Vikan - 09.03.1939, Blaðsíða 3
Nr. 10, 1939
VIKAM
3
2 VÆTTIR AW SÍID.
Þessi grein Haraldar Guðnasonar sýnir ljóslega, hverjir
samgönguerfiðleikar voru í nærsveitum Reykjavíkur
fyrir 35 árum síðan. I greininni segir frá tveimur
mönnum, sem sendir voru á vertíðinni frá Stokkseyri
hingað til Reykjavíkur eftir beitusíld. — Hver mundi
ímynda sér nú, að það væri fimm sólarhringa verk fyrir
tvo full-kaska karlmenn að selfæra tvær vættir af síld
milli Reykjavíkur og Stokkseyrar.
Um aldamótin síðustu fer hin æfa-
gamla veiðiaðferð með handfærum
að hverfa úr sögunni, en lóðin ryðja
sér til rúms. I beitu voru notuð hrogn,
en sjálfsagt þótti að hafa síld að nokkru.
1 verstöðvunum sunnanlands var jafnan
lítið af síld fyrirliggjandi, en skipin mörg.
Varð því oft tilfinnanlegur skortur beitu-
síldar, er líða tók á vertíðina. Var þá
venjulega gripið til þess ráðs, að sækja
síldina til Reykjavíkur. Fór sá flutningur
fram með ýmsum hætti og heldur frum-
stæðum. Nokkur keppni var meðal for-
manna um að vera sem fyrstir að afla
sér varabirgða, ef 'síldin yrði lítt eða ekki
fáanleg, er á vertíðina liði.
Það mun hafa verið á vertíðinni 1904,
að hinn mikli sjósóknari og aflamaður,
Benedikt í Iragerði á Stokkseyri, þóttist
sjá fram á þurrð beitusíldar.
Verður það að ráði, að hann sendir tvo
háseta sína, þá Jón Vigfússon á Heiði á
Rangárvöllum og Guðjón Jónsson, Syðra-
Seli í Hrunamannahreppi, til Reykjavíkur,
og skyldu þeir sækja tvær vættir af síld.
Fara þeir gangandi með sléða í eftir-
dragi, er þeir skyldu flytja á síldina.
Veður var ágætt, hæg norðanátt með
dálitlu frosti, heiður himinn. Færi var hið
ákjósanlegasta, glæra svell yfir allt lág-
lendi, en klakaklambur á vegum. Verða
þeir nokkuð síðbúnir frá Stokkseyri og
fara þann dag að Kolviðarhóli og gista
þar. —
Daginn eftir fara þeir félagar til Reykja-
víkur. Sama veður hélzt og færi hið bezta.
Ekki vannst þeim tími til að fara neitt
áleiðis austur. Síldina áttu þeir að kaupa
í Nordalsíshúsi. Um kvöldið hittu þeir ís-
hússtjórann, Jóhannes Nordal. — Árla
næsta morguns er svo haldið af stað frá
Reykjavík. Bjuggu þeir um síldina í köss-
um og sveipuðu síðan boldangi um þá.
Átti þessi útbúnaður að verja þessa dýr-
mætu vöru skemmdum, hvað sem tautaði.
1 byrjun gekk allt eins og í sögu. Sleðinn
var léttur í drætti á ísklambrinu. Hlassið
var nokkuð á þriðja hundrað pund, því
auk síldarinnar höfðu þeir meðferðis nokk-
um farangur, föt, nesti og fleira.
Er þeir koma inn fyrir Þvottalaugar, tók
að syrta í lofti og innan skamms brast á
krapahríð af austri. Fór nú heldur en ekki
að fara af góða færið. I veginn komu brátt
eyður, þvi þar sem ísingin var þynnst hlán-
aði hún von bráðar. Varð þá að tosa erðinu
yfir möl og grjót.
Veðrið hélzt við sama, austan slydda
með allmiklum vindi. Sóttist ferðin ærið
seint, ýmist um hrökkvandi malarklungur
eða velþvegna ísbletti. Er þeir loksins náðu
að Geithálsi voru þeir uppgefnir orðnir.
Á Geithálsi voru fyrir þrír Flóamenn á
austurleið. Þeir drógu sleðann með þeim
félögum á móts við Lækjarbotna, en þar
skildi með þeim, því þeir þurftu áfram
leiðar sinnar. Var þá dráttarfæri með öllu
ófært og veður hið versta. Voru þeir nú
staddir í hinum mestu vandræðum, yfir-
komnir af þreytu og engin úrræði til að
koma sleðanum áleiðis.
Vissu þeir nú ekki hvað til bragðs skyldi
taka. En í þessum svifum bar að mann
vestan veginn með lausan hest í taumi.
