Vikan


Vikan - 22.02.1990, Side 51

Vikan - 22.02.1990, Side 51
BLINDUR DRENGUR F/ER SJÓNINA VIÐ KRAFTAVERKALÆKNINGU Áður varð florian að reyna að gera sér í hugarlund allt það góss sem fékkst í leikfanga- verslunum. Nú getur hann séð þetta allt með eigin aug- um. an hafði engu að tapa svo ég ákvað að láta slag standa." Strax eftir fyrstu meðhöndl- un breyttist líðan drengsins. Hann merkti strax mátt þann sem barst ffá höndum Dross- inakis. Þessi mikli kraftur streymdi eins og mikill hiti frá höndum hans. Og eftir að Drossinakis hafði lagt hendur sínar 33 sinnum yflr Florian gerðist hið ótrúlega: Litli drengurinn stóð af eigin rammleik upp úr sófanum sem hann hafði setið í, lagði blindra- stafinn til hliðar og gekk óöruggum skrefum til móður sinnar. Hann brast í grát um leið og hann féll í faðm hennar og sagði síðan snöktandi: „Mamma, nú get ég loksins séð þig!“ Þótt Florian gæti í fyrstu aðeins greint útlínur hlutanna fór sjón hans fram með hverj- um deginum sem leið. Nú gat hann séð allt það sem hann hafði hingað til orðið að gera sér í hugariund með aðstoð lýsinga móður sinnar. Hvað var þarna á seyði? Kraftaverk? Augnlæknarnir í Frankfúrt standa ráðþrota gagnvart þessum stórmerkj- um. Ekki er lengur hægt að greina neitt óeðlilegt við net- himnurnar. Einn er það þó sem velkist ekki í vafa. Það er sjálfur krafta- verkamaðurinn, Christos Drossinakis: „Florian hefur með aðstoð minni öðlast sterka trú á Guð. Og trúin get- ur flutt fjöll... “ ÞÝÐING: JÓHANNA S. SIGÞÓRSDÓTTIR Nú liggur fyrir Florian að læra að lesa. Hann æflr sig á hverjum degi af fullum krafti og sækist námið bara vel. „Mamma, loksins get ég séð þig!" þeim erfiðu aðstæðum sem framundan voru. Móðirin sagði upp starfi á skrifstofunni þar sem hún hafði unnið, til að geta einbeitt sér að umönnun- inni á Florian. Hún hugsaði um hann af stakri ástúð og natni. Til dæmis batt hún oft klút fyr- ir augu sín til að reyna að öðlast betri skilning á þeirri myrku veröld sem sonur hennar lifði í. Þá heimsóttu foreldrarnir einn augnsérfræðinginn af öðr- um en án árangurs. Læknarnir gátu ekki veitt þeim minnstu von, hvað þá annað. „Því mið- ur er ekki minnsti möguieiki á að litli drengurinn fái sjónina," var samhljóða úrskurður þeirra. Kraftaverkamaður kemur til sögunnar Þá frétti Christina Becker af Christos Drossinakis. Hann hafði veitt mörgum styrk og bata með höndum sínum er sagðar voru gæddar lækninga- mætti. „í fyrstu var ég í vafa,“ sagði Christina síðar, „en Flori- m ins litla í þennan heim. Og eft- ir þann atburð tók við löng bið í kveljandi óvissu. Þegar Flori- an hafði verið í nokkrar vikur í hita- og súrefhiskassa var hann loks talinn úr allri lífshættu. Yfirlæknirinn hafði þó fleira að segja heldur en þá gleðifrétt þegar hann kom á fund móð- urinnar: „í súrefniskassanum hefur það gerst að nethimnan hefur losnað ffá augunum hjá litla drengnum. Hann mun verða blindur allt sitt líf.“ Eins og nærri má geta urðu foreldrarnir harmi slegnir. En þeir ákváðu að taka örlögun- um og reyna að laga líf sitt að Grikkinn Christos Drossinak- is er orðinn frægur fyrir lækningamátt þann sem hann er sagður vera gæddur. Efitir 33 skipti hjá honum fékk Florian sjónina. Iitli drengurinn frá Frank furt í Vestur-Þýskaland hafði aldrei séð skæra lit • regnbogans né bjart: geisla sólarinnar. Florian litl var nefhilega blindur. Þessi sorgarsaga hófst fyrii ellefu árum. Þá var Christin; Becker, 38 ára, flutt í dauðaní ofboði með sjúkrabifreið ; spítala. Hún var þá komin 2S vikur á leið og fæddist henm barn löngu fyrir tímann. Flori an var tekinn með keisara skurði. „Hann var svo agn- arsmár, ekkert nema skinnið og beinin," segir móðirin þeg- ar hún rifjar upp komu sonar- 4.TBL. 1990 VIKAN 49

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.