Vikan - 22.06.1939, Blaðsíða 20
20
VIKAN
Nr. 25, 1939
i
i
|
i
s
Sæljónskópur í dýragarðinum í París fékkst nýlega ekki til að neyta matar, svo að grípa varð
til þess neyðarúrræðis, að þvinga ofan í hann matinn með gúmmíslöngu, eins og sést á myndinni.
Ensku konungshjónin hylit af Indíánum. Þegar ensku konungshjónin, á ferð sinhi um Canada, komu til bæj-
arins Calgary, fylktu íbúamir, og þar á meðal Indíánar, sér skrautbúnir í raðir, og Indíánahöfðinginn vottaði
hátignunum virðingu sína og færði þeim gjafir. Á myndinni sést lítil Indíánastúlka færa drottningunni blóm.
Frá alþjóðahverfinu í Shanghai. -—
Japanskur hermaður tekur Kínverja
fastan í alþjóðahverfinu og athugar,
hvort hann beri á sér nokkurt vopn.
Sovét-flotinn. Rússneskur sjóliðsmað-
ur á verði I skipi í rússneska Eystra-
salts-flotanum.
Flugprinsessa. Miss Dorothy Roy, er
kjörin var flugprinsessa í Louisiana,
og talin er líkleg til að verða kosin
flugprinsessa allrar Norður-Ameríku.
Svampauppskera. Beztu svampamir eru frá Vanau á Bahama-eyjum í Vestur-Indíum. Þaðan er árlega flutt
út kynstur af svömpum. Hér á myndinni sést eyjabúi skera í sundur svampa, áður en þeir em fluttir út.