Vikan


Vikan - 22.02.1990, Qupperneq 8

Vikan - 22.02.1990, Qupperneq 8
spennandi fyrst að fá neitun en með aldr- inum eru stelpur oft að pæla í að negla mann með því að láta mann bíða í marga mánuði því eftir það er þetta hreinlega besta stúlka sem þú hefur kynnst og verið með. Ég er tortryggin gagnvart þessu á vissan hátt. Ef um langvarandi samband er að ræða þá skiptir kynlífið miklu máli en þetta er á við að svelta mann og fleygja svo í hann kexköku sem bragðast þá á við dýr- indis máltíð. Hvað finnst ykkur um blíðuhót á al- mannafæri? HG: Ég er alinn upp við mikla blíðu og snertingu en hrökk svo upp við að vera orðinn að ísköldum múr, svo mikið hafði maður bælt tilfmningar sínar. Ég var hætt- ur að geta tekið utan um fólk og ég held að fólk kunni jafhvel ekki að sýna hvort öðru eðlileg blíðuhót. Það kann ekki einu sinni að sýna börnunum sínum ástúð. SG: Það hallærislegasta sem ég sé er þegar slitnar ekki slefið milli fólks við næsta borð. Það er alger óþarfi þó mér finnist allt í lagi að haldast í hendur og vera svolítið rómó. EH: Mér finnst opinberir staðir ekki réttu staðirnir til blíðuhóta. Koss á kinnina er í lagi en ekkert mikið meira. að maður er búinn að rembast við að byggja upp þessa karlímynd sína er eitt- hvað sem á bara ekki að vera hægt. Um leið gat maður sagt tíu sinnum nei við stelpu á balli sem bara vildi dansa og það fannst manni allt í lagi. FE: Ég held maður muni gjarnan stað og stund þegar manni er hafhað — það var á Hótel Ísíandi, 29. nóvember 1987! ÖIl lendum við að vísu í því einhvern tíma að þurfa að sætta okkur við nei, en þegar það tengist tilfinningum á einhvern hátt verð- ur allt svo órökrænt. Maður missir jafnvel sjálfstraustið fyrir vikið. En svo er maður alltaf að leggja inn, því ef nógu víða er lagt inn er maður alltaf viss einhvers staðar. Svipað er þetta í hjónabandinu — menn eru að safna sér stigum. EH: Þetta kannast ég við ffá sjálfum mér. Maður var alltaf að leggja inn umsóknir. Á böllum lagði maður stöðugt inn. Það er hluti af óörygginu. Okkur vantar bara auðmýkt — við erum búnir að búa okkur til ímynduð stöðutákn og því meira sem menn gera af því og auka í sér hrokann, þess hærra verður fallið. Það er miklu auð- veldara að taka hlutunum ef maður reynir að losa sig aðeins við rembuna. SB: Við strákarnir ferðumst í eins konar ’úlfahóp’ og hver hvetur annan. Þess vegna Um persónulegar spumingar? FE: Ég virti þá stúlku sem spyrði hvort ég væri með einhverjar sýkingar þó slík spurning kæmi kannski dálítið flatt upp á mann. Það ætti líka að vera eðlilegt að spyrja um getnaðarvarnir en málin eru sjaldnast rædd. HG: Mér fyndist hún sýna ábyrgð með því að spyrja. Ef hún vill drífa ykkur í sambúð? SG: Það fer alveg eftir tilfinningunum til hennar. EH: Það myndi fæla mig frá alveg um leið ef þessi staða kæmi upp eftir nokkrar vikur. Það er hreinlega svo ofsalega snemmt. Þó ég væri hrifinn af henni myndi ég vilja gefa málunum meiri tíma. Um höfnun? HG: Að fá „nei“ frá einhverri stelpu eftir er auðveldara, þó það komi höfnun, að slá öllu upp í grín með hinum í hópnum. En um leið og einhver hafnar manni fer mað- ur inn í sig og byrjar að hafna sjálfúm sér líka. Á hinn bóginn getur höfnun líka virk- að hvetjandi. Um frelsi? HG: Ég er frjáls en ég þarf að sætta mig við það á hverjum einasta degi — því í rauninni vil ég það ekki. En ég sé heldur ekki hvaða erindi ég ætti á Hótel ísland á laugardegi ef ég væri í sambúð. Ekki ætla ég að drekka, vinina get ég hitt heima, ætla ég kannski að fara að halda framhjá? Ef það er sú löngun sem er að toga mig þarna inn- eftir, þá er ég heldur ekki fær um að vera í neinni sambúð. SB: Ég hef fengið mikla gagnrýni fyrir að 8 VIKAN 4. TBL 1990 fara út að skemmta mér þegar konan er í burtu í 3—4 daga vegna starfsins og mér leiðist einum heima yfir sjónvarpinu, þó svo traust ríki milli okkar hjónanna. Ég gæti líka verið í nístandi óvissu heima þeg- ar hún er í burtu, um að nú væri hún að halda framhjá mér, en ég gæti samt engu breytt í því sambandi. Við verðum einfald- lega að treysta hvort öðru. Um að vera einni konu trúr til ævi- loka? SG: Auðvitað er það til. Með aldrinum nennir maður kannski ekki að standa í miklum skiptum en þá er líka sú hætta fýr- ir hendi að maður sé farinn að gera mála- miðlanir. En prófsteinninn á sambandið kemur eftir tilhugalífið, þegar í Ijós kemur hvort tengslin við viðkomandi konu eru það náin að þau geti haldið áfram að vera skemmtileg. EH: Það er nú eiginlega draumurinn að vera trúr og vilja það. Að maður vilji halda í það sem er fyrir hendi og reyna að gera sem best úr því frekar en að vera að hringla í öðru. Við vitum að það er álag á taugakerfið og því fleiri þess meira rugi. Er ógnvekjandi að binda sig? Einn úr hópnum: Ég bað einu sinni „Ég hef gaman af dadrinu.“ „Kúltúrsjokk að komast að því hvernig siðgæðið er orðið.“ „Kvenfólkið orðið sá aðilinn sem sækist eftir bólfélaga fyrir nóttina — og engu öðru.“ stúlku með dýfu, blómum og konfekti. Hún sagði „já“ á rómantískan hátt — og þá hljóp ég. EH: Já. Ég flutti inn hjá kærustunni um daginn og það skapaði töluverða spennu og pælingar. En við erum ekkert að fara að fjárfesta saman strax. HG: Mér litist vel á að binda mig. Ég hef verið að vinna að því undanfarin ár með því að sættast við sjálfan mig. Fyrst fyrir svona tveimur árum tel ég mig hafa orðið tilbúinn í sambúð. Til að geta deilt lífi með öðrum er frumskilyrðið að mér líði vel með sjálfum mér. Ég er margbúinn að reyna að kasta mér í fangið á einhverjum kvenmanni og hálfþartinn væla um að hún færði mér einhverja hamingju, þó ég hafi ekki þorað að segja það, til að vera elskað- ur og elska. En í dag tel ég mig sæmilega í

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.