Vikan - 12.01.1989, Side 5
37 Hæsti happdrættisvinning-
ur sem unnist hefur á íslenskan
happdrættismiöa eru 25 milljón-
ir og þótti mikið. Vikan sýnir les-
endum framan í fólk, sem unnið
hefur um og yfir hálfan milljarð
króna....
38 Sjálfsmorð eru til umfjöllun-
ar á níu blaðsíðum þessa tölu-
blaðs Vikunnar. Leitað er svara
við ýmsum spurningum þar að
lútandi og tölur skoðaðar. Auk
þess er birtur kafli úr útvarps-
leikriti eftir Ævar R. Kvaran sem
snertir þetta efni.
48 Popparar og peningar.
Popptónlistarmenn sem verða
skyndilega vinsælir verða oftast
mjög ríkir. Þeim farnast ákaf-
lega misjafnlega að fara með
féð. Vikan tínir til athyglisverð
dæmi.
50 Myndasögur um Gissur
gullrass, Andrés Önd og hjónin
Stínu og Stjána.
51 Gervineglur eru þægileg
lausn fyrir þær konur, sem vilja
hafa langar neglur, en eiga ekki
auðvelt með að láta neglur sín-
ar vaxa af ýmsum ástæðum.
Vikan segir frá bandarískri teg-
und sem hægt er að fá álímdar
á tveim tímum á mörgum snyrti-
stofum hér á landi.
53 Feitasti maður heims vóg
um 700 kíló fyrir ári - en þá fór
hann nú líka í megrun. Vikan
birtir forvitnilegt viðtal við mann-
inn og myndir af honum. Svona
rétt svo að lesendur eigi auð-
veldara með að sætta sig við
grömmin sem þeir bættu á sig
um hátíðarnar...
56 Uppskrift að peysu sem
Christian De Falbe hannaði fyrir
Álafoss.
59 Systkinabrúðkaup þykja
jafnan í frásögu færandi, en
hvað segið þið þá um það þegar
13 þúsund láta vígja sig saman
í sambúð á einu bretti?
60 Rjúpan er lauslát segir í
grein um þennan eina fugl af
ættbálki hænsna, sem hér lifir
villtur, en tegundir hænsnfugla
eru um 240 talsins. Greinin um
rjúpuna er sú fyrsta í greina-
flokki sem Björn Hróarsson
jarðfræðingur hefur tekið að sér
að rita fyrir Vikuna.
62/66 Krossgátur.
63 Unglingarnir spyrja um
förðun fyrir kvikmyndir, hvað sé
til ráða þegar maður er með Ijótt
nef og hvernig hægt er að ná
betra tilfinningalegu sambandi
við erfiðan kærasta.
64 Roy Orbison var nýbúinn að
rífa sig upp eftir mikla lægð og
spila inn á sólóplötu með nýju
efni þegar hjartaslag varð hon-
um að bana. Vikan rifjar upp
söngferil söngvarans með ang-
urværu röddina.
66 Stjörnuspáin.
Andrea vinsæl fyrirsæta
Forsíðustúlka Vikunnar heitir Andrea Brabin og er íslensk í
aðra ættina. Hún bar sigur úr bítum í fyrirsætukeppni Ford
1986 og hefur síðan haft nóg aö starfa. Hún leigir íbúð í
París, en gefst fremur lítill tími til að dvelja þar. Undanfarna
mánuði hefur hún verið að störfum meira og minna á (talíu. Hún var
hér um jólin, en strax annan dag janúar var hún flogin til Bandaríkj-
anna þar sem hennar beiö þriggja vikna starf, en síðan var ferðinni
heitið til Mexíkó. Myndina af Andreu tók Magnús Hjörleifsson fyrir
Vikuna, en um snyrtingu sáu þau Ari Alexander og Olöf Ingólfsdótt-
ir, sem bæði starfa á stofunni Hár og snyrting.
ð
t\im
NEGLU
LESLEY NEGLUR færðu á eftirtöldum
Ásta Jónsdóttir
Háalundi 11, Akureyri
Sigríður Waage
Fögrusíðu 9c, Akureyri
Brekkusól
Brekkubyggð 26, Blönduósi
Snyrtist. Rósar
Sólbrekku 20, Húsavík
Snyrtist. Dana
Hafnargötu 49, Keflavík
Snyrtist. Dóris
Suðurlandsbraut 2, Rvík
Orkugeislinn
Faxafeni 10, Rvík
Áferð
Rauðarárstíg 27-29, Rvík
Snyrtist. Greifynjan
Rofabæ 39, Rvík
Snyrtihöllin
Garðatorgi, Garðabæ
Snyrtist. Yrja
Klausturhvammi 15, Hafnarf.
Hárgr. og snyrtist. Þema
Reykjavíkurvegi 64, Hafnarf.
Snyrtist. Líf
Gerðubergi 1, Rvík ,
Heildverslunin RA
Nýbýlavegi 22. Sími 46442
Snyrtist. Saloon-Ritz
Laugavegi 66, Rvík
Snyrtist. N.N.
Laugavegi 27, Rvík
Papilla
Laugavegi 24, Rvík
l.tbl. 1989 VIKAN 5