Vikan - 15.06.1989, Qupperneq 53
BARMEIGNIR
talist að verða ófrísk eftir að
þú ert orðin 30 ára.
Þú getur gert þér enn erfið-
ara fyrir með því að taka pill-
una alveg fram til þess tíma
sem þú ætlar að „reyna“. Rann-
sókn á 17000 konum í Bret-
landi sýndi að þær sem komn-
ar voru yfir þrítugt, notuðu
pilluna og höfðu ekki átt barn
áður, voru að meðaltali þrem
mánuðum lengur að verða
þungaðar en þær sem ekki not-
uðu pilluna - aftur á móti voru
þessi áhrif ekki mælanleg hjá
yngri konum. Af öllu þessu má
ráða að það væri betra fyrir þig
að reyna að eignast þitt fyrsta
barn áður en þú nærð 35 ára
aldrinum og að hætta að taka
pilluna nokkrum mánuðum
áður ef þú ert orðin 30.
Ekki hægt að segja
fyrir um hvort þú ert
frjósöm eða ekki
Samkvæmt því sem dr. John
Guillebaud, í Margraret Pyke
fjölskyldumiðstöðinni í Lond-
on, segir þá er best að eignast
þá fjölskyldu sem maður óskar
sér fýrr en seinna. Frjósemi
fer þverrandi á mismunandi
aldri hjá mismunandi fólki og
þú getur ekki sagt fýrir um
hvernig þetta muni verða hjá
þér. Það er sorglegt til þess að
hugsa að getnaður geti ekki
orðið hjá fólki sem er orðið 35
ára, þegar hann hefði auðveld-
lega getað orðið þegar það var
25.
Að hjálpa sér sjálfur
Margt sem varðar frjósemi
getum við sem einstaklingar
ekki stjórnað, en við höfúm
tækifæri til að vernda æxlun-
arfæri okkar frá áhrifúm sem
gætu skaðað þau. Fyrst og
fremst eru það kynsjúkdóm-
arnir lekandi og klamidía.
Hinn síðarnefndi er talinn sá
algengasti í heiminum og þó
hann sé læknanlegur, þegar
búið er að skilgreina hann, þá
hefúr hann tilhneigingu til að
skemma eggjaleiðarana án
þess að nokkur sjúkdóms-
einkenni sjáist.
Besta leiðin til að koma í
veg fýrir að smitast af kynsjúk-
dómi er að eiga sér ekki nema
einn ákveðinn rúmfélaga, sem
ekki heldur framhjá. En val þitt
á getnaðarvörn getur einnig
haft þarna áhrif. Verjan hefúr
reynst best, þar næst hettan
þegar notað er sæðisdrepandi
krem. Nokkur vörn er einnig í
pillunni vegna þess að hún
gerir það að verkum að slím
legganganna þykknar þannig
að það vinnur á móti sýkingu
og sáðfrumunum um leið.
Lykkjan er verst; hún virðist
hafa tilhneigingu til að auka
sýkingar sem annars hefðu
jafnvel verið lítilvægar og þar
með eykst hættan á ófr jósemi.
Önnur atriði sem
áhrif geta haft á
frjósemi:
• Vikt Séu konur of grannar
eða of feitar þá getur það kom-
ið í veg fýrir egglos hjá þeim.
Offita hjá körlum getur einnig
orsakað fáar sáðfrumur.
• Slæmir ávanar Reykingar,
mikil drykkja og notkun lyfja,
geta haft slæm áhrif á ff jósemi.
• Umhverfl Ákveðin efni og
efnasambönd geta haft áhrif á
frjósemi karla og kvenna. Ef þú
vinnur nálægt eða með efni þá
skaltu láta athuga hvort ein-
hver hætta sé á ferðum þeirra
vegna.
• Mataræði Sé mataræðið
ekki nógu gott getur það haft
áhrif á frjósemina. Hafðu matar-
æðið vel samansett þar sem
þú ferð nóg af fersku græn-
meti og ávöxtum. Zink, sem
töluvert er af í fiski og kjöti, er
talið hafa góð áhrif á frjósemi.
Þegar þig langar að
verða barnshafandi
Því fyrr sem þú reynir að
verða bamshafandi því fyrr
ferðu vitneskju um það hvort
einhver vandamál séu á ferð-
um og því lengri tíma hefúrðu
til að öðlast bót á vandanum.
En vertu þó ekki með neina til-
raunastarfsemi fyrr en þú ert
andlega og fjárhagslega tilbúin
fyrir barn.
