Vikan


Vikan - 29.06.1939, Side 19

Vikan - 29.06.1939, Side 19
Nr. 26, 1939 VIKAN 19 Cordell Hull, utanríkismálaráðherra Bandarikjanna. Annað líf í þessu Aumingja karlvesalingurinn hann Hull gamli! Þarna þvælist hann alltaf fram og aftur og skimar í kring um sig — og ekki vantar það, að nógu er hann kurteis og elskulegur. En það er heldur ekki meira. Þessi orð lét ungur ráðunautur í Hvíta- húsinu sér um munn fara skömmu eftir að Cordell Hull var kjörinn forsætisráð- herra Bandaríkjanna árið 1935. Og margir voru þeir, sem höfðu svipaða skoðun á hinum nýja utanríkismálaráðherra. En síð- an eru nú 4 y2 ár, og álit manna á Cor- dell Hull hefir breyzt mjög til batnaðar, og andstæðingar hans hafa nú komizt að raun um, að hann er ekki eins blár og þeir vildu vera láta. Fáir stjórnmálamenn hafa látið leika jafn rækilega á sig og Cordell Hull, en þegar til úrshta dregur er það þó alltaf hann, sem hefir yfirhöndina. Hann hefir ekki einungis unnið virðingu ann- arra þjóða, heldur einnig vináttu þeirra og traust. Með dæmafárri þolinmæði hefir honum tekizt að koma á hagkvæmum verzlunarsamningum við önnur ríki, er hafa aukið utanríkisverzlun Bandaríkj- anna um 50 af hundraði. Með því hefir hann styrkt Roosvelt forseta mjög í sessi, og unnið honum óskipt fylgi, bæði í flokki hans og einnig meðal líðveldissinna. Og þó Cordell Hull sé nú 68 ára gamall, er oft bent á hann í stórblöðum Bandaríkjanna sem heppilegan eftirmann Roosvelts. En það má hann ekki heyra. Mannkostir þessa manns, alþýðleg fram- koma, þolinmæði og hæfileiki hans til að skilja fólk, hefir fleytt honum fram og afl- að honum margra sigra. Er hann árið 1933 fór til Montevideo sem fulltrúi Bandaríkj- anna á sjöundu ríkjaráðstefnu Ameríku, fluttu blöðin í Suður-Ameríku af honum skopmyndir, sem jötninum mikla frá New York, sem allt træði undir fótum sér. Og það reyndist líka svo, að hann fékk öllu ráðið á þessari ráðstefnu, sem öðrum. Óðar og hann hafði komið sér fyrir í gisti- húsi, tók hann sér staf í hönd og rölti um í borginni, fór frá gistihúsi til gistihúss og spurði uppi alla fulltrúa annarra ríkja í ráðstefnunni. Suma kom hann að máli við á rakarastofu, aðra hitti hann meðan þeir snæddu árdegisverð, og hvar sem hann kom, gekk hann beint til verks, labbaði til fulltrúanna hvers og eins, og kynnti sig með eftirfarandi orðum: ,,Ég er Cordell Hull frá Bandaríkjunum, komið þér sæl- ir.“ Og síðan hóf hann við þá samræður um daginn og veginn, unz þeir urðu beztu kunningjar. Hinn einlægi samstarfsvilji þessa óbrotna, en virðulega fulltrúa, breytti mjög skoðunum Suðurríkjanna á harð- svífni og yfirgangi Bandaríkjanna, og þeg- ar ráðstefnunni var lokið og fulltrúarnir fóru heim, fluttu blöðin skopteikningar af Cordell HuII, en nú sem engli friðarins og þeim, er öllum vildi gott gera. Bandaríkjamenn kunna líka að meta þessa hæfileika forsætisráðherra síns, og einu sinni sagði þekktur stjórnmálamaður um hann: ,,Ef maður snéri við í honum sálinni, myndi hvergi koma í ljós dökkur blettur á ranghverfunni.