Vikan - 17.11.1938, Síða 6

Vikan - 17.11.1938, Síða 6
6 VIKAN Nr. 1, 1938 Bernskuminningar P er Albi Þessa grein hefir forsætisráðherra Svía, Per Albin Hansson skrifað og rekur þar minningar sínar frá þrengingum bernskuáranna, erfiðleikum þeirra, æfintýrum þeirra og gleði. — l KKI hef ég í hyggju að að leggja hér neinn skerf til minningabókmenntanna. Ég er ekki einn þeirra, sem bókfæra allt, sem á daga þeirra drífur, og ég geng þess ekki dulinn, að minnið getur brostið og gengið á snið við sannleikann. Er árin líða, fölna myndir minninganna, og þá á mað- ur á hættu, að frásögnin líkis um of því, sem maður mundi þá helzt óska sér hana — og um leið færist hún fjær því, sem hún raunverulega var. Ég er fæddur 28. okt. 1885 í Kulla- dal, sem lá í jaðri hinnar blómlegu sveit- ar og búsældarlega byggðarlags Fosie, um hálfrar stundar gang frá Málmey. Þar leigðu foreldrar mínir eina stofu og eldhús, sólarmegin í litlu húsi, fyrir 5 krónur á mánuði. En skömmu eftir að ég var í heiminn borinn fluttu þau í norðurenda hússins, er sneri frá þjóð- brautinni. Þar höfðu þau sameiginlegt anddyri og forstofu með Carlström kaupmanni, og nágranni okkar var Larsson slátrari. Ég nefni báða þessa menn alveg sér- staklega vegna þess, að hjá Larsson slátrara innvann ég mér við snúninga fyrstu aurana, sem ég eignaðist, — og Carlström kaupmaður seldi þá öl. Það leiddi til þess að ýmsir „áðu“ þar og dvöldu oft lengur en þeir ætluðu, er þeir voru að fara kaupstaðarferð til Málm- eyjar. Dró eigi sjaldan til áfloga og ill- inda inni í búðinni og utan við húsið milli ölkeikra sveitamanna og æsku- fólks á staðnum. Voru þar fremstir í flokki og næst verstir „synir smiðsins“, eins og þeir voru jafnan nefndir — ófyrileitnir áflogaseggir. Með þjóðveg- Per Albin með handvagninn sinn. Ritstjóri, verzlunarstjóri, gjaldkeri og sendisveinn. — En hvað maður var nú viss í sinni sök! Það var lífið sjálft! inum þvældust Zigeunar fram og aftur. Við krakkarnir nefnd- um þá ræningja og vorum hrædd við þá. Við og við skaut hér upp um- renningum byggðarlagsins, eins og „Feitu-Guddu“, „Klúta- Kalla“ og „Hrússhorninu". — Feita-Gudda hafði orð á sér fyrir galdra og meinsæringar. „Klúta-Kalli“ og „Hrússhornið” söfn- uðu og seldu tuskur og voru hálfgerðir vesalingar, sem við krakkarnir leyfðum okkur að gera gys að. Þannig komst ég ungur í kynni við hitt og þetta spaugilegt og miður gott. Þetta var minn heimur — og á sumrin trítlaði ég um berfættur, en á veturna gekk ég á tréskóm. Faðir minn var múrari og hafði jafn- an atvinnu í Málmey. Hann fór að heim- an árla morguns og kom ekki heim fyrr en seint á kvöldin. Eiginlega vissum við krakkamir ekkert af honum nema um helgar og svo á vetuma, þegar hann var atvinnulaus og hafði ekkert fyrir stofni, nema ígripavinnu á höppum og glöppum. Faðir minn var vinnumaður í æsku, en eftir að hann kvæntist, tók hann að nema steinsmíði. Foreldrar mínir reistu fyrst bú í Vellinge, og á hverjum mánu- dagsmorgni fór faðir minn fótgangandi alla leið til Málmeyjar og kom aftur heim seint á laugardagskvöldum. Vinnudagur móð- ur minnar var oft langur og erfiður, og þegar ég hugsa aftur í tímann, furðar mig iðulega Per Albin stendur fast og öruggt í fæt- uma, eins og sönnu karlmenni og góðum flokksforingja sómir.

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.