Vikan - 22.02.1990, Blaðsíða 9
stakk búinn til að framkvæma þetta. Áður
var ég alltaf að reyna að breyta öðrum en
ekki einu sinni með orðum, heldur þegj-
andi. Fyrsta kærastan mín mátti helst ekki
vera í svörtum sokkum en ég sagði henni
það ekki. Ég lét það ffekar pirra mig í þrjú
ár.
FE: Þegar ég finn grilllyktina á sunnu-
dögum vildi ég gjarnan vera þarna inni en
ég veit ekki... Ég býst við því að ef ég yrði
ástfanginn þá vildi ég binda mig. Ég er ekki
að segja nei.
SG: Nei. Maður bindur sig ekki bara til
að binda sig. En ég er ekki með neitt tíu
ára plan í gangi.
Hvaða kosti mun stúlkan ykkar
hafa?
EH: Geðgóð, skemmtilega kímnigáfu,
mjög kvenleg, fagmannleg og hún er heið-
arleg. Svo hefur það verið það fyrsta sem
ýtt hefúr mér frá kvenfólki ef þær hafa ætl-
að að hengja sig um hálsinn á mér og
missa alfarið sinn eigin persónuleika.
FE: Heillandi kona finnst mér vera sú
sem er sjálfstæð og hefur sín eigin áhuga-
mál. Svo finnst mér að hún eigi að virða
rétt mannsins síns til að hafa skoðanir og
móta sitt líf, ef það ekki truflar hennar líf á
neinn hátt.
HG: Gagnkvæmt traust er mikilvægt,
sömuleiðis gagnkvæm virðing. Þetta verð-
ur að vera í reynd, ekki bara í orðum eins
og hér. Ég held ég sé að leita að allt öðru
vísi konu í dag en ég var að fyrir 20 árum.
Ég er miklu frekar að leita að mjög traust-
um vini en einhverri dúkkulísu. Ég er að
tala um félaga sem er tilbúinn að deila
með mér bæði sætu og súru og ég með
henni.
SB: Ég og konan mín erum mjög góðir
félagar og það er tvímælalaust það mikil-
vægasta í okkar sambandi. Við höfum ffá
upphafi verið það góðir vinir að við getum
talað saman og það er líklega ein ástæðan
fýrir því að við erum búin að vera saman í
18 ár.
SG: Sjálfstæð og sjálffi sér nóg, hafi sín
áhugamál, vona að hennar starf sé jafh
mikilvægt og mitt starf er mér, að hún
verði ekki kona sem siglir bara í kjölfari
mannsins síns. Ef við fáum bæði að hitta
annað fólk og njóta okkar höfúm við um
eitthvað annað að tala en börn og húsgögn
þegar við hittumst. Ég vil ekki finna að ég
sé henni eitt og allt og hún láti sér það
nægja.
Að vera piparsveinn til æviloka?
EH: Það finnst mér ekkert sniðug
hugmynd. Allir vilja gefa og þiggja ástúð
og fai maður ekki að gera það á einhvern
hátt held ég að þetta verði voðalega sælu-
snautt líf.
FE: Það held ég væri ömurlegt. Hins
vegar finn ég að ég er með alla varnagla.
Ég hef gengið í gegnum skilnað og líka
upplifað að stúlka sagði við mig eftir sex
mánaða samband okkar á milli: Hver ert
þú eiginlega, Friðjón?
HG: Ég held það sé mjög dapurlegt. Ég
held að öllum sé nauðsynlegt að eiga
traustan vin til að deila sínu lífi með. Svo
er ég allt of forvitinn til að pipra, ég verð
að prófa það að gifta mig.
SG: Ef maður gæti verið nógu geggjaður
til að vera einn og þá helst í einhverjum
vita, gæti verið að það gengi upp. En ætti
maður ekki því betri vini yrði maður ef-
laust mjög einmana í borg.
Um að vera sá sem ræður í sam-
bandlnu?
EH: Ég hef rætt þetta við alhörðustu
píur og ein sagðist alltaf leita að gæjum
sem væru örlítið ráðríkir.