Þrátt fyrir að það sé talið
ólíklegt, þá verða margar kon-
ur barnshafandi á fyrsta tíða-
hringnum sem þær nota enga
vörn. Til dæmis var ein kona
viss um að það tæki hana lang-
an tíma að verða ófirísk vegna
þess að hún hafði notað pill-
una í 14 ár og vegna þess að
hún var orðin 32 ára. Hún varð
því undrandi og dálítið
skömmustuleg, af því að hún
var nýbyrjuð í starfi, þegar hún
varð ófrísk um leið.
Mikilvægi réttrar tímasetn-
ingar má ekki vanmeta. Því
staðreyndin er sú að í raun er
aðeins einn dagur í öllum
mánuðinum sem getnaður get-
ur átt sér stað og það eru
næstu 24 tímar eftir að egglos
hefúr átt sér stað, áður en egg-
ið deyr. Það þýðir þó alls ekki
að það sé aðeins einn dagur í
mánuðinum sem samfarir or-
saka getnað, því sáðffumur
eiga að geta lifað í slímhúð leg-
ganganna í a.m.k. 3 daga.
Það er mikilvægt að vita
hvenær mánaðarins árangurs-
ríkasti tíminn er til samfara.
Þegar útferð er rífleg, vatns-
kennd og teygjanleg þá má
gera ráð fyrir að egglos sé um
það bil að eiga sér stað, sömu-
leiðis ef vart verður við sárs-
auka eða óþægindi neðarlega
í kviðarholi u.þ.b. á miðjum
tíðahring. Ef þú ert regluleg
og hefúr blæðingar á 28 daga
fresti þá geturðu gert ráð fyrir
að egglos sé hjá þér 14 dögum
áður en næstu tíðablæðingar
byrja.
Ertu ófrísk?
Spennan nær svo hámarki
þegar nokkrir dagar eru liðnir
framyfir þann tíma sem tíða-
blæðingar hefðu átt að hefjast.
„Er ég ófrísk?“ spyrja konurnar
sig þá... líka þær sem alls ekki
ætluðu sér að verða óffískar.
Hægt er að fá næstum fúllkom-
lega örugga vissu fýrir því
hvort svo er eða ekki — og það
sem betra er: án þess að nokk-
ur annar en þú fáir að vita það
— með því að nota þungunar-'
próf sem hægt er að kaupa í ap-
ótekum. Til dæmis heitir eitt
slíkt, sem mjög einfalt og ör-
uggt er að nota, Predictor.
Útkoma fæst á
30 mínútum
Þegar konan er orðin óffísk
byrjar líkaminn um leið að
framleiða þungunarhormón
sem skilst út með þvagi, mest
er af þessum hormón í morg-
unþvagi og því best að nota
það við prófúnina. Með Pre-
dictor prófinu fylgir glas,
dropateljari með vökva og
prófstafúr. Vökvinn úr dropa-
teljaranum er tæmdur í glasið.
Tómur dropateljarinn er not-
aður til að soga upp þvag úr
þvagprufuglasinu, 5 dropar af
því eru látnir drjúpa ofan í
glasið með vökvanum, tappinn
settur í og glasið hrist. Þá er
komið að prófstafnum, afls
ekki má snerta þann enda hans
sem notaður er við prófúnina,
til að trufla ekki útkomuna.
Það er ferhyrndur flötur sem
stungið er ofan í vökvann.
Prófstafúrinn er látinn
standa í glasinu í 30 mínútur
og að þeim tíma liðnum ferðu
að vita hvort þú ert ófrísk eða
ekki: Prófstafurinn er tekinn
upp úr og skolaður í vatni, ef
liturinn á flata endanum er
bleikleitur — allt frá fölbleikur
upp í dökkbleikur — þá er um
þungun að ræða. Sé hann aftur
á móti alveg hvítur þá er svo
ekki. Samkvæmt upplýsingum
sem prófinu fylgja þá eru
niðurstöðurnar fúllkomlega
marktækar ef leiðbeiningum
er fylgt nákvæmlega, þannig að
þú þarft kannski ekki að bíða
nema í 30 mínútur til að vera
viss. Að sjálfsögðu þarf svo að
fara til læknis fljótlega þegar
um þungun er að ræða, eins ef
langt er komið ffamyfir þann
tíma sem blæðingar áttu að
hefjast en prófstafúrinn sýnir
samt sem áður enga þungun.
12. TBL. 1989 VIKAN 51