Vikan - 27.04.1939, Síða 19
Nr. 17, 19S9
VIKAN
19
Búðingurinn.
Haukur átti afmæli í dag. Það var svo
sem ekkert nýtt, því að hann hafði
átt afmæli ellefu sinnum áður. En
hann mátti bjóða til sín nokkrum skóla-
bræðrum sínum, og þess vegna hlakkaði
hann miklu meira til en hann var vanur.
Það komu svo fáir út á nesið, þar sem
Haukur bjó með foreldrum sínum og syst-
kinum. Faðir hans var fiskimaður, og
Haukur varð að hjálpa honum á sjónum
á sumrin, en á veturna bætti hann með
honum net, þegar hann kom heim úr skól-
anum. Og hann var hreinasti snillingur að
hnýta á.
Fjórir félagar Hauks komu til hans á
afmælisdaginn, þar á meðal Gunnar, son-
ur skólastjórans, sem var annars of hreyk-
inn til að leika sér við hina strákana. Hann
ætlaði að læra meira. Hann var með gler-
augu, og svo fékk hann stundum að sigla
bátnum, sem pabbi hans átti. En báturinn
var svo fínn, að hinir strákarnir fengu
alls ekki að koma um borð í hann. Eins
og gengur féll strákunum illa við Gunnar.
En Hauk líkaði ágætlega við hann, sér-
staklega af því, að hann hafði gaman af
að fara út á sjó.
Gunnar vildi fyrst ekki þiggja boðið.
Nei, hann vildi miklu heldur fara út á
sjó. En Haukur hafði einu sinni ákveðið,
að Gunnar skyldi koma og talaði því eins
vel um fyrir honum og hann gat. Hann
taldi upp allt það, sem hann ætlaði að
sýna þeim: fáséða steina, máfaunga og
gamlan norskan bát.
— Og við fáum búðing, bætti hann við,
sigri hrósandi.
Búðing fékk fjölskyldan í fiskimanns-
kofanum aðeins við hátíðlegustu tækifæri.
Þau voru svo mörg, en efnin lítil. Þau
borðuðu venjulega fisk og kartöflur, og
Hauki fannst búðingur vera bezti matur,
sem hægt væri að hugsa sér.
— Ég hefði gaman af að sjá norska
dallinn! sagði Gunnar.
— Þá kemur þú, svaraði Haukur og
hugsaði: Það er nú samt búðingurinn, sem
þig langar í.
Strákamir höfðu skemmt sér dásam-
lega. Þeir höfðu leikið sér í sandinum, far-
ið í bað og hlaupið um eftir ströndinni í
sólinni.
Þeir fóm út í hólmann og skoðuðu
máfaungana, sem þutu sinn í hverja átt-
ina eins og litlir boltar. Allt í einu voru
þeir horfnir. Það var furðulegt, hvað þeir
vom líkir umhverfinu. Það var ekki hægt
að greina þá frá jörðinni. Drengirnir urðu
að ganga hægt til að stíga ekki ofan á
ungana eða hreiðrin, en í sumum þeirra
voru egg. Máf arnir flugu gargandi yf ir höf ð-
um þeirra. Einn og einn máfur kom niður
BAENASAGA
og barði með vængjunum eins og hann
vildi gefa strákunum löðmng.
Þetta var skemmtileg ferð. Síðan fóru
þeir að skoða norska bátinn.
— Svona bát langar mig til að eiga,
sagði Gunnar.
Nú kallaði mamma Hauks á þá til að
borða. Haukur var ákaflega ánægður, því
að nú áttu þeir að fá búðinginn.
Strákamir höfðu góða matarlyst, því að
þeir voru búnir að leika sér úti allan dag-
inn. Þeir borðuðu fyrst steiktan fisk og
kartöflur, en þegar komið var inn með
búðinginn, fannst Hauki hann aldrei hafa
átt skemmtilegri afmælisdag.
Hann borðaði búninginn með mikilli
ánægju og leit á hina strákana til að sjá,
hvernig þeim líkaði hann.
Gunnar hafði líklega borðað of mikið af
fiskinum. Haukur sá, að hann átti bágt
með að borða búðinginn.
Þegar strákarnir höfðu lokið snæðingi,
fóru þeir út í stóran skúr, þar sem fiski-
net héngu í löngum, þéttum röðum. Hér
var ágætur staður til að vera 1 feluleik.
