Vikan


Vikan - 22.02.1990, Síða 40

Vikan - 22.02.1990, Síða 40
FERÐALOC5 Komdu í grofarferd ...um hryllingsstaði Hollywood f Ifkbíl og sjáðu hvar hrœðileg ógœfa hefur dunið yfir ríka, frœga fólkið og hvar það er grafið TEXTI: ÞORSTEINN ERLINGSSON Upphaf grafarferðar- innar er ekki beint notalegt þar sem rödd Bette Davis heyrist af segulbandi: „Festið sætisólarnar. Þessi ferð á eftir að verða nokkuð erfið!!“ Far- þegarnir sjö hafa borgað tutt- ugu og fimm dollara til að fá sæti í Cadillac líkbíl árgerð 1968 í eigu Grafarferða hf. sem stendur fyrir utan Kína- leikhúsið í úthverfi Holly- wood. Þeir eru að hefja tveggja og hálfrar klukku- stundar ferðalag um „hryll- ingsheima þeirra ríku og £rægu“. Eins og stendur í aug- lýsingabæklingi Grafarferða hf. er þér lofað að farið sé með þig um svæði sem enginn ann- ar myndi leyfa sér að fara með þig um. Þú munt sjá Babylon Hollywood, sem er ekki mest aðlaðandi staður þeirrar stóru borgar. Þú kemst í návígi við ógnvekjandi hneykslismál, ást- arævintýri sem hafa endað á hræðilegan hátt, staði þar sem hryllileg morð hafa átt sér stað, sjúkrahús þar sem fólsku- verk hafa verið framin, staði þar sem fólk hefúr fýrirfarið sér á hrollvekjandi hátt og kirkjur þar sem ffægar útfarir hafa farið ffam. Þú færð að sjá amerísku for- tíðardýrkunina sem fékk að láni viðskiptapólitík ffá öðrum áratugnum, skrautlegu hús- gögnin ffá þriðja áratugnum, frægu kvikmyndirnar ffá þeim fjórða, djörfu danstónlistina ffá þeim fimmta og yfirþyrm- andi sjálfstraustið ffá sjöunda áratugnum. Hvers vegna ættu grafarferðirnar ekki að vera fjölbreyttar? Þær eru fyrir börn smekkleysunnar. „Þetta er eins og að vera í draugahúsinu í Disneylandi," segir einn af farþegunum, „en þetta er mjög ffóðlegt.“ „Þegar verið er að hugsa um miklar fjárfestingar er gott að vita af þessu," segir fasteignasali í hópnum. Það eru orð að sönnu því áður en fjárfest er í tveggja hæða húsi nálægt setri Rudolph Valentino á Bella Drive væri gott að vita að það var þar sem Manson og gengi hans myrtu Sharon Tate og fjóra aðra. Ef þú ert hins vegar að hugsa um að leigja ljós- brúnu bygginguna á Shoreham Drive ættirðu að hugsa um að Diane Linkletter lét þar lífið af of stórum skammti af LSD 1969 og ætti það að hafa ein- hver áhrif á leiguna. Vinalegur fasteignasali myndi ef til vill ekki segja þér ffá því að brúna húsið á Benedict Canyon sé staðurinn þar sem sjónvarps- hetjan George Reeves skaut sig í höfuðið eða að í húsinu með marmaraskiltinu utan á hafi Bugsy Siegel látið lífið í skotárás glæpamanna. Grafarferðir sniðganga ekki hefðbundna viðkomustaði hinna venjulegu ferðamanna eins og bleiku höllina hennar Jayne Mansfield með hjarta- löguðu sundlauginni í garðin- um. Það var þar sem hin dáða grínleikkona bjó þangað til hún lést í bílslysi. Einnig fáum við að sjá fýrrum hús Elizabeth Taylor sem var í eigu Frank Sinatra þegar syni hans var rænt og krafist var tvö hundr- uð og fjörutíu þúsund dollara Iausnargjalds. Við förum framhjá villu Ronalds og Nancy Reagan sem þau keyptu til að eyða ævikvöldinu í. Hús- ið bar áður númerið 666 en þar sem þetta númer var að þeirra mati andkristilegt fór Ronald fram á það við borgar- yfirvöld að númerinu væri breytt í 668 St. Cloud Street. Kannski gerðu þau þetta sam- kvæmt ráðleggingum stjörnu- spekings Nancy. Batt plastpoka yffir höfuð sér og kafnaði Ferðamenn ættu að fara í ferð með Grafarferðum hf. áður en þeir ákveða á hvaða hóteli þeir gista. Þeir gætu óvart skráð sig inn á Regency Plaza hótelið þar sem Divine skráði sig út, til himna, á Chat- eau Marmont þar sem John Belushi dó af ofhotkun lyfja, jafnvel á Beverly Hills hótelið þar sem Peter Finch lést af hjartaáfalli í anddyrinu. Einnig gætu þeir lent á Hollywood Knickerbocker þar sem ekkja Harry Houdini kastaði sér fram af þakinu til að komast til síns heittelskaða eiginmanns eða hinu óþrifalega Highland Gardens hóteli þar sem Janis Joplin lést í babydoll náttfötun- um sínum. í grafarferðunum falla mörg tár þegar verið er að lýsa síð- ustu ævistundum frægra leik- kvenna ffá Hollywood eins og Peg Entwistle sem framdi sjálfsmorð með því að kasta sér fram af H-inu í Hollywood- merkinu á hæðinni fyrir ofan borgina. Það var um þrjátíu metra fall. Þegar líkbíllinn fer ffamhjá yfirgefna húsinu sem Clara Blandick, sem lék Em frænku í Galdrakarlinum í Oz, bjó í minnist leiðsögumaðurinn þess að á pálmasunnudag, þeg- ar hún var áttatíu ára, fór hún í kirkju og eftir guðsþjónustu aftur heim til sín og skrifaði á miða: „Ég er nú að leggja upp í ævintýraferðina miklu. Ég bið guð að taka við sál minni. Amen.“ Að því loknu batt hún plastpoka yfir höfuð sér og kafnaði. Eftir andlát hennar birtist eftirfarandi setning í Grafarfféttum: „Við heiðrum Em ffænku fyrir að vera fyrsta 38 VIKAN 4. TBL. 1990

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.