Vikan - 16.11.1989, Blaðsíða 12
ÓREIÐA f PAKKAVERKSMIÐJU
Jólaleikurinn okkar í ár snýst um ó-
reiðuna í pakkaverksmiðju jólasveinsins
síðustu vikurnar fyrir aðfangadag.
Það er heldur ekki hver sem er sem getur
skipulagt hlutina á verkstæði jólasveins-
ins...sérstaklega ekki þeir sem ekkert
þekkja til. En vinnan þar fer þannig fram að
gjöfum til hvers lands er pakkað fyrir sig og
þeim raðað í rétta röð ofan í poka jóla-
sveinsins svo að hann geti haldið sig við
sína vanalegu leið.
Jah, maður getur svo sem valið sjálfur hvort líta megi á gjöfina,
sem pakkaálfarnir eru með, sem kertastjaka eða sjálftrekkjandi
leikfang sem fer um allt gólf og foreldrarnir geta stigið berfættir á
þegar þeir fara fram úr...en það er samt ekki það sem er vanda-
málið. Vandamálið er að þessir tveir óreiðuseggir með rauðu
skotthúfurnar hafa fleygt merkimiðunum sem fylgdu gjöfunum svo
að nú hafa þeir ekki hina minnstu hugmynd um hvert jólasveinn-
inn á að fara með þær á aðfangadag...
Og það er styttra til jóla en þeir halda, eins og allir aðrir vita.
Kannski getið þið, lesendur góðir, hjálpað pakkaálfunum?
Ef þið getið séð til hvers af löndunum þrem, sem gefin eru upp hér
að neðan, pakkarnir eiga að fara þá biðjum við ykkur um að setja
kross við rétt svar. Klippið gátuna og svarið út og geymið þar til
búið er að birta allar 8 gáturnar. Svo fáið þið leiðbeiningar um
hvernig og hvenær senda á lausnirnar til okkar, þannig að ykkar
nafn verði kannski dregið úr gjafapottinum.
□ Brasilía □ Egyptaland □ írland
Hugsið ykkur bara hvernig það væri fyrir
hann, aumingjann, að standa kannski við
stromp í Tælandi og næsti pakki sem hann
tæki upp væri handa lítilli stelpu í Reykjavík
og sá næsti fyrir strák í Prag!
Þetta yrði þá líka svo erfitt fyrir hreindýrin
því að [Dau þyrftu að fara fram og til baka
um allan heiminn - það gæti jafnvel farið
svo að þau næðu ekki að fara með jóla-
sveininn á alla staðina. Það sem hefur gerst
er að merkimiðarnir á pakkana hafa horfið
Enn erum við í heimsókn í gjafaverksmiðjunni þar sem pakkaálf-
arnir eru að rabba saman...
Hér eru þeir með pattaraleg og mjúk tuskudýr sem mörg góð börn
einhvers staðar verða áreiðanlega glöð að fá...vandamálið er
bara að finna HVAR þessi börn eiga heima!
Þau hljóta náttúrlega að eiga heima í landi þar sem menn þekkja
svona dýr en því miður eru þakkaálfarnir hvorki sérlega sleipir í
landafræði né dýrafræði og merkimiðarnir hafa horfið sporlaust.
Kannski getið þið hjálpað greyjunum að finna í hvaða landi börnin
sem jólasveinninn ætlar að gefa þessi tuskudýr eiga heima.
Setjið kross við eitt af löndunum þrem sem koma til greina og
geymið gátuna. Seinna segjum við hvernig og hvenær senda á
lausnirnar inn.
□ Indland □ Kanada □ Noregur
1 2 VIKAN 23. TBL. 1989