Vikan


Vikan - 09.03.1939, Blaðsíða 7

Vikan - 09.03.1939, Blaðsíða 7
Nr. 10, 1939 VIKAN 7 Myndin er af þorpi á landamærum Zululands. 1 svona kofa voru 16 Zulubúar drepnir á einni nóttu af eiturslöngu. vaal, þar sem þeir sváfu úti. Um miðja nótt fann annar maðurinn, að eitthvað kalt rann niður eftir fætinum á honum undir teppinu. Með hræðsluópi sparkaði hann teppinu af sér og spratt upp. Félagi hans stökk líka á fætur, og þeir athuguðu vandlega sængurfötin, en fundu ekkert. Vinur hans fór að hlægja og sagði, að þetta hlyti að vera draumur, og síðan lögðu þeir sig aftur til svefns. En þeir voru ekki fyrr sofnaðir heldur en hinn veiðimaður- inn rauk upp með andfælum við það, að eitthvað fór yfir andlit hans. Hann æpti upp yfir sig um leið og hann vafði tepp- inu utan um slöngu og kastaði því í burtu. Þeir ruku því næst báðir upp til handa og fóta og fundu áður en langt um leið stóra ,,kragaslöngu“, sem þeir drápu. Þó að það úi ekki og grúi af slöngum í Suður-Afríku, getur alltaf komið fyrir, að maður rekist á þær í görðum og á engj- um. Meira að segja eru þær inni í húsum og uppi í rúmum. Þetta kemur til allrar hamingju ekki oft fyrir. Menn, sem hafa alla sína æfi búið á suður-afríkönsku slétt- unum eru ótrúlega rólegir og sýna frábært snarræði við þessi tækifæri, en samt er enn aðdáunarverðari kjarkurinn, sem konur hafa sýnt undir svipuðum kringumstæð- um. Það er furða, hvað þessar eiturslöng- ur valda sjaldan dauða. Bóndakona í Suðvestur-Afríku vaknaði eina nótt við það, að eitthvað þungt datt niður í rúmið hennar. Hún kallaði undir eins á dóttur sína, sagði henni að kveikja og fleygði rúmfötunum á gólfið. Slangan hafði vafið sig utan um teppið, og áður en hún gat losað sig, marði dóttirin haus- inn á henni með skónum sínum. Það er hægt að ímynda sér þá skelfingu, sem greip móður eina, þegar hún sá slöngu í rúmi bams síns. Hún var að klæða sig og sneri sér brosandi að htla drengnum sínum, sem var að masa við sjálfan sig. En ánægja móðurinnar breyttist fljótlega í skelfingu, þegar hún sá litlu hendurnar halda utan um brúna slöngu, Hræðsluóp móðurinnar hræddi barnið, svo að það sleppti slöngunni og fór að gráta, og dýrið fór fram úr rúminu og hvarf. Þegar farið var að athuga þetta nánar, kom í ljós, að undir rúminu var gat á gólfinu, og þarf ekki að efa, að fljót- lega var gert við það. Hugrökk, gömul kona, sem drap einu sinni slöngu með kústskafti, segir, að einn dag hafi hún setið úti í garði og lesið, þá hafi dóttursonur sinn komið og sagt, að hann hafi séð stóra slöngu hverfa inn í eldhúsið. — Það var strax kallað á þjón- ustufólkið og leitað í öllu húsinu, en árang- urslaust. Litli dreng- urinn var húðskamm- aður fyrir að láta ímyndunina hlaupa með sig í gönur og setja húsið á annan 1 einu trénu yfir mjólkurkönnunni hékk slanga. endann út af ekki nokkrum sköpuðum hlut. Þrem dögum síðar missti vinnustúlkan lyklana sína upp fyrir tvær stórar krukk- ur, sem stóðu í einni búrhillunni. Hún ætl- aði að ná í þá, en heyrði þá reiðilegt hvæs koma úr horninu. Stúlkan hoppaði upp og um leið skauzt slangan fram fyrir. Ópin í stúlkunni höfðu borizt til eyrna heim- ilisfólksins, sem kom þjótandi inn, og þá fannst slangan, litla drengnum til mikillar ánægju, og var fljótlega drepin. Hér er kannske rétt að geta þess, að slöngu-sögurnar eiga það sameiginlegt með fiski-sögunum, að dýrin eru alltaf óvenju- lega stór, — svo að maður noti ekki sterk- ari orð. Litlar slöngur virðast ekki frekar vera til en litlir fiskar. En þessi slanga, sem við vorum að tala um, var mæld og var 2 m. og 28. cm. á lengd.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.