Léttir þá mjög yfir þeim félögum, því þeir
hugðu, að vafalaust myndi sá góði maður
láta sleðann aftan í lausa klárinn, enda
var honum það meinfangalaust. Og varla
myndi nokkur maður hafa skap til að rétta
þeim ekki hjálparhönd í þessum ömurlegu
kringumstæðum.
Frétta þeir nú, hvaðan maður sá er, og
kveðst hann vera úr Ölfusinu. Tjáir Jón
honum vandræði þeirra félaga og biður
hann að lána þeim hestinn fyrir sleðann
austur á Kambabrún. Tók ferðamaðurinn
lítt undir það, en lét þess þó kost, ef þeir
vildu greiða 5 krónur fyrir. Þótti þeim
þetta ókjör hin mestu og lítilmannlegt
áformið, að hafa kröggur þeirra að fé-
þúfu, því eftir þessa tíma verðlagi var
þetta nokkuð dýrt. — Þykkist Jón nokkuð
við, er maðurinn sýnir slíkan þursaskap
og kvað hann þá fara mega sína leið, og
gerði hann það, að því er virtist án allra
umþenkinga. Var nú brostin á stórhríð af
austri með fannkyngi miklu, frost var ekki
mjög mikið. Var nú útlitið ærið skugga-
legt. Ekki var Ölfusingurinn fyrr farinn,
en þeir iðruðust mjög að hafa ekki tekið
boði hans, þó óaðgengilegt væri. Þótti þeim
nú sem allt væri betra, en vera þama
staddir úti á víðavangi í öskubyl, með
sleðafjanda þenna, er þeir máttu hvergi
þoka, sökum ófærðar og veðurs. Þeir voru
nú staddir í miðju Svinahrauni, og draga
nú sleðann með miklum erfiðismunum að
næstu vörðu og binda hann þar. Nú ber
það til tíðinda, að Guðjón verður all-veik-
ur. Segir hann, að hann megi sig hvergi
hræra. Biður hann Jón að freista að leita
byggða, en skilja sig eftir, og láta skeika
að sköpuðu. Jón kveðst aldrei skyldi yfir-
gefa hann þarna fárveikan, því það yrði
hans bráður bandi. Fyrr skyldu þeir báðir
úti verða, en að sig henti slíkt. Taldi Jón
helzt til ráða að bíða, ef Guðjóni batnaði
það, að hann treystist að ganga til bæja,
ella grafa þá í fönn. Setjast þeir nú við
vörðuna, og láta þeir fyrirberast þar langa
stund. Fer nú heldur að brá af Guðjóni.
Hefir hann sennilega veikzt af ofþreytu.
Var hann þó hraustmenni hið mesta.
Treystist hann nú til að ganga ofurlítið.
— Tekur Jón þá poka tvo af sleðanum,
er þeir geymdu í ýmsan farangur og halda
svo af stað austur veginn. Var með naum-
indum, að þeir fengu haldið honum. Hvíldu
þeir sig við hverja vörðu. Ferðin sóttist því
ærið seint, veðrið beint í fangið, blind-
hríð, myrkur.
Loks náðu þeir að Kolviðarhóli. Það var
um miðnætti. Var þá Sigurður gestgjafi,
hinn alkunni bjargvættur nauðstaddra
ferðamanna, albúinn að leita þeirra. Hafði
hann spurnir af, hvenær þeir fóru úr bæn-
um og var orðinn nokkuð uggandi um þá.
I birtingu næsta dags fara þeir ferða-
langarnir frá Hólnum niður í Svínahraun
að sækja sleðann. Lánaði Sigurður þeim
hest, mikinn stólpa grip. Fyrir hestlánið
skyldu þeir greiða 80 aura.
í hrauninu hitta þeir mann, er kemur
vestan veginn. Hafði hann tvo hesta. Hann
kvaðst vera frá Arnarbæli í Ölfusi, vinnu-
maður Ólafs prests Magnússonar, en ætt-
aður úr Austur-Skaftafellssýslu. Jón spyr
nú mann þenna, hvort hann vilji svo vel
gera, að vera þeim félögum samferða aust-
ur á Kambabrún og lána þeim annan hest-
inn fyrir sleðann. Var það velkomið, svo
fremi þeir væru komnir að Kolviðarhóli,
er hann legði af stað þaðan. Þótti þeim nú
vel skipast þeirra mál, og hraða sér sem
þeir mega. Það stóðst á endum, að mað-
urinn er að fara frá Hólnum þegar þeir
Jón og Guðjón koma þangað með sleðann.
Mun hann þó hafa dokað við nokkuð. —
Er nú komin asahláka, austan óveður.
Þegar austur á Kambabrún kemur, segir
maðurinn þeim, að nú skuh þeir fara
með sér heim að Arnarbæli og gista þar.
Taka þeir því boði feginsamlega. Koma