Vikan - 22.02.1990, Síða 26
5PADOMAR
kunnur vegna árangursríkrar
meðhöndlunar hinna sjúku.
Hann varpaði fyrir róða miklu
af hefðbundnum læknisaðferð-
um þeirra tíma en notaði þess
í stað náttúrulyf, með góðum
árangri. Rannsóknarétturinn
íylgdist náið með athöfhum
Nostradamusar en gat lítið að-
hafst sökum þeirrar vináttu
sem hann naut meðal helstu
valdamanna ríkisins.
Á árunum milli þrítugs og
fertugs fóru forspárhæfileikar
Nostradamusar að koma í ljós.
Á þessum tíma hneigðist hann
til íhugana og tilbeiðslu og
varð æ oftar fyrir dulrænni
reynslu. Hann tók að ástunda
kaldeíska og assýríska töffalist
í þeim tilgangi að öðlast sýnir
og vitranir um firamtíðina og
atburði sem gerast munu. Á-
stundun þessa iðkunarkerfis
gerði honum kleift að komast í
snertingu við „mjög fíngerðan
eld sem veldur sýnum spá-
manna“. Þessi eldur minnir á
logann sem birtist yfir höfði
postula Jesú Krists og er tákn-
gervingur heilags anda.
Nostradamus staðhæfði að
spádómar sínir kæmu frá Guði,
knúðir af heilögum anda.
Skál full af vígðu vatni var
höfð á þrífeti fyrir framan
spámanninn. Síðan starði
Nostradamus íhugull á vatnið
uns sýnir af atburðum framtíð-
arinnar birtust fyrir hugskots-
sjónum hans. Nostradamus
studdist einnig við dulheyrn
því hann sá ekki einvörðungu
það sem verða mundi heldur
heyrði einnig hljóðin sem
tengdust atburðum framtíðar-
innar. Nostradamus skrifaði
síðan í ljóðum eða ferskeytlum
lýsingar á ffamtíðarsýnum
sínum.
Spádómsrit og
aðferðafræði
Nostradamusar
Fyrsta spádómsrit Michels
Nostradamusar, Les Prophet-
ies de M. Michel Nostra-
damvs, var gefið út í Lyon árið
1555. Ritið samanstóð af öld-
um eða köflum sem voru 100
ferskeytlur hver. Heildarútgáfa
spádómsrita Nostradamusar
kom út árið 1568 og hafði að
geyma samtals 1.164 spádóms-
vísur!
Þegar spádómsvísur Les
Propheties eru lesnar á ffum-
málinu verður hverjum manni
ljóst að Nostradamus lagði sig
í líma við að gera spádómsljóð
sín torskilin. Það gerði hann til
þess að vernda sig ffá rann-
sóknaréttinum. Þó að ljóðin
séu að meginstofni á ffönsku
þess tíma tekur orðaröð þeirra
oftar en ekki mið af latneskri
setningabyggingu. í annan stað
myndar Nostradamus oft á tíð-
um nýyrði sem eiga rót sína að
rekja til forngrísku eða latínu.
Mörg spádómsljóðanna geyma
auk þess orð úr fornffönsku.
Til þess að gera mönnum
erfiðara um vik notaði hann
stundum líkingamál úr goða-
fræðinni, táknmál úr alkemíu,
myndmál sem rekja má til
Biblíunnar, ásamt fornum heit-
um á borgum og landsvæðum.
Nostradamus hafði spádóma
sína ekki í réttri tímaröð og
iðkaði orðaleiki, þar sem
hljóðum er sleppt eða bætt við
■til að mynda nýtt orð. Þeir sem
fúllyrða að lesa megi því sem
næst hvað sem er út úr spá-
sögnum Nostradamusar gera
sér engan veginn grein fyrir
aðferðafræði sjáandans. Með
því móti að menn kryfji eðli
textans af fúllri gjörhygli og
hafi ávallt margslungið verklag
Nostradamusar í huga getum
við fyrst vænst skilnings á
djúpræðum ferskeytlum spá-
mannsins.
Frægar og ná-
kvæmar spásagnir
Meðal þekktustu spádóma
Nostradamusar eru spásagnir
þar sem koma við sögu nöfn
eða ártöl er tengjast persónum
og atburðum framtíðarinnar.
Árið 1607 bannaði Urban VIII
páfi rit stjörnuffæðingsins
Dekkers en bannið var upphaf
að víðtækum ofsóknum
kaþólsku kirkjunnar á hendur
stjörnufræðingum. Nostra-
damus sagði nákvæmlega fyrir
um þennan atburð. í VIII:71
stendur ritað:
Fjöldi stjömufrœðinga mun
fara vaxandi, þeir verða ofsótt-
ir, dœmdir í útlegð og bœkur
þeirra bannaðar árið sextán
hundruð og sjö. Fyrirmœli
þáfadóms verða þess eðlis að
enginn þeirra verður óhultur.
