Vikan


Vikan - 09.03.1939, Blaðsíða 11

Vikan - 09.03.1939, Blaðsíða 11
Nr. 10, 1939 VIKAN 11 var í ágætu skapi. ■— Þú hlýtur að hafa lesið mikið af enskum reifurum upp á síð- kastið, því að þú hefir aldrei fundið þetta nafn upp sjálfur. Teodór hló, en þegar þau voru að leggja út í æfintýrið, fannst þeim það ekki leng- ur skemmtilegt. Teodór svaf, þegar Friðrikka vaknaði morguninn eftir. Hún nuddaði syfjulega augun, hoppaði fram úr rúminu og klæddi sig. Napoleon kom á móti henni framan úr eldhúsi. Það var mikil huggun að sjá hann skjóta upp kryppu og nudda sér upp við græna sloppinn, sem búðar- stúlkan sagði að væri morgun-einkennis- búningur vinnukonunnar. Hún opnaði dyrnar og setti köttinn út. — Hana, farðu nú út og heilsaðu upp á blómin, kýrnar og trén. Hún setti plötu með bollum á inn í ofn- inn, bjó til kaffi og hrærði egg áður en hún vakti Teodór. — Ég held, að hér sé mjög skemmtilegt, Teddi. — Það er ljómandi fallegt hér — það er jurtagarður fyrir utan eldhúsdyrn- ar. En hvernig lízt þér annars á húsbænd- uma? Hana hafði langað til að spyrja að þessu síðan í gærkveldi, þegar hr. Saunders hafði tekið á móti þeim á stöðinni. — Mér þykir andstyggilegt að vita til þess, að þú skulir eiga að matbúa fyrir þau, sagði Teddi. — Það var aumingja- skapur að gefast upp. Hugsaðu þér hvað Grímur og Fríða eru hugrökk. — Það voru einmitt þau, sem ráku okk- ur út í þetta, sagði Friðrikka ástúðlega. Við hefðum aldrei getað átt í því að skulda allsstaðar. Ó, Teddi — bollumar! Dagarnir liðu tilbreytingarlaust. Frið- rikka kvaldist af að sjá, hvernig Teodór breyttist — hlusta á hann skamma sig, vitandi, að það var aðeins af því, að það kvaldi hann að sjá hana alltaf dauðupp- gefna. En stundum hlógu þau, — eins og til dæmis þegar þau jörðuðu deigið, sem vildi ekki lyfta sér, og Teodór setti blóm á gröf- ina. Og líka þegar þau fundu gömlu myll- una, sem búið var að breyta í hús og var til sölu. Þau gengu hrifin í kringum það, og Teodór hvíslaði: — Þetta skulum við einhverntíma kaupa! Um kvöldið, þegar Friðrikka sat á eld- húströppunum og var að hugsa um gömlu mylluna, þá heyrði hún í ritvélinni hans Teodórs. Teodór var aftur farinn að vinna og var kátur og ánægður. Teodór var að þurrka leirtau, þegar frú Saunders kom einu sinni fram í eldhúsið. — Jæja, Bárður, sagði hún vingjarn- lega, — mér þykir alltaf gaman að sjá menn hjálpa konum sínum. Við erum ánægð með ykkur bæði. Hún þagnaði stundarkorn, síðan hélt hún áfram: — Ég hefi hér bók, sem ég er nýbúin að lesa. Mér datt í hug, hvort þér hefðuð ekki gaman af að lesa hana. Hún er mjög fróð- leg. Við erum meðlimir fjögurra lestrar- félaga, svo að þér getið fengið hvaða bók, sem þér viljið. Þegar hún var farinn, fór Friðrikka að skellihlæja. — Teddi, þú varst svo hlægilegur, þeg- ar hún fékk þér bókina. Teodór eldroðnaði. — Ég er hræddur um, að ég kunni ekki að meta þetta eilífa spaug þitt. Að maður skuli þurfa að vera upp á svona fólk kom- inn! — Þetta var svo hlægilegt! Friðrikka var hnakkakert, en varir hennar skulfu. — Teddi, hvers vegna getur þér ekki þótt þetta hlægilegt? Þú veizt, hvað þetta fólk er fíkið í að kynnast frægum mönnum. Við hlæjum að því. Það er ekki fallegt Teodór sagði ekki eitt einasta orð á meðan þau borðuðu, og um kvöldið sat Friðrikka ásamt Napoleon uppi á girð- ingu. En svo kom Teodór og hvislaði að Friðrikku: — Við skulum ekki rífast! Friðrikka þrýsti sér að honum og sagði: — Sjáðu, Teddi, þarna er kvöldstjarn- an — manstu----------? En það var leiðinlegt, hvað Teodór og Friðrikka þurftu lítið til að fara að rífast, og það varð æ erfiðara að sættast aftur. Og svo kom frænka frú Saunders í heimsókn. Það var seinni part dags. Friðrikka var úti á vegi og beið eftir því, að