Vikan


Vikan - 22.02.1990, Síða 13

Vikan - 22.02.1990, Síða 13
MEÐ FRÆC5U FOLKI Þorgeir Áslvaldsson um Woolfrman Jack: „VAR KOMINN í HAM LÍKT OG MIDILL í TRANSI" Hinn frægi útvarps- maður Wolfrnan Jack kom hingað til lands sumarið 1987 í boði útvarps- stöðvarinnar Stjörnunnar. Áður en útvarpsstöðvum fjölg- aði hér á landi höfðu margir kynnst þáttum hans í Kanan- um og kannski ekki síst í Graff- iti-kvikmyndunum þar sem hann lék sjálfan sig. Hann féll vel inn í þann tíðaranda sem þar er sagt firá, skólaástir í Bandaríkjunum á dögum gamla rokksins. „Úlfurinn" kom hingað um verslunar- mannahelgina og var með þætti á Stjömunni og kom fram á þjóðhátíðinni í Eyjum um sömu helgi. Greinarhöf- undur er einn þeirra sem kynntust honum lítillega með- an hann stóð við hér á landi. Jack var afar hægur og ró- legur náungi sem vildi hafa sitt á hreinu en þægilegur t um-, gengni og laus við dramb og yfirgang. Hann talaði lágum rómi, allt öðruvísi en hann birtist í þáttunum. Það kom í minn hlut að hafa formála að þætti hans á Stjörnunni. Okkur þótti ekki við hæfi að þýða jafnóðum það sem fram fór enda hefði það eyðilagt fram- komu hans, rétt eins og þýða ætti leikrit, sem flutt væri á annarri tungu, með framrní- gripum. Sjálfskipaðir varð- hundar móðurmálsins voru að víus ekki sáttir við þetta eins og fram kom í blaðaskrifum eftir á en eftir útskýringar og rökstuðning létum við það af- skiptalaust þótt einhverjum fyndist skrítið að heyra úlfinn vera með útvarpsþátt á ensku. Úlfurinn er eins og hver annar leikari sem er að leika sitt hlutverk af atvinnu- mennsku í þúsundasta skiptið. ■ Þegar ég hafði lokið inn- ganginum að umræddum þætti varð mér litið á hann og hann var kominn í ham, líkt og mið- ill í transi. Augu hans voru fjar- ræn og hann barði í borðið í takt við lögin, stappaði niður fótum og gólaði eins og úlfur. Þess á milli hvíslaði hann og hló lævíslega í viðtölum við þá sem hringdu inn og var virki- lega gaman að heyra hvað hlustendur voru vel með á nótunum og hvað þeir þekktu hann vel. Það kom honum sj álfum á óvart og hann færðist í aukana við það. Það var í raun ekki hægt að vera nálægt hon- um á meðan á þættinum stóð. Að þættinum loknum var karl- inn eins og sprungin blaðra, bað um greip að drekka eða sódavatn og varð eðlilegur eft- ir að hann hafði kastað af sér úlfsgervinu. Hann var gjörsam- lega búinn, rétt eins og hann hefði verið í keppni í lang- hlaupi. Þegar Stjörnumenn fóru með hann á þjóðhátíð í Eyjum varð hann agndofa af undrun yfir öllum þeim fjölda sem þar var að skemmta sér ogþað heldur betur. — Hvaðan kemur allt þetta fólk? spurði hann. — Þvílíkt fjör og gleði hér á pínu- lítilli eyju lengst norður í Atl- antshafi. Hann hafði aldrei séð neitt þessu líkt og hefur þó kynnst ýmsu um ævina. Hann var undrandi yfir því hvað margt var hér að sjá og upplifa þótt honurri gæfist ekki tími til útsýnisferðalaga í stuttu stoppi hér á landi. Hann vissi ekki hvar ísland var áður en hann kom hingað, hafði að vísu einhverntíma heyrt að hér væri brotabrot úr banda- ríska hernum. Hannfór héðan undrandi og ánægður í senn. Hann hefur ákveðnar skoðanir á fjölmiðlum og þeim mönn- um sem við þá vinna enda al- inn upp í landi fjölmiðlanna og þekkir grjótharða samkeppn- ina. Hann sagði hinn firæga Casy Kasem, útvarpsrödd Bandaríkjanna númer eitt gegnum árin, var skíthæl og sjálfselskupúka sem svifist einskis til að græða sem mest. Margan fábjánann og mont- rassinn hafði hann líka hitt úr sjónvarpsbransanum. Það sagði hann okkur reyndar ekki i óspurðum fréttum, hann kynntist því lítillega hér á landi — „af öllum stöðum,“ eins og hann sagði. Nýríkir og ný- frægir eru manna verstir í sam- skiptum og varasamastir. □ „Úlfurinn“ hitar upp fyrir útvarpsþátt á Stjömunni. Með honum er Þorgeir Ástvaldsson, sem segir „úlfinn“ hafe follið í trans og látið mikið á meðan á útsendingu stóð. Han var eins og spmngin blaðra eftir þátt og allur annar máður - rétt elns og leikari eftir að hafe skilað hlutverki sínu í þúsundasta skiptið.

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.