Vikan - 22.02.1990, Side 7
„Maður gat verið i
töffarahlutverkinu
útávið þó maður
væri algerlega
kraminn innra með
sér.á<
„Upplifað að
standa
berrassaður fyrir
framan stúlku og
segja við sjálfan
sig skelfingu
lostinn: Hvað á ég
nú að gera?“
„Einhleyp, íslensk
stúlka sem verður
ófrísk fyrir slysni
fer ekki sjálfkrafa
í fóstureyðingu.“
að kyngja þessu jafnrétti. Hins vegar finnst
mér margt íslenskt kvenfólk hafa náð að
notfæra sér jafnréttisbaráttuna listilega
vel.
SB: Ég er nú af gamla skólanum og kann
betur við að fá að ráða ferðinni í þessum
efnum. Hún fengi mínus hjá mér.
Ég fer mikið út þegar konan mín er að
fljúga og þá er talið sjálfgefið að ég sé í
konuleit. Mér er líka oft boðið heim af
konum sem vita að ég er giftur en finnst
það ekki skipta neinu máli. Mér finnst
þetta óþægilegt og þetta hefur komið mér
á óvart.
SG: Mér finnst það spennandi og það
lýsir sjálfstæðri konu. Ákveðnar og sjálf-
stæðar konur eru miklu skemmtilegri og
hægt að tala við þær um meira en Hugo
Boss föt.
Er eltingaleikurinn það sem er
mest spennandi?
EH: Ég finn fyrir spennufíkni og því að
mig langar í sveiflu. Þó ég vilji vinna að
málunum með minni kærustu sakna ég
þessa þvælings og Ieitar að stelpum sem
maður stundaði svo lengi.
FE: Það er stundum eins og verði spenn-
ufall á eftir. Maður vildi stundum geta
smellt fingrum og látið konuna hverfa.
HG: Það er kannski tvískinnungur í
þessu svari, því við þykjumst viðurkenna
jafhrétti en það er gaman að eltingaleikn-
um ef við stjórnum ferðinni. Við viljum
ráða stefhunni. Svo er kannski ekkert gam-
an á eftir þegar sigur er unninn. Ég held að
það sé táloirænt fyrir mína kynslóð að vilja
upplifa spennuna og hlaupa síðan í burtu.
Fólk er farið að tala mikið minna saman,
það axlar minni ábyrgð og svona skot eru
auðveldasta leiðin út úr þessu. Þá stönd-
um við uppi með staðreyndir á borð við
52% hjónaskilnaði, í þessu allsnægtaþjóð-
félagi sem við viljum þó hafa og förum á
Hótel ísland eða í Þjóðleikhúskjallarann,
þar sem maður sér örvæntingarfulla leit á
báða bóga. Þar inni er kannski 80% fólks
sem er búið að vera í sambúð eða gift —
ffáskilið fólk. Þá finnst mér konurnar sýna
meiri ábyrgð — þær vilja fara í sambúð,
skapa börnum sínum öryggi en karlmaður-
inn rígheldur í eitthvað ímyndað ffelsi.
SB: Ég hef gaman af daðrinu. Annars
held ég að margar konur séu að leita að
þessu fjárhagslega öryggi þegar þær vilja
koma sér beina leið í sambúð aftur - og
aftur.
SG: Hann getur verið tvíræður. Það er
4.TBL1990 VIKAN 7