Vikan


Vikan - 22.02.1990, Blaðsíða 12

Vikan - 22.02.1990, Blaðsíða 12
MEÐ FRÆGU FOLKI Arnþrúður ræðir við „ljúflinginn“ Cliff Richard á SAS hótelinu í Osló. Þar tók hún viðtal við draumaprins unglingsáranna, strákinn sem heillaði hana í kvikmyndinni Summer Holiday norður á Húsavík í þá gömlu góðu daga. Arnþrúður Karlsdóltir um Cliff Richard: „Birtist mér sem afar rólegur og yfirvegaður TEXTI: ÞORGEIR ÁSTVALDSSON Sumarið 1985 stundaði Arnþrúður Karlsdóttir háskólanám í íjölmiðlun í Osló. Hún var auk þess frétta- ritari Ríkisútvarpsins um tíma og sendi heim fréttapistla um gang mála í Noregi. Um þetta leyti gekk mikið á í Suður- Afríku vegna aðskilnaðarstefh- unnar þar í landi og voru margir heimsþekktir lista- menn, sem unnið höfðu í Suð- ur-Affíku, settir í bann víða um lönd og látnir gjalda þess með ýmsum hætti. Einn þeirra var Cliff Richard sem kom í tví- gang til Noregs þetta sumar. Komur hans vöktu mikla at- hygli í Noregi, ekki síst vegna þessa. Arnþrúður var ásamt mörgum öðrum blaðamönn- um á Fornebu-flugvelli þegar Cliff ienti. Hún man það eins og það hefði gerst í gær. „Þótt maður væri þarna í há- alvarlegum erindagjörðum að afla frétta til handa íslenska ríkisútvarpinu blundaði óneit- anlega í mér spenningur að sjá og hitta hetjuna. Hann var nú einu sinni mín „leikaraást" á táningsárunum. Maður gleym- ir ekki hrifliingunni og gæsa- húðinni sem maður fékk þegar Cliff steig upp á Akrópolis-hæð og söng „Summer Holiday" í bíóhúsinu á Húsavík forðum daga. Ætli ég hafi ekki verið tólf ára þá og það var engin spuming hver var „aðal“ í myndinni. Svo vom myndirnar af honum upp um alla veggi heima. Þegar hann birtist þarna á Fornebu-flugvelli, klæddur í íþróttagalla, mddust þessar minningar ffam í huga minn og ég var svo upptekin af hon- um og hugsunum mínum ffá því í gamla daga að ég heyrði varla þegar hann svaraði okkur blaðamönnunum, meðal ann- ars um Suður-Afríku, aðgerð- irnar gegn honum og skoðanir hans á þeim. Ég hitti svo Cliff seinna um sumarið á svonefndri Momar- ed-hátíð rétt utan við Osló þar sem margar stjömur vom samankomnar. Þá var ég í fylgd með norskum útvarpsmönn- um frá NRK (norska ríkisút- varpinu). Það var undarlegt að vera í návist hans - svona er nú gmnnt á barninu í manni — í hófi sem var haldið eftir há- tíðina. Það var unnin dagskrá um hann og vinsældir hans gegnum tíðina fyrir norska út- varpið og var vel að því staðið og honum gerð sómasamleg skil. Ég notfærði mér þessi sambönd og fékk síðar hjá honum einkaviðtal á SAS- hótelinu í Osló. Það var þó ekki auðfengið þar sem með honum er jafhan her af örygg- isvörðum og agentum og þeir spurðu mig ítarlega hver ég væri, um tilganginn með við- talinu og svo ffamvegis. Þeir drógu mig líka á svarinu, sjálf- sagt til að kynna sér vel alla málavöxtu. Svo loksins kom græna ljósið. Cliff tók vinsamlega á móti mér og birtist mér sem afar rólegur og yfirvegaður maður. Hann var ljúfúr, einlægur og hlýr að tala við. í fyrstu var hann var um sig þegar hann svaraði spurningum mínum enda margbrenndur á slúðr- inu og útúrsnúningum blaða- manna. Hann var auðheyrilega bitur út í það allt saman og sér- staklega Suður-Afríkumálin sem hann hafði orðið fyrir barðinu á. Þegar hann ræddi þau hækkaði hann róminn og talaði af miklum ákafa. Hann taldi sig órétti beittan og færði rök fyrir því. Hann var vel að sér í heimsmálunum og hugs- aði greinilega mikið um þau. Hann vill láta gott eitt af sér leiða og kom inn á trúmálin í samtali okkar. Þau notar hann með ýmsum hætti í söngnum og það gefúr honum mikla lífs- fýllingu. Um langan og litríkan feril sinn sagði hann: „Meðan einhver nennir að hiusta á mig held ég áffam að syngja." Hann er enn að heyrist mér og hon- um fer fram ef eitthvað er. Um ísland vissi hann lítið sem ekkert. „Það er land sem ég hef aldrei komið til en lang- ar að koma til. Þau cru ekki mörg eftir á jarðarkringlunni.“ Eftir tveggja klukkustunda samtal yflrgaf ég hótelið á sama hátt og ég kom, i fýlgd með fílefldum lífvörðum sem voru í laginu og útliti eins og Yul Brynner og Kojak. Ég var montin af að hafa hitt sjálfan Cliff Richard og rætt við hann. Hann hafði bara ekki elst um eitt ár ffá því ég „kynntist" honum í Húsavíkurbíói fyrir tuttugu og fimm árum — sami sæti ljúflingsstrákurinnsegir Arnþrúður hlæjandi. „Svona í alvöru, hann er í mínum huga effir samtalið vel upplýstur og einlægur hugsandi maður og laus við allt dramb og yfirlæti. Alltaf stendur maður sjálfan sig að því að halda stjörnurnar vera eitthvað öðruvísi en við hin. Þegar öllu er á botninn hvolft eru þær velflestar ósköp venjulegt fólk - það er mín skoðun. Ég setti saman alllanga dagskrá með Cliff Richard fyrir íslenska ríkisútvarpið með þessu langa viðtali klipptu milli laga. Af margslungnum og flóknum ástæðum var þessi þáttur aldrei settur á dagskrá - ekki ennþá að minnsta kosti,“ segir Arnþrúður Karlsdóttir og glottir. □ Hér heldur Þorgeir Ástvaldsson áfram að segja frá kynnum íslenskra aðila af heimsfrægu fólki. í síðasta tölublaði sagði frá kynnum Sveins Guðjónsson- ar tónlistarmanns af Fats Domino og Jóns Ársæls Þórðarsonar af leikaranum Sylvester Stallone. 12 VIKAN 4. TBL. 1990
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.