Nostradamus nefnir franska
efnafræðinginn Loius Pasteur á
náfh. Spámaðurinn greinir
jafnffamt frá því að Pasteur
muni uppgötva örverur í and-
rúmsloftinu en sú uppgötvun
er talin með þeim merkustu í
sögu læknavísindanna. Nostra-
damus segir orðrétt:
Hið hulda verður uþþgötv-
að, falið í margar aldir. Paste-
ur verður vegsamaður ncest-
um eins og hálfguð... 1:25
Fleiri söguleg nöfn koma
fram í spádómum Nostradam-
usar:
„Napaulon konungur verð-
ur meira af eldi en blóði...“
„Staða Francos styrkist vegna
herráðsins í Kastilíu...“ „Mest-
ur hluti vígvallarins verður
gegn Hister...“ Á öðrum stað
stendur: „Þegar málefhi páfa-
dóms eru tekin fyrir verður
Hister skapraunað í Feneyska
lýðveldinu...“ Spádómar
Nostradamusar um upphaf og
framvindu fyrri og seinni
heimsstyrjaldarinnar eru mjög
nákvæmir. Nostradamus spáði
einnig fyrir um ffönsku stjórn-
arbyltinguna, kjarnorkuárás-
irnar á Japan, morðin á
Kennedy-bræðrunum, ffiðar-
hreyfinguna, fráfall íranskeis-
ara, valdatöku Ghaddafis, stríð
írans og íraks, borgarastyrjöld-
ina í Líbanon og uppreisn Pal-
estínumanna, svo eitthvað sé
nefnt.
Umsköpun sovésks
samfélags séð fyrir
Spádómar Nostradamusar
birtust fýrsta sinn í íslenskri
þýðingu árið 1987 í bókinni
Framtíðarsýnir sjáenda -
Sýnir Nostradamusar og
aðrir spádómar. Þessi bók
hafði m.a. að geyma tvo spá-
dóma sem sögðu fyrir um rót-
tækar stjórnarbreytingar í
Sovétríkjunum og að stjórnar-
fari kommúnismans yrði vikið
til hliðar í kommúnistaríkjum
heims. Höfundur hafði litla trú
á að þessir spádómar rættust í
bráð og hafði þá þess vegna
aftarlega í bókinni. Sagan
leiddi hins vegar í ljós að þess-
ir ótrúlegu spádómar voru ein-
mitt fyrstir allra spádóma
bókarinnar til þess að rætast!
Við skulum nú skoða þessar
spádómsvísur nánar og fleiri
spádóma Nostradamusar sem
hafa verið að koma ffam á
undanförnum mánuðum og
vikum.
Spádómsvísurnar, sem hér
um ræðir, voru hafðar með
fyrirsögnum er fólu í sér túlk-
un undirritaðs á inntaki þeirra.
Fyrri spádómurinn hljóðar
þannig:
Stjórnarbreyting I
Sovétríkjunum
Við munum sjá að lögum
More tekur að hnigna og í
kjölfar þeirra koma önnur
64 SÍÐIIR B
STOFNAÐ 1913
ÞRIPJUDACUR t. FEBRflAR I9»0 ~
^PrrntnimAjr^MoijiinbUániiu
Míkhaíl S. Gorbatqjov á miðgtjémarfundi sovéska kommúnistaflokksins:
Höfiium öllu því sem ein-
angrað hefur sósíalísk ríki
IW-m. I>/ CmWUJx I
" ‘orr v»'i- »r
Segir fjölflokkakerfi hugsanlegt og
hvetur til þess að úreltum kennisetning-
um um heimsbyltinguna verði hafnað
HlKHAlL s Urtu
»»Im «f
•U **i 11
A* Hp TAI
WlaU I M«é«_
FkUwlM |.U
■Af&J GoÁ«U|ov« I gwr 4|Arf-
M. tflrmun kann lil þnu u il
Uryiu umbóUMrfnunn. prrumjt
bjlunfmrtnnd TlUu «4 UJr
GorWujo. hr« mft I rnAi xnru
nfl iónUJInk rfti hnMu nnnnfrut
Of Mt htfrvt b»n AJIu >vl «nm knll-
•4 h.fði þnA hlutnkipti jrflr þnu
Frflunmtnn Mffu Wni ntum nfl
H »• CortníMinr kjmni a* boón
ITT.
. «4 SoMtMlopnn hrlk laft
tfl fmnnr bnjrtinfnr t ikipulafi
flokknuu iu n4 nuóM/rnnnnénn
m |T* tekkafl uf nokUformnóur
rtr4 n/ Mr upplaunn of ag&rn
Wjii A4nr hrfbu Inut til þrá n4
•gónnrtkrf Innflnina p* bnytt of
■góniMid h.
yfirMu-
ndra Irtunuri
ti f«tinfl«ft a4
Ný bráðabirgðastjórn í Augtur-Þýskalandi:
Kommúnistar í minni-
hluta í fyrsta skipti í 40 ár
V-Þjóðveijum bannað að taka þátt í kosningabaráttunni
■tofunnar ->r* n4 lúrbau,,, hr
tkki kjmnt «nnlaknr tfllófur i
I Sovftrfkjurum Hnnn hnf4< 11
MrfM itm ’ ’
Alnæmisfarald-
ur meðal bama
BMdnffokkunn Ookk,
inirfnn fjnMmAI A
nrmnaanflokkunan.
nl bjtkalnnd ,rn n4nn>
smnnn rn rkki ófrt.lkjnn
Forsíða Morgunblaðsins 6. febrúar síðastllðlnn. Það er rétt elns og
Nostradamus hafi haft blaðlð fyrir framan slg á meðan hann lýstl hruni
kommúnismans í rituðu máll árið 1555. „Á þelm tíma og stað þegar
fiskur kemur í stað kjöts verður hugmyndafræði sameinlngarinnar
andmælt," sagði Nostradamus m.a. - Gorbatsjov er í fiskamerklnu.
26 VIKAN 4. TBL 1990