Vikan - 22.02.1990, Síða 20
5TJÖRHUMERKII1
eða ef hann er mjög latur en
hver segir að grimmlyndur
eða latur maður eigi það ekki
skilið?
Bægslagangur
Stundum kemur fyrir að við-
kvæm kona í fiskamerkinu
verður bitur og syndir stans-
laust um með miklum bægsla-
gangi en hittir alltaf sjálfa sig
fyrir þegar hún reynir að flýja.
Lyf, áfengi og falskar tálsýnir
geta þá hamlað því að hún sjái
að hún má ekki beina sinni tak-
markalausu ást og samúð inn á
við til sjálffar sín.
En fiskakonan getur líka ver-
ið tilfinningalaus, slyng og villt
á sér heimildir. Einstaka fiska-
kona getur tekið upp á því að
fela feimni sína og auðsæran-
leika með því að þykjast vera
kjaftfor, veraldarvön eða
kuldaleg. Þetta er þó aðeins
brynja sem hún klæðist til að
fela öryggisleysi sitt fyrir for-
vitnum augum fólks sem
myndi veita henni hjartasár ef
hún gæfi því tækiferi til.
Dularfull, falleg
véfrétt
Hún hefur grímu fyrir hvaða
hlutverk og aðstæður sem vera
skal og þannig vill hún hafa
það. Hún fer eftir eðlisávísun
Erlingur Gíslason
Guðrún Á. Símonar
Gunnar Eyjólfsson
Ingólfur Guðbrandsson
Jón Baldvin Hannibalsson
Kristinn Sigmundsson
Pétur Gunnarsson
Valgerður Matthíasdóttir
Þorsteinn frá Hamri
Þórbergur Þórðarson
Mikhael Gorbatsjov
en hylur innsæi sitt. Hún er
jafh vitur — og óræð - og vé-
fféttin í Delfí. f ástum og starfi
er fiskakonan teygjanleg og
kemur sífellt á óvart. Hún er
harðari en hún lítur út fyrir að
vera en þarf að læra að þrosk-
ast án þess að vera öðrum háð
og að biðja um það sem hana
vantar.
Trúgjörn
og auðsærð
Hún elskar á allan máta, and-
lega, trúarlega, kynferðislega
og platónskt. Hún er ánægðust
þegar hún getur veitt öllum
sínum tilfinningum útrás. Hún
er í rauninni kröfuhörð, þó
hún virðist leita uppi elskhuga
sem bregðast henní. Hún gerir
sér alltaf fyrirffam hugmynd
um hvernig hinn fullkomni
elskhugi eigi að vera og þegar
þessi ímynd stenst ekki þá fyll-
ist hún reiði.
Þúsund og ein nótt
Fiskakonan nýtur þess að
láta drottna yfir sér en stefhir
um leið að því að hafa stjórn á
hlutunum. Hún vill að drauma-
prinsinn tæli hana á sem róm-
antískastan hátt og lætur karl-
manninn ráða en nær um leið
valdi yfir honum með því að
Victor Hugo
Ted Kennedy
Michelangelo
Liza Minelli
Rudolf Nureyev
John Steinbeck
Elizabeth Taylor
James Taylor
George Washington
Rex Harrison
vera ómissandi ambátt og
bandamaður líkt og Sjéresade í
Þúsund og einni nótt.
Göfgi
Þegar orka Neptúnusar rís
hæst er það í göfugri list sem
endurspeglar lífið og gefur
okkur þá tilfinningu að við
stöndum nálægt Guði. Listin
sem andlegur gleðigjafi er frá
Neptúnusi komin. Sömuleiðis
óeigingjörn ást, djúpur lífs-
skilningur, umburðarlyndi og
hjálpsemi.
Samruni
Neptúnus eyðir landamær-
um og hömlum og rýfur að-
skilnað. Fiskurinn Mikhael
Gorbatsjov var sá sem lagði til
að fjölflokkakerfið yrði tekið
upp í Sovétríkjunum. Þau við-
horf að allir séu jafh mikilvæg-
ir, hvort sem þeir teljast til
fjölskyldunnar eða eru ókunn-
ugir og viðleitnin við að eyða
einstaklingshyggju, eru frá
Neptúnusi. Áhrif Neptúnusar
eru mýkjandi en jafhframt ger-
ir hann allar línur óskýrar.
