Vikan - 22.02.1990, Side 43
BARNEIGMIR
ÞÝSK KONA KOMIN I HEIMSMETABOK GUINNESS:
Fjórar fœðingar
bar upp a 13. januar
A nnalora Rudolph er 46 ára
/% húsmóðir og fjögurra barna
/ % móðir. Fjölskyldan, sem
jL jL.býr í bænum Bergholz-
hausen í Vestur-Þýskalandi, heldur
upp á afmæli barnanna fjögurra
sama daginn, - þann 13. janúar.
Staðreyndin er sú, að fæðingu barna
hennar Annelore hefur ávallt borið
upp á þennan mánaðardag; Súsönnu
árið 1970, Melanie 1972, Henning
1974 og Frank 1979. Sérfræðingar
segja að þetta sé einstakt tilfelli, því
þetta komi ekki fyrir nema hjá einni
konu af hverjum fimmtíu milljón-
um. - Annalora er því einstök að
þessu leyti, enda er Rudolph-fjöl-
skyldan nú komin á síður Heims-
metabókar Guinness.
Skyldi þetta vera tilviljun, — eða
er þetta með ráðum gert? „Við höf-
um sjálf ávallt átt erfitt með að trúa
þessu. Þó svo við reyndum að hafa
áhrif á fæðingardag barnanna, þá
hlýtur að vera ógerningur að
stjórna slíkri nákvæmni," sagði
vöruflutningabílstjórinn Walter
Rudolph. Frúin bætir svo við:
„Starfsfólk sjúkrahússins hefur ávallt
gert hálfgert grín að þessu og hlegið
dátt, þegar börnin hafa komið í
heiminn þennan sama mánaðardag. Fyrir
mig hefur það eitt skipt máli, að börnin
fæðist heilbrigð."
Þar sem börnin fjögur eru öll fedd þann
13. janúar, eru þau að sjálfsögðu öll í sama
stjömumerkinu, hvort sem þeim líkar það
vel eða illa, - í steingeitinni. Þrátt fýrir þá
staðreynd em þau hvert með sínu mótinu,
em misjafnlega skapi farin og hafa ólík
áhugamál. Sú elsta, Súsanna, sem er að
læra til kokks, segir: „Ég er mikið fýrir ró-
Annelore Rudolph ásamt
bömum sínum. Passamir
sýna, svo ekkí verður um
villst, að bömin em öll
fædd þann 13. janúar.
Afmælisveislurnar em alltaf
stórar í sniðum. Þá er meðal
annars borin á borð hnallþóra
með 13 kertum.
Þau get
óhikað sagt a
13 sé happata
an þeirr
bömin hennt
Anneloi
Rudolpl
legheitin og fer gjarnan í gönguferðir
með hundinn okkar, Yetho.“ Melanie
er að búa sig undir stúdentspróf í fjöl-
brautaskóla. „Ég stunda íþróttir af lífi
og sál,“ segir hún, „og ég elska börn.“
Henning bróðir hennar situr við tölv-
una sína hvenær sem færi gefst og leik-
ur sér að því að búa til ný forrit af
ýmsu tagi. Frank, sá yngsti, er í essinu
sínu þegar hann fer að spila fótbolta. —
Svona em börnin mismunandi.
Auðvitað sýður stundum upp úr á
meðal systkinanna eins og gengur á
hverju heimili. „Það varir þó aldrei
Iengi,“ segja þau einum rómi. Einn dag
á ári er þó aldrei rifist og þá em allir í
sátt. - Það er náttúrlega á afmælisdag-
inn þeirra allra, 13. janúar. Þá em mikil
veisluhöld hjá Rudolph-fjölskyldunni,
sem standa í heila tvo daga. „Þann 13-
janúar kemur öll fjölskyldan saman,
afar og ömmur, ffændur
og frænkur, - yfir 50
manns. Daginn eftir er
vinum og kunningjum
barnanna boðið í þenn-
an sérstæða afmælisfagn-
að. Afmælistertan er
ávallt skreytt með 13
kertum, og blása systkin-
in á þau í sameiningu,
og skipta síðan kökunni
á milli sín. - „Og þannig
ætlum við alltaf að hafa þetta. - Líka þegar
við emm flutt að heiman og komin með
fjölskyldur. Við emm ákveðin í því að hitt-
ast öll þennan dag og halda upp á afmælið
okkar saman á meðan við lifum,“ segja
systkinin íjögur og eru algjörlega sam-
mála.
.
4. TBL 1990 VIKAN 41