Vikan - 15.06.1989, Page 36
HÝR LEIKUR í VIKUMHI:
Taktu þátt í lesend
um leið og þú tekur þátt í skemmtilegum leik þar sem um er að
Oðru sinni fer
Vikan í lauflétt-
an skafmiðaleik með
lesendum. Aftur
skipta vinningarnir
hundruðum og
heildarverðmætið er
ríflega ein og hálf
milljón króna.
Á skafmiðanum
sérðu hvort þú hafir
unnið einhvern
þeirra vinninga sem
spilað er um. Hafir
þú unnið getur þú
vitjað vinnings á
ritstjórn Vikunnar í
Valhöll Háaleitisb-
raut 1 í Reykjavík.
Hafir þú ekki unnið
getur þú samt sent
inn seðilinn þinn og
fer hann þá í pottinn
sem utanlandsferð-
irnar fjórar verða
dregnar úr ein af
annarri. Fyrst Verald-
arferðirnar þrjár til
Costa del Sol og
síðustu vikuna
Parísarferðin.
Enginn seðill fer þó
í pottinn nema
lesendakönnun
Vikunnar á bakhlið
skafmiðans hafi fyrst
verið útfyllt. Til þess
er jú leikurinn
gerður, að leita
samráðs við lesend-
ur um leiðir til að
bæta stöðugt blaðið
okkar.
Costca del Sol
Þrisvar verður dregin út tveggja vikna ferð fyrir tvo til Costa del
Sol. Gist verður á Castillo de Vigia, sem er ný, glæsileg við-
bygging við hinn vinsæla gististað Santa Clara. Hér er um að
ræða nýjar stúdíóíbúðir sem verið er að taka í notkun. Ibúðirn-
ar eru búnar ölium hugsanlegum þægindum og með útsýni yfir
hafið. Það er aðeins þriggja mínútna gönguferð í iðandi mann-
líf Torremolinos. Það er Ferðamiðstöðin Veröld í Austurstræti
sem hefur einkarétt á íslandi fyrir þennan nýja og eftirsóknar-
verða stað. Verðmæti hvers vinnings er um 125.000 krónur.
Samtals verðmæti vinninganna á Costa del Sol er því kr.
375.000.
e
■ boði Cardin
Aðalvinningurinn í skafmiðaleik Vikunnar er stórglæsileg
lúxusferð til Parísar. Flogið verður utan 23. júlí á Saga Class
farrými með Flugleiðum. Þá um kvöldið verður borðað í boði
tískukóngsins Pierre Cardin á veitingastaðnum Maxim’s sem
hann keypti fyrir nokkru. Daginn eftir hefur Cardin tekið frá
miða á aðra tveggja stórtískusýninga sinna sem er aðeins opin
boðsgestum. Um kvöldið býður Cardin lesendum Vikunnar út
að borða á veitingastaðinn Espace sem er mjög vinsæll af
glæsifólki Parísar. Á þriðjudagsmorgninum mun svo glæsi-
kerra frá Peugeot bíða vinningshafanna og farið í ökuferð um
borgina. Gist verður á Parc Avenue Hotel, sem er í hjarta
Parísar og búið öllum þægindum. Sannkölluð lúxusferð bíður
tveggja lesenda Vikunnar. Verðmæti ferðarinnar er áætluð um
250.000 krónur.
Þótt enginn vinningur hafi komið ó þinn skafmiða ó hann
34 VIKAN 12. TBL. 1989