Vikan


Vikan - 22.02.1990, Page 19

Vikan - 22.02.1990, Page 19
STJORMUMERKm Ég held að íslendingar treysti ekki fólki sem ekki er í vatnsmerkjum. Vatnið er táknrænt fyrir tilfinningar og okkur finnst lokað tilfinninga- ríkt fólk vera traustvekjandi. Aftur á móti mega bogmenn, eins og Hermann Gunnarsson, skemmta okkur en ekki stjórna landinu. Við erum til dæmis neikvæð í garð ljóna, tölum niðrandi um þeirra húmor og yfirborðsmennsku, samanber Rósu Ingólfs, Ingva Hrafn og Heiðar Jónsson; við erum hrædd við eldinn. Á móti straumnum Flestir fiskar kæra sig koll- ótta um stöður, vald og forystu og þeir laðast heldur ^ FISKAMERKIÐ ekki að peningum Þetta fólk gerir sér betur grein fyrir því en flestir aðrir að peningar eru ekki varanleg gæði. Það er algengara að þetta fólk láti berast með straumnum en að það syndi á móti honum en fiskurinn verður aldrei hamingjusamur nema hann berjist móti straumi lífsins. Það að taka auðveldari kostinn er gildra fyrir fólk í þessu stjömumerki. SÍSr - segir Jón Baldvin fiskur. Sjó nœstu leynir hættulegum öngli: Lífi, Eg er ekki fljóttekimra í Ikynnum sem eytt er til einskis. Þó fiskurinn sé ekki skaplaus er ekki margt sem fær hann til að bregðast við með ofbeldis- aðgerðum. Yfirleitt mun fisk- urinn geispa, brosa töffandi brosi og horfa samúðarfullum augum á þá sem eitthvað em að æsa sig. Rósrauð gleraugu Fiskarnir fæðast með þörf fyrir að horfa á veröldina í gegnum rósrauð gleraugu. Fiskurinn vill helst af öllu fá að lifa í sinni eigin votu veröld þar sem allir eru fallegir og all- ar athafnir dásamlegar. Ef raunveruleikinn verður of ljót- ur flýr fiskurinn á vit dag- drauma og allt of margir fiskar leitast við að drekkja sorgum sínum í áfengi. Það deyfir þá á þægilegan hátt með falskri ör- yggiskennd. Þó hver einasti fiskur sem fær sér líkjör með kafiBnu helli sér ekki endilega út í ofiieyslu áfengis eru lík- urnar á því samt sem áður meiri en þær ættu að vera. Fiskarnir verða að gera sér grein fyrir því að þeir eiga að þjóna mannkyninu á einhvern hátt og sneiða hjá veraldlegum gæðum. Fiskurinn Einstein kom fram með lögmál fyrir nýjum heimi. Risastórt leiksvið Allir fiskar líta á lífið sem eitt risastórt leiksvið. í augum fiskanna er tilveran öll óáþreif- anleg og hverful. Þrátt fýrir eðlislæga feimni fiskanna verða þeir oft bestu leikarar sem sögur fara af. Það gerist þó aðeins ef þeir berjast við óbeit sína á erfiðisvinnu þeirri sem liggur í þrúgandi æfingum og stungum gagnrýnenda. Undarlegasti hæfileiki fisks- ins er að geta vikið öllum per- sónulegum tengslum til hliðar og séð gærdaginn, líðandi stund og morgundaginn sem eina heild. Hann getur einnig verið jafh latur og friðsældar- legur og nautið, býr yfir orð- snilld Merkúrs (tvíburanna) og ■ ljúfum þokka Venusar (vogar) og hjá fiskinum bland- ast þetta, allt hinni dularfullu skarpskyggni sporðdrekans. Þegar þú heftir meðtekið þetta, finnst þér þá nokkuð skrítið að vinir þínir í fiska- merkinu séu stundum hrein ráðgáta? Krókódíll eða Bláskjár? Börnunum mun finnast hann einstaklega skemmtileg- ur karl. Hann fer mjög líldega með þeim í siglingar, sund og æfir með þeim köfun. Hann mun leika grimman krókódíl og Bláskjá litla þar til börnin halda að þau hafi fundið lifandi ævintýrabók í litum. Þú sérð um að refisa þeim en hann mun hlusta á vandamál þeirra. Þú sérð um að þau séu hrein en hann um að örva huga þeirra. Þetta ætti að takast bráðvel. Biðröð Biðröðin byrjar þama hægra megin. Kannski eru ekki til nægar fiskakonur fyrir hvem einasta karlmann en það er ekki nægileg ástæða til að troðast. Þú verður að bíða þar til röðin kemur að þér og vona það besta. Það er eins gott að viður- kenna það strax að hin nútíma- lega, frjálsa kona hefur orðið til þess að eiginleikar stúlkna í fiskamerkinu em enn meira metnir en áður. Hin hæverska, fallega og hjálparvana Neptúnusarkona þarf að nota stóra lurka til að berja frá sér karlmenn. Kona í þessu stjömumerki hefur ekki eina einustu leynda þrá til að stjóma maka sínum. Það eina sem hún krefst af honum er að hann vemdi hana og þyki vænt um hana. Fiskakonan er sannfærð um að maki hennar, kærasti, bróðir, faðir eða hvaða karlmaður sem er, sé fer um að sigra allan heiminn með 5IUU annarri hendi og ekki þarf mikið af þessu trúnaðartrausti til að sannfera þá um það sama. Við vitum jú hvemig karlmenn em. Svo ertu hissa á því að hún skuli vera svona vinsæl! Hún er kvenleg fram í fingurgóma og því er hætt við að of vægt sé tekið til orða þegar sagt er að karlmenn laðist að henni eins og býflugur að hunangi. Eftir stuttar samræður við hana sér maðurinn sjálfan sig fyrir sér liggja og hvíla sig í hengirúmi á fögmm sumar- degi þar sem enginn mun tmfla hann með nöldri. Hún mun aldrei hvetja hann til að flýta sér upp þjóðfélagsstigann því henni finnst sá staður sem hann er á núna algerlega full- kominn. Þarf ffekari útskýr- ingu á hvers vegna ekki er hægt að fá verri keppinaut í ástamálum en þessa konu? Hún verður ekki að skassi nema maður hennar sýni henni miskunnarlausa grimmd 4.TBL 1990 VIKAN 19

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.