Vikan - 17.11.1938, Page 19

Vikan - 17.11.1938, Page 19
Nr. 1, 1938 VIKAN 19 Undraefnið nýja Tip Top óviðjafnanlegt í alla þvotta — sérstaklega œtlað fyrir viðkvœmt tau, rúmföt og nœrfatnað. 70 aura stór pakki í búðunum. á skynseminni, og nú varð hún að súpa af því seiðinu. Hún vissi gjörla, að hún elskaði Jim ofar öllu í þessum heimi — og hún mátti ekki hugsa um hann. Þegar lið- inn var mánuður, án þess að hún sæi hann, eða hefði nokkrar spurnir fyrir um hann, hóf hún að gera ráðstafanir til að hafa upp á honum. Hún vissi ekki um heimilis- fang hans, en kunningjar hennar, Kitty og Charles Livingstone, höfðu á sínum tíma kynnt þau. Og við að spyrja sig áfram, með stökustu varfærni, komst hún að raun um, að Jim mundi hafa farið í verzlunar- erindum til Parísar og byggi sennilega á Hótel d’Alsace í Rue des Beaux Arts. # Það var dag einn í aprílmánuði, er Jim sat að kaffidrykkju á gangstéttar-veit- ingastað einum í París, að ungur mað- ur, með teiknimyndamöppu undir hend- inn, vindur sér að honum og spyr, hvort hann vilji ekki kaupa af sér andlitsteikn- ingar, eina eða fleiri. Kvaðst hann vera ungur listamaður við nám. Blaðar hann siðan teikningunum fyrir Jim. Flestar voru þær af ungum stúlkum. Jím leit framandi yfir myndirnar, unz hann greip eina út úr staflanum og tók að virða hana fyrir sér. Var það sem honum sýndist? Gat það ver- ið? Nei, auðvitað var það bara svipmót og ekkert annað. Eða var það Patrica? — Hver er þessi stúlka? Hvenær teikn- uðuð þér hana? spurði hann teiknarann. Teiknarinn leit á myndina og velti vöng- um. — Þessi stúlka? Við skulum sjá. Jú, nú man ég það. Hún er ensk. Hún kom til mín hérna um daginn og óskaði eftir að fá vinnu sem fyrirmynd. Hún var í peningavandræðum. En ég er fátækur og gat ekki ráðið hana upp á fast kaup. Hún sagði mér mikla sorgarsögu um það, hvemig hún hefði látið af góðri stöðu í London til að verða listakona í París. En það er dýrt að afla sér menntunar hjá góðum kennurum hér í París. Ég gaf henni heimilisfang nokkurra kunningja minna, sem hafa látið hana sitja fyrir því, sem þeir þurfa á fyrirmyndum að halda. En það er versta vinna að „sitja fyrir“, og ég get verið hræddur um að hún þoli það ekki. Jim greip heljartaki í handlegginn á teiknaranum og spurði áfergjulega. — Getið þér sagt mér hvar hún býr? Listamaðurinn tók fram brúna vasabók og fletti henni fram og aftur. — Jú, hér er heimilisfang hennar. Jim skrifaði upp heimilisfangið, stakk hundrað franka seðli að listamanninum, spratt á fætur og gaf leiguvagni merki um að sækja sig. — Ungfrú Bentley? Já, það er á fjórðu hæð til vinstri — gjörið þér svo vel. Jim undraði, hve Patrica bjó í góðu húsi. Það kom ekki vel heim við það, sem listamað- urinn sagði um efnahag hennar og kring- umstæður allar. Hann skundaði upp á fjórðu hæð, og í því hann ætlaði að hringja á dyrnar til vinstri tók hann eftir því, að hurðin var 1 hálfa gátt. Og er hann studdi við hurð- ina opnaðist hún hávaðalaust og sá hann þá hvar Patrica stóð út við stóran glugga, framan við mikið teikniborð og sneri baki að dyrunum. Litla stund stóð hann og virti hana fyrir sér, hverhig hún dró pens- ilinn og sveigði hann til auðsveipni við hvítan pappírinn á teikniborðinu, sem hún stóð við. Hún var svo niðursokkin í vinn- una, að honum kom í hug að læðast út og drepa á dyr til að gera henni ekki eins bylt við. En í því hann var að læðast út úr dyrunum kallaði hún til hans, án þess að líta við: — Kondu inn Jim — og lokaðu hurð- inni, góði. Ég lét standa opið, svo þú gæt- ir gengið beint inn. Hann roðnaði. Eiginlega vissi hann ekki, hvort heldur hann átti að reiðast þessum móttökum, eða gleðjast yfir þeim. Hvað vissi hún um það, hvort honum væri þægð í að koma? Hafði þessi „listamaður" logið að honum. Hann hafði búist við að fyrir- hitta hana í ýtrustu neyð og umkomu- leysi — ef til vill grátandi. En þegar hann lokaði hurðinni, snéri hún sér á stólnum og leit á hann — og hann gat ekki betur séð en hún væri eins og hún átti að sér. Hann hafði það einhvernveginn á tilfinn- ingunni að hún væri að skopast að hon- um. Og það var ekki um að villast. Hún hló —en eitthvað á dálítið annan hátt en þegar þau sáust síðast. Það voru augun. Svo fleygði hún frá sér penslinum og hljóp á móts við hann, — og hann tók hana í faðm sér og kyssti hana — einu sinni, tvisvar, þrisvar og svo nokkrum sinnum enn. — Patrica! Ég skil hvorki upp né niður í öllu þessu. Fyrir stundarkorni fékk ég fyrst vitneskju um, að þú værir hér í París. Það var einhver ungur hstamaður, sem gaf mér upp heimilisfang þitt og lét þess getið, að þú hefðir misst stöðu þína í London og hefðir nú ofan af þér með því að „sitja fyrir“ hjá málurum. Og svo ertu hér------------- — Já, og þú líka! greip Patrica fram í fyrir honum og leiddi hann við hönd sér að sófanum í horninu. Þar settust þau. — Ég þar af játa þér svo margt. 1 fyrsta lagi: Vegna hvers heldurðu að ég sé komin hingað til Parísar? — Til að nema málaralist — það var mér sagt------------- — Nema málaralist! Það er bara fyrir- sláttur. Ég hefi aldrei verið nein listakona og verð það heldur aldrei. Ég kom hingað til að hitta þig — en ég vissi ekki hvort þú vildir sjá mig, og þess vegna fékk ég kunningja minn til að teikna mig og sýna þér myndina. Hann hefir setið um þig og haft auga með þér. Segðu mér nú eins og er: Ertu reiður við mig? Hún leit á hann, alvarleg — og Jim þrýsti henni að sér, fastar og fastar. — Já, víst er ég reiður við þig, sagði

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.