HG: Mér heyrist margar ungar stúlkur
dreyma um gamla mynstrið — hún heima
með nokkur börn og karlmaðurinn sterk-
ari aðilinn. Ég sé ekkert neikvætt við það
ef kona vill vera heima og fyrirvinnan get-
ur skafiað nóg. Ef ég ætti að velja í dag, þá
þætti mér vænt um að konan mín yrði
heima ef hún óskaði þess sjálf — sérstak-
lega ef fleiri börn ættu eftir að koma til. Ég
held að það finnist því miður mörg börn
sem ekki var tímabært að kæmu í heiminn,
einmitt vegna þessa rembings í þjóðfélag-
inu. Það er alls ekki pláss fyrir börn inni í
þessu gegndarlausa lífsgæðakapphlaupi.
Um kvennabaráttuna?
HG: Kvenremban er orðin þannig að
ungar stúlkur lenda í vandræðum ef þær
hafa ekki metnað í að vinna úti „eins og
„Ég er á móti því að
líta á konur sem
varaskeifur þar til
hin eina rétta
birtist."
„Að fá „nei“ frá
einhverri stelpu er
eitthvað sem á
bara ekki að vera
hægt.“
„Ég er allt of
forvitinn
til að pipra.“
hinar“. Þær kæra sig ekki allar um að vera
verktakar.
SG: Hún á rétt á sér en ég réði hiklaust
karlmann fram yfir konu í ábyrgðarstarf,
væri ég atvinnurekandi vegna þess að það
lendir undantekningarlaust á konunni að
vera heima með börnin þegar þau koma
til, en karlmaðurinn heldur sínu starfi
áfram. Sumir segja að konur ráði öllu bak
við tjöldin en láti menn halda að þeir ráði.
EH: Mér finnst hún oft ganga út í öfgar.
Karlmenn eru miklu árásargjarnari verur
en kvenfólk og þeir árásargjarnari eiga oft
auðveldara með að fá sínu fram. Ég meina,
það er eðlismunur, það er engin spurning.
Eru íslenskar konur harðar í leit-
inni að maka?
HG: Ég er tiltölulega feiminn í þessum
efnum þó ég sé það ekki í mínu starfi. Ég
er feiminn að vera bláedrú að vaða á kven-
fólk á dansstöðum og kynna mig og spjalla
við þær. Það er svosem allt í lagi því þegar
maður er í brennivíninu er nóg af sýndar-
mennskunni og hrokanum. Um daginn
nam ung stúlka, ódrukkin, staðar fyrir
framan mig og sagðist bara vilja kynnast
mér. Fyrst varð ég skíthræddur og svo
fannst mér þetta sniðugt. Þessi kynslóð er
miklu opnari og einlægari en við þessir
ungu miðaldra popparar.
SG: Mér finnst fólk binda sig allt of
snemma hér. Svo er strax farið út í þessa
baráttu um að eignast íbúð. Byrja að búa í
kjallaranum hjá foreldrunum, svo fer hann
í háskólann og hún að vinna hlutastarf því
hún þarf að vera með barnið líka og þetta
eru bara krakkar sem eru að verða fúll-
orðnir allt of snemma.
EH: Ég veit ekki en hins vegar hafa ís-
lenskar konur miklu meiri kjark heldur en
til að mynda Kaliforníustúlkur, því ein-
hleyp íslensk stúlka sem verður ófrísk fyrir
slysni fer ekki sjálfkrafa í fóstureyðingu en
það gera þær í Kaliforníu. Aðrir möguleik-
ar eru varla ræddir þar.
SB: Ég var lítið úti á lífinu í nokkur ár og
það var hálfgert kúltúrsjokk að komast að
því hvernig siðgæðið er orðið. Ég held að
í dag sé auðvelt fyrir hvaða mann sem er,
sem vill komast uppí hjá stúlku, að verða
sér úti um það. Það er eins og kvenfólkið
hafi tekið að sér það fyrrverandi karlahlut-
verk að vera sá aðili sem sækist eftir ból-
félaga fýrir nóttina og engu öðru.
Er vinna að vera í föstu sambandi?
Allir: Það er vinna en hún getur verið
mjög skemmtileg. Ef þetta á að vera alvöru
samband þá hlýtur það að vera vinna.
SG: Það fer eftir stúlkunni. Ef hún er
sjálfstæð og vinnur úti erum við kannski
miklu meiri vinir, getum sýnt hvors annars
starfi áhuga og þá er þetta bara skemmti-
leg vinna ef hægt er að flokka það undir
vinnu. En ef hún er alltaf að bíða eftir þér
og að þú gerir eitthvað með henni þegar
þú hefúr tíma þá er vinna að reyna að hafa
4. TBL 1990 VIKAN 9