Teodór kæmi frá stöðinni, þegar bílinn kom þjót- andi, og við stýrið sat ung stúlka og við hliðina á henni sat Teodór. Napoleon sat á miðjum veginum og þvoði sér. Friðrikka hljóp æpandi að honum, en stúlkan beygði og nam staðar. — Aumingja litla kisa — gerði ég þig hrædda, sagði hún ag stökk út úr bílnum um leið og Friðrikka hafði tekið hana upp. — Hún mundi aldrei láta bera á því, þó að hún væri hrædd, sagði Friðrikka hlæjandi, — hún hefir svo mikið sjálfs- álit. Henni hefði litist vel á þessa ungu stúlku, hugsaði hún, ef hún væri ekki alveg svona mikið upp með sér, og ef Teodór hefði ekki þurft að hneigja sig og beygja fyrir henni og bera inn töskurnar hennar. — Ég heiti Dóra Saunders! Eruð þér að skemmta yður hér? — Nei, ég er vinnukona! Friðrikka naut vandræða Dóru. En eftir dálitla stund náði hún sér og spurði: — Eigið þér þennan kött? Hvað heitir hann? — Franco! Teodór svaraði. — Hvers vegna ætti hann ekki líka að hafa dulnefni, sagði hann síðar við Frið- rikku. Dóra gerði þeim allt erfiðara. Það var þreytandi að þurfa að horfa á hana fara í skemmtiferðir, en það, sem verra var, Teodór þurfti alltaf að fara með henni og bíða eftir henni. — Ég er dálítið hrædd að aka ein, sagði Dóra hlæjandi. — Þér akið svo ágætlega, Bárður. — Hún ekur langtum betur en þú, Teddi, sagði Friðrikka og hló dálítið gremjulega. — Ég er hrædd um, að það sé þessi fallegi Bárður, sem hún sækist eftir. — Ertu afbrýsisöm, Friðrikka? sagði Teodór aðeins. — Nei, sagði Friðrikka hranalega, en mér leiðast léttúðugar stúlkur. Teodór anzaði henni ekki, og þegar hann var farinn, fór Friðrikka að þvo upp, og hún var svo utan við sig, að hún tók ekk- ert eftir því, að hún setti fingurna undir heita vatnið og brenndi sig. Henni þótti vænt um að hafa eitthvað til að gráta af. Þegar Teodór kom aftur, tók hann hana í fang sér. — Friðrikka, kjáninn minn! hvíslaði hann. Þú veizt, að svona kvenfólk er ekki við mitt hæfi. En hvað á ég að gera? Ég get ekki sagt nei við því að aka fyrir hana. — Teddi, — ég hélt að þú værir hrifinn af fötunum hennar. — Kjánaprikið mitt, sagði Teodór hlæj- andi. Þú manst líklega eftir því, að ég varð fyrst skotinn í bláa sloppnum þínum. Hann þurrkaði henni um augun og batt um hönd hennar. I sama bili var skelli- hlegið í dyrunum. — Fyrirgefið, ef ég ónáða, sagði Dóra. — Ég gleymdi að segja ykkur, að það koma gestir í dag og frænka er svo óróleg, því að einn er skáld og hún vill hafa góð- an mat. Ég átti að spyrja yður, Bárður, hvort þér vilduð ganga fyrir beina? Meg- um við ekki kalla yður Fotheringay? Það er svo gott nafn. Friðrikka leit upp, en unga stúlkan var farin, og Teodór hjálpaði hann upp í bíl- inn. Teodór var í ágætu skapi, þegar hann var að hafa fataskipti um kvöldið. — Sko, er ég ekki fæddur þjónn. Hann tók upp bakkann og sveiflaði honum fim- lega. Friðrikka var að skera melónu í sundur, þegar dyrnar opnuðust. — Hvernig gekk, Teddi, sagði hún glað- lega. — Ágætlega — ég braut aðeins tvö glös! En það var ekki Teodór, sem svar- aði. Friðrikka hrökk við, sneri sér við og sá Svein ganga að sér. — Sveinn, hvað ert þú að gera hér? hrópaði hún. — Elta flóttamennina með blóðhund- um, sagði Sveinn. — Ég hefi haft miklar áhyggjur út af ykkur. — Þetta hefir gengið ágætlega. Það var Teodór. Þú verður að fara inn, Sveinn — ég hugsa, að húsbændunum sé ekkert um það, að gestirnir haldi sig í eldhúsinu. — Teddi! hrópaði Friðrikka ásakandi. Hann meinar þetta ekki, Sveinn — en þetta hefir verið svo erfitt fyrir hann. — Ó, slúður, Teddi, sagði Sveinn hlæj- andi, láttu nú ekki eins og kjáni. Ég varð að tala við ykkur, en hefði aldrei fundið ykkur, nema með aðstoð Dóru. Það er Framh. á bls. 22.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.