Haukur kom á eftir hinum, því að hann
hafði farið fram í eldhús til að þakka
mömmu sinni fyrir matinn. Þegar hann
kom út í skúrinn, heyrði hann Gunnar
segja: — Þetta var ljóti maturinn, bara
hrísmjölsgrautur.
Haukur hrökk við. Hafði honum heyrzt
rétt. Var Gunnar í raun og veru að setja
út á búðinginn?
— Mér fannst hann ágætur, sagði ann-
ar strákur. Jú, Gunnar hafði þá sagt þetta.
1 fyrstu datt Hauki í hug að berja Gunn-
ar. — En hann átti nú afmæli, og Gunnar
var gestur. Nei, hann ætlaði að láta sem
ekkert væri. En hann ætlaði að hætta við
að gefa Gunnari norska bátinn, sem hann
hafði hugsað sér að gera í dag. Það skyldi
verða bið á því.
Hann læddist bak við skúrinn og kom
inn um aðrar dyr. Drengirnir fóru nú í
feluleik, en þeim þótti ekkert gaman.
Haukur var allt í einu orðinn svo þögull.
Þegar dimma tók, kvöddu drengirnir og
fóru.
Mamma Hauks kom inn í stofu þegar
hún hafði þvegið upp. Hún varð alveg
undrandi, að Haukur skyldi sitja þar
aleinn í myrkrinu.
— Hvað er að þér, góði minn?
Haukur sagði mömmu sinni með tárin í
augunum það, sem fyrir hafði komið. Hún
hlustaði á hann, skildi hann og reyndi að
hugga hann.
— Hafðu engar áhyggjur út af þessu,
vinur minn, sagði hún og strauk honum
Máfamir flugu gargandi yfir höfðum þeirra.
um kollinn. — Gunnar hefir ekkert vit á
að búa til mat. Þú veizt, að hrísmjöls-
grautur er með kanel og sykri, en búðing-
ur með kirsuberjasósu. Gunnar veit ekkert
um þetta.
Haukur varð aftur glaður. Auðvitað
hafði mamma rétt fyrir sér. Gunnar var
bara heimskur strákur.
Sumarið leið og haustið kom með storm-
um og hvassviðri. Einn sunnudaginn kom
Gunnar siglandi á litla bátnum með fram
nesinu. Byr var góður. Hann þaut fram
hjá nesinu og dálítið út fyrir hólmann.
Haukur stóð á ströndinni og horfði á eftir
honum. Skyldi hann geta snúið, hugsaði
hann. Skömmu síðar sneri Gunnar, og það
leit út fyrir, að báturinn færi áfram, en
þegar Haukur aðgætti þetta betur, sá
hann, að bátinn rak lengra og lengra út.
Gunnar hafði ekki munað eftir straumn-
um og sá nú, að hann hafði hætt sér of
langt. Hann lækkaði seglin og reyndi að
róa í land, en hann var óvanur róðri, svo
að það dugði ekki. Hann gat ekki gert
neitt annað en að snúa aftur og sigla út
í hólmann, sem lá í skjóh. Honum þótti
ekkert skemmtileg tilhugsun að þurfa að
dúsa í hólmanum um nóttina. En það var
samt betra en að vera úti á sjó.
Haukur hafði fylgzt með Gunnari og
þegar hann sá, hvað hann ætlaði sér,
hljóp hann niður að sjónum, hrinti fram
norska bátnum og reri út í hólmann.
— Þú verður ekki hér í nótt. Og hvað
heldurðu, að foreldrar þínir hugsi, ef þú
kemur ekki heim í kvöld, sagði Haukur,
þegar hann renndi upp í f jöruna, þar sem
Gunnar stóð hjá bátnum sínum.
— Heldur þú, að við getum róið í land?
spurði Gunnar.
— Já, ef við hjálpumst að, svaraði
Haukur.
Síðan bundu þeir litla bátinn aftan í
norska bátinn og tókst að lokum að ná
landi eftir erfiðan róður. Gunnar var dauð-
þreyttur, þegar þeir voru búnir að setja
bátana.
— Komdu nú og borðaðu, áður en þú
ferð heim. Maturinn er til, sagði Haukur.
Gunnar var orðinn sársvangur eftir
volkið og tók boðinu með þökkum.