ert þú, Bifrastarhetjan, ekki
rétttrúaður framsóknarmaður?
„Þó ég játi það að ég hafi kosið
Steingrim síðast játa ég mig alls
ekki sem framsóknarmann. Frek-
ar lífsnautnamann." -AE.
VIKAN 51