Vikan - 15.06.1989, Page 20
Lambahryggur með
sveppamauki
Kjöt
Höfundur: Jóhann Jacobson
INNKAUP:
ADFERÐ:
300 gr lambahryggur, klofinn
og án mænubeins
100 gr ferskt pasta
1 peli rjómi
150 gr sveppir
salt, pipar
Ofnsteikt
Ódýr □ Erfiður □ Heitur B
Kaldur □ Má frysta □ Annað:
■ Lambahryggurinn er steiktur í u.þ.b. 10-15 mín. eftir þykkt. Á meðan er
pastað soðið í 3 mín., sveppirnir skornir í fjórðunga og hitaðir á pönnu. Þá
er rjóma bætt út í pottinn og soðið niður í þykkt krem og kryddað með salti
og pipar. Safanum af hryggnum er síðan bætt út í. Pastað er sett á diskinn
miðjan, sveppamaukinu hellt í jaðarinn á diskinum, kjötið skorið og kótilett-
urnar settar í miðjuna.
■ Borið fram með fersku grænmeti.
■ Ef þið treystið ykkur ekki til að skera hrygginn biðjið þá kjötkaupmann-
inn að gera það fyrir ykkur.
§ ■ Gjarnan má blanda saman rauðu, hvítu og grænu pasta.
IPc
McCORMICK PASTA
KRYDD
Laxatartar með
grænni jurtasósu
Áætlaður vinnutími 10 mín.
Höfundur: Jóhann Jacobson
Smáréttur
INNKAUP:
AÐFERD:
100 gr lax
1/4 bolli majones
1/4 bolli rjómi
1/8 bolli grænar ferskar kryddjurtir
salt, svartur pipar
limesafi
Ódýr □ Erfiður □ Heitur □
Kaldur □ Má frysta □ Annað: Hrátt
Z
o
cc
o
—3
*
(J)
■ Laxinn er skorinn fínt og kryddaður með salti, möluðum svörtum pipar
og limesafa. Mótaður í buff og geymdur í ísskáp.
■ Kryddjurtirnar eru saxaðar mjög fínt, settar í skál og þá er majonesi
blandað út í og rjóma. Kryddað með salti og pipar.
■ Gott er að leyfa sósunni að brjóta sig í kæliskáp í nokkra tíma áður en
hún er borin fram.
■ Ath. Ferskar kryddjurtir eru t.d. minta, basil, steinselja og kjörvel og fást
í stórmörkuðum, en þær má nota eftir smekk hvers og eins.
■ Sósan er sett á diskinn og tartarinn þar ofan á.
nt
McCORMICK
KRYDD