Vikan


Vikan - 08.06.1939, Blaðsíða 22

Vikan - 08.06.1939, Blaðsíða 22
22 VIKAN Nr. 23, 1939 VÖRN OG VERJENDUR. Frh. af bls. 4. er heldur ekki kyrr hjá hliðarlínunni sín rnegin, en fer skemmstu leið fram fyrir mark til þess að fylla skarðið fyrir mið- framvörð — og hægri framvörður heldur loks einn'g undan til að gæta vinstra inn- 1. mynd. framherja og ef nauðsyn krefur einnig vinstra útframherja. Að sjálfsögðu hefir vinstri bakvörður, sem bilaði í vörninni, sótt aftur eins fljótt og honum var auðið, svo að hann megi koma að einhverju liði hjá markinu. Af þessu dæmi mun lesandinn skilja, hvað fyrir mér vakir. Varnarsveitin verð- ur fyrst og fremst að muna eftir því verk- 2. mynd. efni sínu að hafa gát á mótherjunum, að „dekka þá“, en jafnframt að vera hreyf- anleg. Hún má undir engum kringumstæð- um stirðna í gæzlustarfinu einu. En hún má heldur ekki vera sein á sér eða víla fyrir sér. Áður fyrr var það algengt, að þeim leikmönnum var skipað til varnar, sem ekki þóttu lengur hæfir til sóknar vegna þess, að mesti asinn var af þeim far- inn. Nú er það svo, að í góðu liði þykir það sjálfsagt, að varnarsveitin sé skipuð skjót- um og duglegum mönnum, sem geta tekið erfiðustu knetti (1. mynd), hafa gott lag á 17. krossgáta Vikunnar. Lárétt: 1. Mætti gjaman skrifa um. — 15. Átak. — 16. Öfús. — 17. Frumefnis- tákn. — 18. Timabils. — 19. Æðri vera. — 20. Bókstafur. — 21. Tón- verk. — 23. Framkoma. — 24. Sam- band. — 26. Tónn. — 27. Djúp. — 29. Keyr. — 31. Var settur dósent. — 32. Tala. — 34. Mannsnafn. — 36. Bústaður. — 40. Ræður öllu. — 41. Glitrar. — 42. Skítkokkur. — 43. Safna. — 44. Þrír eins. — 45. Gefðu eftir. — 48. Furðuleg. — 51. Guðs- þjónusta. — 52. Stétt. —- 53. Goð. :— 55. Plantna. — 53. Frumefnistákn. — 57. Beygingarending (latnesk). — 59. Líkamshluti. — 61. Fyrirtæki. — 62. Tónn. — 63. Tek með. — 65. Dýr. — 67. Algeng sk.st. — 69. Dýrahljóð. — 70. Kvenm.nafn, þolf. — 72. Félag. — 73. Orka. — 76. Mannsnafn. — 78. Er okkar lífakkeri. LóSrétt: 1. Aulalegs. — 2. Vantrú. — 3. Velgju. — 4. Drykkjustofa. — 5. Höfðingja. — 6. ílát. — 7. Fyrirtæki. — 8. Félag. — 9. Nudda. — 10. Kjafta. — 11. Basl. — 12. Hreyfing. — 13. Hljóðfæri. — 14. Handverksmenn. — 22. Aðgæta. — 23. Tónn. — 25. Kunngjört. — 26. Störfunum. — 28. Ull. — 30. Magnari. — 31. Litur. — 33. Hafnaði. — 35. Syngur. — 37. Dýpra. — 38. Fljót. ■— 39. For- setning. — 40. Með tölu, eignarf. — 45. Bæjar- nafn. — 46. Svífa. — 47. = 39. lóðrétt. — 48. Mynni. — 49. Fylgja eftir. — 50. Drykkjubróður. — 54. Blómskipan. — 58. Mikil umferðaræð (ill danska). — 59. Drykkur. — 60. Tónn. — 61. Spil. — 64. Gert gramt í geði. — 66. Veski. — 68. — vísi. — 69. Hljóð. — 71. = 69. lárétt. — 72. Starf. -— 74. Tveir eins. — 75. Dulnefni. — 76. Greinir. — 77. Tveir eins. knettinum með höfðlnu (2. mynd) og séu um fram allt djarfir og harðskeyttir (3. mjmd). Hvergi á vellinum krefst leikurinn jafnmikils hugrekkis af leikmönnum og í lokasennunni fyrir framan markið. Reyndir áhugamenn munu nú ef til vill segja, að ég hafi hvergi drepið á skyldu 3. mynd. varnarsveitar til að stuðla að sókn. Ég hefi gert það með vilja, að taka ekki þetta verkefni varnarsveitar fyrr en nú til ör- stuttrar athugunar. I þessari grein verður hlutunum hvort sem er ekki gerð full skil og efnið engan veginn tæmt. Aðalatriðið er að setja það fram, sem mesta þýðingu hefir. En aðalþýðing aftari sveitarinnar á leikvellinum er vörnin. Eftir margra ára reynslu hika ég ekki við að segja, að hvað markvörð, bakverði og miðframvörð snert- ir, þá sé hún einasta verkefni þeirra. Það eru aðeins framverðirnir til hægri og vinstri, oftast allf jarri markinu sjálfu, sem geta hugsað um að „byggja upp“ leik, — en því aðeins, að gæzlustarf þeirra leyfi. Lýk ég þá máli mínu um þetta efni. Þó að ég segði í fyrri grein minni, að mark- vörður stæði í ábyrgðarmestu stöðunni á vellinum, þá eru þó stöður annarra varn- arleikmanna litlu auðveldari. Alltaf verða mörkin skoruð, — og kappleikirnir um meistaratitilinn í Reykjavík, sem nú eru nýafstaðnir, sýndu það Ijóslega, að það er vegna þess, að vörninni er áfátt. Þess verður því krafizt af nútíma knattspyrnu- hði, og það mikið frekar en áður þekktist, að varnarsveitin sé sterk. — Þróun aðferða og verkefni sóknarliðs- ins mun verða tekið til athugunar í loka- grein minni. er þvottasápa nútímans.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.