Vikan - 22.02.1990, Síða 4
KRÝNINGARHÁTÍÐ Á SUNNUDAGSKVÖLD:
Dísirnar til Lundúna, Malasíu,
Bandaríkjanna og sólarlanda
Næstkomandi sunnu-
dagskvöld eða að kvöldi 25.
febrúar verður ungfrú
Hollywood valin úr hópi
níu glæsilegra stúlkna, sem
stundað hafa líkamsrækt og
ljósaböð af kappi í Stúdíói
Jónínu og Ágústu síðan fyr-
ir jól. Krýningin fer fram á
Hótel íslandi á glæsilegri
hátíð og þá um leið verður
kosin sólarstúlka Úrvals/Út-
sýnar og ljósmyndafyrir-
sæta Samúels.
Stúlknanna bíða spennandi
ferðalög. Ungfrú Hollywood
fer í lúxusferð til Hollywood
Bandaríkjanna og hún verður
einnig fulltrúi ungu kynslóðar-
innar á íslandi 1990, sem hef-
ur það í för með sér að hún fer
til þátttöku í keppninni um tit-
ilinn Miss Wonderland 1990
sem fram fer í Malasíu í vor. En
keppendur úr fegurðarsam-
keppni íslands hafa fram að
þessu tekið þátt í þeirri keppni
fyrir íslands hönd.
Sólarstúlka Úrvals/Útsýnar
fer að minnsta kosti tvær sólar-
landaferðir með ferðaskrifstof-
unni næsta sumar. Og ljós-
myndafyrirsæta Samúels fer í
sumar til Lundúna þar sem
Huggy mun taka af henni
myndir. Huggy á einmitt sæti í
þeirri dómnefnd, sem velur
ljósmyndafyrirsætuna, en auk
hennar sitja í þeirri dómnefnd
ljósmyndarar SAM-útgáfúnnar,
þeir Magnús Hjörleifisson og
Gunnlaugur Rögnvaldsson.
Stúlkumar sem keppa um tiltilinn hafa farið víða síðustu vik-
urnar. Þær vom m.a. heiðursgestir á landsleik íslands og
Rúmeníu og einnig á rokksýningunni á Hótel íslandi, þar sem
þær vom kallaðar upp á svið og gefnir blómvendir. Á mynd-
inni fyrir ofan em stúlkurnar í Laugardalshöllinni. Þær heita
(f.v.) María G. Sveinsdóttir, Kristrún Kristjánsdóttir, Elín Reyn-
isdóttir, Bryndís Ólafsdóttir, Sigríður L. Gunnarsdóttir, Harpa
Sævarsdóttir, Ölöf Halldórsdóttir, Lísa B. Davíðsdóttir og Sig-
rún Jónsdóttir. Ljósm.: Gunnlaugur Rögnvaldsson.
Gunnlaugur á einnig sæti í
dómnefndinni sem velur
ungfrú Hollywood og sólar-
stúlkuna, en í þeirri dómnefrid
eiga sæti auk hans Þórarinn
Jón Magnússon ritstjóri, Auður
Elísabet Guðmundsdóttir, sem
fyrst bar titilinn ungfrú Holly-
wood, en það var fyrir tíu
árum, Unnur Steinsson sýning-
arstúlka og Gunnhildur Pét-
ursdóttir sölufulltrúi hjá Úr-
vali/Útsýn.
Stjaman verður með beina
útsendingu ffá krýningarhátíð-
inni rétt eins og ffá kynningar-
kvöldunum í Hollywood. Og
það er einmitt einn vinsælasti
dagskrárgerðarmaður Stjörn-
unnar sem er kynnir kvöldsins,
nefnilega Bjarni Haukur
Þórsson.
Tekið verður á móti gestum
með fordrykk og fleiru góð-
gæti, en á matseðlinum er
rjómasúpa Agnes Sorelle og
nauta-barbeque ungu kynslóð-
arinnar. Meðan á borðhaldi
stendur leikur bítlavinurinn
Jón Ólafsson á píanó.
Keppendurnir koma þrisvar
fram og verða kynningarnar
vægast sagt með nýstárlegu
sniði. Þess á milli verða á svið-
inu vönduð skemmtiatriði eins
og HLH-flokkurinn, dansarar
með frumsýningu á suðrænu
dansatriði og úrvalslið Módel
79 með einstaka tískusýningu.
Atkvæðaseðill fylgir síðasta
Samúel og einnig greiða gestir
krýningarhátíðarinnar at-
kvæði.
4 VIKAN 4. TBL. 1990