Vikan


Vikan - 22.02.1990, Síða 23

Vikan - 22.02.1990, Síða 23
sem þeir auðvitað gera. Þá rek- ast á tveir ólíkir menningar- heimar og syndir seinni heims- styrjaldarinnar koma upp á yfirborðið. Það má segja að Svart regn sé gömul uppskrift. 1 msk. gæi sem er búinn að fá sig fullsaddan af kerfinu. 1 msk. vinur sem er myrtur fyrir framan nefið á gæjanum. 1 tsk. sæt stelpa (óvenju lít- ið í þessu tilfelli). Út í þetta er svo sett dágóð- ur slatti af visku um lífið og öllu hrært saman. En öll vitum við að það er ekki sama hver bakar þvi útkoman verður aldrei eins. í þessu tilfelli tekst bakaranum vel upp þó svo að þessi kaka verði ekki talin hans besta. Til þess er meðhöndlun eíhisins of hefðbundin. Barátta góðs og ills vegur aldrei salt og sigur hins góða er alltaf aug- ljós. Þessu er öfugt farið í Blade Runner og AJlen, þar sem Scott tekst að halda okkur á sætisbríkinni fram að enda- lokunum. Michael Douglas, sem er hér í sínu fyrsta hlutverki síð- an hann hlaut óskarinn fyrir Wall Street, skilar hlutverki sínu með sóma. Leikur hans er sannfærandi og hann hrífur áhorfandann með sér inn í þann óréttláta heim sem Nick lifir í. Douglas hafði mikið fyrir hlutverkinu og ferðaðist með leynilögreglunni um myrkra- einn drengjanna fremur sjálfs- morð. Sökin var auðvitað ekki Keatings heldur foreldra drengsins sem aldrei höfðu hlustað á óskir hans heldur alltaf sagt honum hvað hann átti að gera. Þau neita að sjá eigin sekt og Keating er rekinn. Upp frá sjálfismorði drengsins hættir myndin að vera um að „eignast daginn", uppræting á Félagi dauðu skáldanna hefct og skýrskotun Toms Schulman handrita- höfundar í kommúnistaveið- arnar í Bandaríkjunum á eftir- stríðsárunum (og raunar allar nornaveiðar) er augljós. Drengirnir í Félagi dauðu skáldanna eru teknir einn af öðrum inn til skólastjóra og neyddir til að segja að Keating sé ábyrgur fyrir dauða félaga þeirra, þó þeir viti að það sé ekki satt. Þeir sem líklegir þykja til að veita andspyrnu eru kúgaðir með andlegum vopnum. Það hjálpast allt að til að • Framleiðandinn og leikstjórinn Philip Kaufman (The Unbearable Lightness of Being) sækir aftur efni sitt til rit- höfundar að þessu sinni Frakkans Anais Nin. Nýja KVIKN' myndin er byggð á bókinni Henry og June og er um ævi bandaríska rithöfundarins Henry Miller (Tropic of Cancer) og konu hans. • Hinn margverðlaunaði þýski leik- stjóri Wim Wenders hefur tilkynnt hlutverkaskrá fyrir næstu mynd p sína, Till the End of the World. áflfe « Wenders segir þetta vera alveg ekta vegamynd (road movie). Leik- ararnir eru ekki af verri endanum, Robert Mitchum, Jeanne Morr- ÆE eau, Willem Dafoe (sem lék í mynd Olivers Stone, Born on the Fourth j (l . jv. of July) og kærasta Wenders, hún Solveig Dommartin (hlýtur að vera af íslenskum ættum). • Nú hafa kvikmyndagerðarmenn fengið nóg af krist- myndum og beina athygli sinni að Búdda. Leikstjórinn Bernando Bertolucci (sem nú er að taka myndina The Sheltering Sky með leikurunum John Malkovich og Bebra Winger) hefur í hyggju að mynda handrit Roberts Bolt (A Man for All Seasons, The Mission). Kvikmyndatökumaðurinn yrði þá Vittorio Storaro (The Las Emperor, Apocalypse Now) og tæknibrelluliðið frá Star Wars og Indiana Jones sæi um þá hliðina. Tækniliðið lofar svo sannarlega góðu en reynst gæti erfitt að finna mann í hlutverk hins harðsoðna Gautama Siddhartha. • Stuttu eftir að Maryl Streep til- kynnti að hún yrði ekki með í mynd inni Evitu var gerð hennar frestað. Þetta er ekki fyrsta áfallið sem myndin hlýtur því upphaflega hafði j framleiðandinn, Robert Stigwood, F fengiö Ken Russel (Music Lovers, - ' * China Blue) til að leistýra myndinni. ’ - : ® Þeir urðu ósammála