Vikan - 16.11.1989, Blaðsíða 44
FATIÍAÐUR
Fötin sem leikararnir klæðast í
sjónvarpsþættinum vinsæla Fyrir-
myndarfaðir hafa vakið eftirtekt
vegna þess hversu smekkleg og
óvenjuleg þau eru og fara persónunum
vel. Ein kona sér um að velja og setja sam-
an fatnaðinn, sem notaður er í þáttunum,
og það er hún sem á heiðurinn af því sem
í Bandaríkjunum er kallað „The Cosby
Look“. Hún heitir Sarah Lemire og þótt
starf hennar sé afar skemmtilegt er það
langt í frá að vera auðvelt.
Það er fimmtudagskvöld og leikarar og
starfsmenn eru í óða önn að undirbúa
upptöku vikunnar á Fyrirmyndarföður.
Sarah Lemire búningahönnuður er að
leggja síðustu hönd á föt leikaranna áður
en tökur hefjast. Hún brettir upp á erm-
arnar á allt of stórri peysu sem Theo
(Malcolm-Jamal Warner) er í, fer síðan og
hnýtir svuntu með bangsamyndum á um
mittið á Rudy (Keshia Knight Pullman).
Búið er að greiða öllum og púðra nefin,
fötin eru krumpulaus þannig að nú geta
leikararnir farið á sinn stað í eldhúsinu á
sviðinu og beðið fyrirmæla leikstjórans.
Þegar fylgst er með þáttunum er ekki erfitt
að sjá hvers vegna Huxtable fjölskyldan
hefiir verið tilnefnd sem best klædda fjöl-
skylda sjónvarpsþáttanna.
Allt öðruvísi klædd en
nokkurönnur
sjónvarpsfjölskylda
„Þegar ég var ráðin, sagði Bill Cosby við
mig að hann vildi að fjölskyldan væri allt
öðruvísi klædd en nokkur fjölskylda í öðr-
um sjónvarpsþáttum. Hann sagði að hann
vildi að áhorfendur tækju sérstaklega eftir
fötunum. Það var í mínum verkahring að
sjá til þess að þau litu út eins og New York
fjölskylda sem fylgdist vel með nýjustu
tísku. Það er alltaf eitthvað nýtt að gerast í
Auðveldast er að klæða Bill Cosby, enda
hefiir hann það viðhorf að ef fötin passa
þá á að nota þau.
V
lífi þeirra og það átti að koma skýrt ffam."
Óhætt er að segja að henni hafi tekist ætl-
unarverkið því fatnaður fjölskyldunnar
hefur oft vakið meiri athygli en leikararnir
sjálfir og sérstaklega á það við um Denise
(Lisa Bonet).
Sarah hefur vinnuaðstöðu á næstu hæð
fýrir ofan upptökusalinn. Þar gengur mikið
á og aðstoðarmenn hennar þrír eru upp-
teknir við að sauma tölur á flíkur, strauja
og bursta skó. Á einum veggnum er mæli-
stika þar sem börnin í þáttunum hafa skráð
hæð sína frá því þátturinn hóf göngu sína
og þar sést greinilega hversu mikið þau
hafa vaxið. Sarah hefur fylgst jafhvel með
því hvernig smekkur þeitra hefur breyst.
„Það er auðveldast að klæða Bill,“ segir
hún. „Hann er svo hrifinn af peysum og
þær hafa næstum orðið vörumerki hans.
Tempestt Bledsoe (sem leikur Vanessu)
er aftur á móti mjög hrifin af karlmanna-
jökkum, of stórum, og víðum buxum. Einu
sinni fékk hún lánuð jakkaföt af pabba sín-
um til að vera í,“ segir Sarah.
„Hann varð ekkert smá vondur!“ segir
Tempestt sem kemur inn rétt í þessu til að
leita að borða í hárið á sér. Malcolm-Jamal
vill vera í stórum háskólapeysum eða
skyrtum og gallabuxum, í íþróttaskóm eða
stífburstuðum mokkasínum. Erfiðast var
að klæða Phylicia Rashad (mömmuna)
Sarah segir aðstoðarmanni sínum og
förðunarmeistaranum hvaða lit hún hef-
ur ákveðið að nota undir peysuna.
þegar hún var ófrísk en átti ekki að vera
það í þáttunum. Sarah leysti vandann með
því að láta hana vera í öllu mjög víðu. Sar-
ah fær þrjá daga fyrir hvern þátt til að finna
föt á alla. Hún fær lokahandritið á mánu-
dagsmorgni og hefur tíma til æfingarinnar
á miðvikudag — en þá eiga allir að vera í
búningum — til að þjóta um verslanir New
Yorkborgar til að finna akkúrat rétta fatn-
aðinn á hvern meðlim Huxtable fjölskyld-
unnar. Hún má eyða 3000 dollurum fýrir
hvem þátt, en þættirnir em 25 á ári.
Cliff og Claire
þurfa jafnvel að vera
fín í rúminu
í hverri viku breytist atburðarásin og
um leið búningarnir. í þættinum, sem nú
er verið að taka upp, em Cliff og Claire
veik og þurfa því að vera í „heimilisfatn-
aði“. Jafhvel þótt hjónin liggi í rúminu
þurfa þau að vera fallega klædd, þannig að
Sarah velur silkináttföt í grænbláum lit fyr-
ir Cliff og fínlegan ljósbláan silkináttkjól
fyrir Claire. Krakkana lætur hún vera í
þægilegum fatnaði því þeir eiga að taka að
sér heimilisstörfin.
Um leið og Sarah er búin að velja fötin
snýr hún sér að smáatriðunum sem gera
það að verkum að heildarsvipur fest.
Hversu allt þarf að vera fullkomið kemur í
ljós þegar hún saumar sjálf skelplötutölur
á hálsmálið á peysu sem kærasta Theo í
þessum þætti á að vera í. „Með peysu í
þessum ferskjulit væri hálsmeni ofaukið. f
sjónvarpi koma upp mörg vandamál varð-
andi fatnað sem ekki eiga við um tísku-
blöð. Svartur og hvítur fatnaður er ekki
góður í sjónvarpi og rendur og ákveðin
munstur hafa truflandi áhrif á augað.“ Til
að komast hjá vandamálum sem þessum
og til að koma í veg fyrir að fatnaðurinn
stingi í stúf við annað sem er á sviðinu er
málið oft leyst með því að kaupa hvítan
fatnað sem síðan er litaður. Og stundum
er flík notuð aftur í öðrum þætti en áður
42 VIKAN 23. TBL 1989