Vikan - 17.11.1938, Page 22
22
VIKAN
Nr. 1, 1938
Orð í tíma töluð.
A RNI PÁLSSON prófessor er hinn
orðslyngasti maður, eins og kunnugt
er, og afar snjall að koma fyrir sig orði í
viðræðu. Fara hér á eftir nokkrar vel orð-
aðar setningar, sem hann hefir sagt við
ýms tækifæri.
*
Eysteinn Jónsson núverandi fjármála-
ráðherra og Árni Pálsson buðu sig eitt sinn
fram til alþingiskosninga hvor á móti öðr-
um í kjördæmi fyrir austan. Fóru þeir í
kosningaleiðangur austur, deildu þar á
kosningafundum, með mestu prúðmennsku
þó, og héldu síðan heim aftur.
Skömmu seinna hittust þeir á götu fyrir
framan Hótel Borg, og horfðu hvor fram
hjá öðrum. Víkur Árni sér þá að Eysteini
og segir:
— Heyrðu Eysteinn! Hvað ertu annars
gamall ?
— Ég er 29 ára, svaraði Eysteinn.
— Ja, iss, ekki var ég orðinn svona
rangeygður á þínum aldri, sagði Árni.
*
Eitt sinn var Guðni Jónsson magister,
og fleiri, við skál heima hjá Áma Pálssyni.
Þegar fór að svífa á gestina tók Guðni að
lesa upp eftir sig þýðingar á ljóðum þýzka
skáldsins Heine.
Er hann hafði lokið lestrinum, sagði
hann:
— Það er ég viss um, að Heine hefir
ekki tapað á þessu.
— Og þú ekki grætt, Guðni minn, sagði
Árni.
Árna varð einu sinni tíðrætt um
drykkjuskap almennt, við kunningja sinn
úti á götu. Fórust honum þannig orð:
— Maður á ekki að drekka. Það er
flótti, flótti frá lífinu. En svo tók hann
sig á og bætti við:
— En maður bjargar sér nú oft á flótta.
Eysteinn Jónsson, Árni Pálsson og fleiri
greindu á um þjóðmál. Þá sagði Árni:
— Ég get fyrirgefið Eysteini mínum
mikið fyrir það hve vel hann er að sér í
Sturlungu.
Eins og sumir má-
ske muna, hélt Sig-
fús Sigurhjartarson
einu sinni þrumandi
fyrirlestur í útvarp-
ið um drykkjuskap
opinberra sýslunar-
manna og nefnJi
m. a. bókaverði.
Hallgrímur Hall-
grímsson bókavörð-
ur hlustaði á fyrir-
lesturinn, og er hon-
um var lokið gat
Hallgr. ekki orða
bundist, en sagði:
— Það er alveg
rétt, sem hann segir.
3KÍAB0KIK
samin af bestu
BÓKAVEBSLUNIN MÍMIP, 1938 ípróttafrömuðum
Norðmanna.
Ómissandi hand-
bók fyrir alla,
er íf>róttir stunda
Bókaverslunin Mímir h.f.
Mér er alveg raun
að því, hvað hann Benedikt drekkur.
Vín er dutlungafullur drykkur. Sumar
tegundir batna á löngum sjóferðum. Aðr-
ar verða ,,sjóveikar“ á löngum ferðalög-
um með skipum og járnbrautum og þarfn-
ast margra mánaða hvíld á eftir til að
ná sér. Enn aðrar tegundir fá ýmsa „til-
fallandi" sjúkdóma, sem hinir sérfróðu
menn kunna ekki að rekja orsakir til.
#
I bænum Pueblo í Colorado eru lög, sem
banna að rækta eða hafa fífla inni í bæn-
um. Sá sem óhlýðnast þessu verður að
borga sekt.
*
Mjög stórt amerískt mjólkurfélag borg-
aði fyrir nokkrum árum að því er virðist
hlægilegt verð, þ. e. 106,000 dollara — hér
um bil 440,000 krónur fyrir 6 mánaða
gamlan tarf. En raunar kom í ljós, að
þetta voru reyfarakaup, því þó að tarf-
urinn yrði ekki eldri en 3 ára, komu út
af honum kýr, sem voru 70,000 dollara
virði, og höfðu svo mikið auglýsingagildi
fyrir félagið að nam mörgum þúsundum
dollara. Þegar tarfurinn féll frá, fékk fé-
lagið 50,000 dollara tryggingargjald.
#
1 bænum Colombia í Suður-Californíu
er konum bannað að vera á hestbaki á
götunum.
Tökum
góðar íslenzkar smásögur og
stuttar ritgerðir til birtingar.
Snúið yður til ritstjóra blaðs-
ins, Austurstræti 12.
V IK A N
Sig. Ólason
&
E. Sigurgeirsson
Málaflutningsskrifstofa
Austurstræti 3. Sími 1712.
Hallgrímskver
(Péturssonar)
fæst nú aftur hjá bók-
sölum í vönduðu bandi.
Bók, sem hvert heimili þarf að eignast.