Jón Baldvin fiskur
Jón Baldvin Hannibalsson er
fiskur, feddur 21. febrúar
1939. Hann er verðugur full-
trúi fiskamerkisins; með sól,
tungl, Merkúr (hugsun) og
Júpíter í fiskum, Venus og rís-
andi merki í steingeit og Mars
(ffamkvæmdaorka) og mið-
himin í bogmanni. Til gam-
ans má geta þess að kona hans,
Bryndís Schram, er fedd í
krabbamerkinu og hefur einn-
ig sterkar afetöður í bogmanni.
Við lögðum nokkrar spurning-
ar um dæmigerð fiskaeinkenni
fyrir Jón Baldvin.
Fiskurinn er landamæralaus,
hann setur ekki upp veggi á
milli sín og umhverfisins:
Eftir að ég hætti störfum
sem agasamur og formfastur
skólameistari fór ég á togara.
Þar urðu fljótt tveir sjómenn
bestu vinir skólameistarans,
annar hét Valdi víðátta og hinn
Sesar. Nei, ég set ekki upp
víggirðingar milli mín og ann-
arra. „My home is my castle“
segja Bretar og dreymir um
víggirtan kastala með síki.
Þannig hugsa þeir sem leita ör-
yggis, forðast áhættu. Ég er
ekki fljóttekinn í kynnum.
Gæti virst einrænn, lokaður
(montinn, hrokafullur í augum
annarra). Ég tek undir með
þeim sem sagði: Þegar ég er
einn er ég í góðum félagsskap.
En ég sækist líka eftir skemmti-
legum félagsskap og er þá ein-
lægur, opinskár og fyrst og
fremst hispurslaus.
Fiskurinn er ekki fordóma-
fullur: Ég er fordómafullur
gagnvart fordómum. Rasismi
er eitur í mínum beinum. Ég
sakna þess að sjá ekki gular,
rauðar, svartar og brúnar
manneskjur hér á götunum.
Mættu þess vegna vera rönd-
óttar.
Fiskurinn er viðkvæmur og
auðsæranlegur og getur sökkt
sér niður í þunglyndi: Nei,
þarna hefur stjörnuspekin eitt-
hvað brugðist. Ég er ekki við-
kvæmur (t.d. fýrir gagnrýni)
en hrifhæmur. Hins vegar líð
ég engum að níðast á mínum
nánustu og læt þá hart mæta
hörðu (sbr. þegar súkkulaði-
drengirnir á Stöð 2 sem þykj-
ast vera „töffarar" vildu koma
höggi á mig með því að hafa
æruna af konu minni).
Fiskurinn sækist ekki eftir
veraldlegum metorðum því
hann gerir sér grein fyrir því
að peningar eru ekki varanleg
gæði: Þarna ber ég aftur kennsl
á sjálfan mig. Ég sækist hvorki
eftir metorðum, upphefð eða
peningum. Ég sækist eftir völd-
um og áhrifum. Það á satt að
segja við um afar fáa stjórn-
málamenn í lýðræðisríkjum.
Flestir þeirra líta á það sem sitt
rétta hlutverk að gerast sendi-
menn eða umboðsmenn sér-
hagsmuna.
Fyrst þú sækist eftir völdum
hvemig myndir þú þá beita
valdinu ef þú værir einvaldur
einn dag?
Ég myndi nota tímann og
valdið til að leysa vandamál
sem lengi hafa verið í pall-
stöðu (vegna hagsmunatog-
streitu innanlands) og standa
þjóðinni fýrir þrifum. Til
dæmis: Að heimila innflutning
á ódýrum, verksmiðjuffam-
leiddum mat (íslenskur land-
búnaður mun lifa það af) að
hefja sölu veiðileyfa í áföngum
og tryggja þjóðinni þar með
réttmætan arð af þeirri auðlind
sem hún lifir á.
Þótt ég gerði ekki meira
þennan daginn, þá gæti ég
með glöðu geði hætt stjórn-
málavafstri og farið að lifa ein-
földu, fábrotnu og hamingju-
sömu lífi.
Heimildir:
Stjömumerkin, Linda Goodman
Hver er ég, Gunnlaugur Guðmundsson
Brynja Benediktsdóttir Frederic Chopin
Danfríður Skarphéðinsdóttir Albert Einstein
Hándel
20 VIKAN 4. TBL. 1990