“ Cordell Hull hefir stundum verið spurð- ur um, hvaða íþrótt hann hefði mestar mætur á, og hann svarar ævinlega á sömu lund: „Það er timburfleyting," því sem strákur vann hann fyrir sér með því að fleyta timbri niður eftir Cumberland-fljóti. Það var tíu daga verk, að fleyta timbrinu niður til sögunarmyllunnar í Nashville. Það var tíu daga strit við að halda jafnvæginu og tíu nátta svefn undir berum himni. Síðan varð að ganga upp með fljótinu, til að geta flotið aftur undan straumi í tíu daga. En í þessari ævintýralegu atvinnu las hann lögfræði, og stjörnmálin lágu honum strax þungt á hjarta. 1 Tennessee bauð hann sig fram við þingkosningar, þegar hann var 21 árs, og hlaut kosningu. Síðan hefir hann óskipt gefið sig að stjórnmálum og verið hægri hönd sex forseta, fyrst sem toll- og skattamálaráðherra, og nú síðast sem utanrí kismálar áðherra. Eftir SteínýAL/n íAiattÁcáJSon. \ Tið vistarskiptin til Danmerkur hef ég, * eins og fleiri landar, notið góðs af því, hve samúð og gagnkvæm virðing hefir stóraukizt milli beggja þjóðanna síðan Is- land fékk fullveldið. „Nú es hvatvetna vil- mál talat“. — Því hefir verið líkt við mun- inn á gamaldags, harðsnúnu og misskildu hjónabandi og kærleiksríkri lagsmennsku (Kameratægteskab), eftir nýjustu tízku, þar sem hvort hjónanna nýtur frjáls full- veldis í sérmálunum. Ekkert strítt band lengur, heldur teygjuband. — Hvar sem ég hefi komið, á flakki mínu um Danmörku, hefi ég aftur og aftur hitt sveitapilta og stúlkur, sem verið hafa í vist heima á Fróni. Þau kunnu frá mörgu að segja, og öllu góðu, og óskuðu flest, að mega fara í nýja vist norður þar. Því hvort tveggja hafði unnið hug þeirra og hjarta, landið jafnt og þjóðin. Sömu sögu kann ég að segja af ýmsum, sem farið höfðu kynnisför til landsins. Það var einlæg aðdáun og fögnuður. En sérstaklega hjó ég eftir því, hve vist- ráðna fólkinu þótti allt vera frjálsmann- legra og skemmtilegra á íslenzkum sveita- heimilum en á bændabýlum í heimalandi sínu; enda skil ég það vel, eftir viðkynn- ingu 'minni af háttum dansks bændafólks. Þar er dauflegri vistin en heima og stafar meðfram af því, að stéttamunur er meiri og viðkynning seinni og varfærnari. Ég ýki það ekki, að yfirleitt meðal Dana stendur íslenzka þjóðin hátt í metum fyrir gáfur og dugnað. Og að sama skapi hefir landið vaxið að virðingu og áliti. Það, sem áður þótti helgrimmdar hjarn, varla byggi- legt hvítum mönnum, er nú orðið dýrð- legt draumaland, og framtíðarland, fullt af auðsuppsprettum og framfaraskilyrðum. Þessi skoðanabreyting er bæði að þakka síaukinni ferðamanna viðkynningu, dag- legum blaðaskrifum og útvarpsfréttum með þar af leiðandi vaxandi þekkingu. — „Verkin tala.“ En ekki síður er það að þakka vorum ágætu skáldum og lista- mönnum. Jóhann Sigurjónsson, Gunnar Gunnarsson, Kamban, Laxness og Krist- mann Guðmundsson vega þar þungt á met- unum. Og þá, nú sem stendur, ekki síður okkar kæru söngsnillingar: Stefano Is- landi, María Markan og Elsa Sigfúss. Hve oft hefi ég ekki heyrt Dani hrósa skáld- unum, sem ég nefndi, og hve oft hefi ég ekki, ásamt Dönum, glaðst yfir söng þeirra þriggja síðastnefndu í útvarpinu? En engin regla er án undantekninga, því enginn gerir svo öllum líki. Þeir Danir eru Framh. á bls. 22.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.