um val Russ- ' \ )/+ ells á Lizu Minnelli í aðalhlutverkið svo Stigwood hætti við Russell og réð Oliver Stone. • Nú er allt á fullu í mynd Francis Coppola, The Godfather - The Continuing Saga, sem verið er að mynda í Róm. Andy Garcia (Black Rain), sem er á hraðri uppleið um þessar mundir, leikur aðalhlutverkið í myndinni sem á að kosta 30 millj- ónir Bandaríkjadala. Al Pacino, Di- ana Keaton og Talia Shire munu halda áfrm í hlutverkum fyrri mynda og Robert De Niro mun koma að- eins við sögu (dó ekki persónan hans, Don Vito Corleone, í Godfather II?). hverfi Harlem til að nálgast það. Senuþjófur myndarinnar er þó japanski leikarinn Ken Takakura sem er ein aðal- stjarnan í Japan þessa dagana. Hann hefur leikið í 198 kvik- myndum og Svart regn er sú þriðja ameríska. Þarna er á ferðinni athyglisverður dújett sem nær mjög vel saman. Hin hlutverkin renna framhjá átak- alaust nema kannski hlutverk japanska leikarans Matsuda sem leikur Sato, ungan og metnaðarfullan glæpamann sem svífct einskis. Myndatakan er í höndum Hollendingsins Jan De Bont (Die Hard). Lýsing hans er dramatísk og ekki ósvipup lýs- ingu Gordon Willis í mynd- inni Godfather, þar sem hálfu eða heilu andlit leikaranna eru hufin svörtu myrkri. Tónlist í myndinni er eftir Hans Zimmer, þann sama og hafði umsjón með tónlistinni í The Last Emperor og samdi tón- listina við myndina Rain Man. Það ætti að segja okkur nóg. Svart regn er fallega unnin mynd sem heldur manni við efhið. Kostir hennar liggja fyrst og ffernst í þessu óvenju- lega umhverfi sem myndin gerist í og þeim vandræðum sem sögupersónan lendir í þegar hann glímir við fólk hvers grundvallarhugsun stangast á við hans eigin. RR. gera Bekkjarfélagið að ein- um af þeim myndum sem sitja í manni lögnu eftir að poppið hefur gengið meltingarveginn. Lýsing Johns Seale er alltaf í samræmi við tilfinningalega ástandið í myndinni og handrit Toms Schulman er vel uppbyggt. Uppbyggingin er ekld óvenjuleg eða djörf en það eru efnistökin. Mennta- skólamynd sem í raun og veru fjallar um námið og námsefhið er óvenjuleg; það eru ekki að- eins skólastrákarnir sem kom- ast að því að Shakespeare, Whitman og Byron voru ekki svo leiðinlegir þrátt fyrir allt. Áhorfendurnir fá líka að kom- ast að því. Peter Weir (Picnic at Hang- ing Rock, The Year of Living Dangerously) er maðurinn sem hlýtur að fá mestan heið- ur. Hann er meistari frásagnar- lisatarinnar, fær um að alla þætti kvikmyndarinnar vinna saman að sínu erfiðasta mark- miði; að segja sögu á skemmti- legan og skýran hátt. Hann minnir um margt á John Ford (Stagecoach, The Grapes of Wrath, The Searchers, The Quiet Man). Það er ómögulegt að finna þá veiku punkta í myndum hans sem yfirleitt úir og grúir af í öðrum kvikmynd- um. Leikarar njóta sín undir stjórn Weirs. Linda Hunt í The Year of Living Danger- ously, Mel Gibson í Galli- polli, Kelly McGillis í Witn- ess og Harrison Ford í The Moskito Coast eru allt dæmi um skínandi framistöðu leikara. í Bekkjarfélaginu minnir Robin Williams (The World According to Garp, Good Morning Vietnam) okk- ur á að hann er ekki barasp- augari. Hann kemukr Keating til skila sem tilfinningaríkum manni sem er ástfanginn af líf- inu og listinni og vill að aðrir uppgötvi þessa ást líka. Ungu leikararnir (Robert Sean Leonard, Ethan Hawke, Josh Charles og Gale Sand- erson) standa sig hver öðrum betur. Þeir leika ólíka drengi sem hver á sinn hátt skilur orð Keatings og ákveða að eignast daginn. Allt leikur í lyndi þar til afturhaldsöflin kæfa lífcgleð- ina. En ekki alveg. Bekkjarfélagið er fyrsta flokks mynd hvemig sem á hana er litið. SigA. 4. TBL 1990 VIKAN 23

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.