Vikan


Vikan - 22.02.1990, Side 15

Vikan - 22.02.1990, Side 15
SKEmTANIR EIGA ÞAÐ EITT SAMEIGINLEGT AÐ VERA SKEMMTILEGIR var ekki færð upp nema ein revía eítir að ég kom fram fyrst. Það má segja að ég hafi verið heppinn að koma inn á svið á þess- um tíma þegar það var pláss fyrir nýja strauma. Breyttir tímar Tímarnir breytast og mennirnir með — og þar með húmorinn. Það fer eftir tíðar- andanum að hverju er hiegið og tæknin hefur sitt að segja. Allan sjöunda áratuginn má segja að Ömar hafi verið allsráðandi meðal íslenskra skemmtikrafta. Svo kom sjónvarpið til sögunnar, mesti áhrifavaldur á íslenskt þjóðlíf síðan á árum seinni heimsstyrjaldarinnar. Margar stjörnur hafa orðið til í gegnum sjónvarpið og orðið hetjur þjóðarinnar. Laddi: Sjónvarpið kom okkur Halla á framfæri. Kom okkar húmor til skila, það er engin spurning. Það var einhvern veg- inn óvart sem við duttum inn í þetta. Skemmtiþættirnir „Ugla sat á kvisti" urðu til þess að það var farið að hringja og spyrjast fyrir um þessa sprelligosa. Rétt eins og Ómar á sínum tíma komum við inn á sviðið á réttum tíma og á réttum stað. Ómar: Við Laddi vorum samstarfsmenn í sjónvarpinu á þessum tíma og voru þeir Halli og Laddi kallaðir Kargobræður. Þeir voru duglegir við að bera allt sem við kom sviðsmyndum og það var tilviljun að þeir voru fengnir í smáhlutverk margs konar. Það þurfti reyndar ekki glögga menn til að sjá að þeir voru fyndnir. Höfðu hæfileika sem svo síðar kom á daginn. Það var hins vegar í innanhússfótboltanum sem Laddi kom upp um sig. Hann hefur ótrúlegt vald yfir líkamanum, ásamt leikrænum tilburð- um sem gerir hann að ffábærum grínara. Hann hefúr þetta í sér og enginn í veröld- inni sem ég hef kynnst er jafh ótrúlega heppinn á sviði. Það er með ólíkindum. Til marks um það er atvik sem ég gleymi aldrei. Við vorum að leika innan- hússfótbolta í hálfleik í körfúboltalandsleik og okkar hlutverki var lokið. Albert Guðmundsson sem lék með okkur hafði skorað körfu með hægra fæti frá vítateigs- punkti við mikinn fögnuð áhorfenda og við gengum til búningsherbergja þegar ég hendi boltanum til Ladda sem var inn á miðjum velli og kalla um leið „takt’ann Laddi“. Þetta dýr stekkur upp með fætur í splitt, tekur tuðruna á hnéð. Boltinn sveif í löngum boga og þegar hann small í gegn- um net körfunnar var Laddi búinn að hneigja sig og veifa til áhorfenda. Þakið ætlaði af íþróttahúsinu og fagnaðarlátum ætlaði aldrei að linna. Laddi: Já svona geri ég bara einu sinni. Aldrei aftur. Það kemur eitthvað yfir mig sem ég get ekki útskýrt. Einhvers konar heppni. Við köllum þetta grís á góðri ís- lensku eða algjört grís. 4. TBL. 1990 VIKAN 15

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.