Vikan


Vikan - 06.07.1939, Side 3

Vikan - 06.07.1939, Side 3
Nr. 27, 1939 VIKAN 3 AíÁ&^ÉÍ^., SQM VjCÚiu& koíscúiL L Qóm Eftir ÓSKAR MAGNÚSSON frá Tungunesi. Við könnumst öll við æfintýrin, er segja frá mönnum, sem á unga aldri lágu í öskustónni, voru olnbogabörn og haldnir hin mestu fífl og afglapar. Einn góðan veðurdag kom andinn yf ir sögu- hetjurnar og þeir risu á fætur og álaga- hamur deyfðar og dauðýflisháttar féll af þeim eins og ryð hrynur af góðu stáli. Þeir gripu tækifærið til að vinna dáðaverk og reyndust þaðan í frá hinir mætustu menn. Þannig fór einnig fyrir söguhetju okk- ar, honum Cládíusi, sem af flestum var kallaður Cládíus hinn heimski. Hið óvænta tækifæri kom til hans og lyfti honum í öndvegissess. Hann eignaðist hálfan heim- inn og varð keisari yfir öllu Rómaveldi. Árið 31 fyrir Krists burð vann Ágústus sigur á Antóníusi og Kleopötru Egypta- landsdrottningu í sjóorustunni miklu við Actium og gerði Rómaveldi að keisararíki. Hann var einn hinn mesti stjómvitringur, sem nokkru sinni hefir uppi verið. Þá var Rómaveldi svo víðlent, að það náði frá Njörfasundi og Atlantshafi í vestri og allt austur að Eufratfljóti í Asíu, og frá Ermarsundi, Rín og Dóná í norðri og suður að Saharaeyðimörk. Miðjarðar- hafið var rómverskt innhaf, og Róm var höfuðhof mennta og lista og þungamiðja heimsins. Þetta heljarmikla stórveldi var svo öflugt að undrum sætti. Þótt rángjarn- ar og herskáar nágrannaþjóðir gerði oft harðar og skyndilegar árásir á landamær- in, Parþar í austri, Germanar í norðri, unnu þær ekkert á. Hinir góðu landkostir og auðæfi Rómaveldis ginntu nýjar og nýj- ar þjóðir til að gera áhlaup, en öldum sam- an stóð landvarnarlið Rómverja eins og öldubrjótur, sem sundraði hinu germanska brimi. Ibúar Rómaveldis þurftu ekkert að ótt- ast. Hagsæld og vísindi blómguðust innan landamæranna. Pax romanum — hinn rómverski friður — ríkti um heim allan. I gömlum íslenzkum annál — Oddverja- annál — stendur þessi klausa: „Anno Christi 43 var Cládíus til keisara kjörinn af rómverskum stríðsmönnum á móti vilja ráðgjafanna, eða Cenatores í Róm. Hann ríkti í 13 ár. Hann var heimskur maður og mjög skynlítill, þar með fótlama og mjög brígslaður, gálaus maður, en þó mikill her- maður og sigursæll. Hann vann undir sitt land allt Bretland." Manni verður á að spyrja: Hvaðan kem- ur annálaritaranum öll þessi vizka um Cládíus? Allar líkur eru á, að hann hafi verið latínulærður maður, sennilega munk- ur eða prestvígður maður, og hann hefir sennilega sótt þekkingu sína á þeásu tíma- bili til rita rómversku höfundanna Tacitus- ar og Svetóníusar. Þessir tveir menn skrifuðu bækur um fyrstu rómversku keisarana og af litlum velvilja. Tacitus var ritsnillingur mikill, en hafði drukkið með móðurmjólkinni hatur rómverska aðalsins á keisurunum, sem höfðu rifið til sín öll völd og sett öldunga- ráðið í skammarkrókinn. Við getum ekki tekið orð hans með öllu trúanleg, þótt hann segi, að hann skrifi um menn og málefni án haturs og hylli. Sjálfrátt eða ósjálf- rátt gægist andúð Tacitusar til rómversku keisaranna fram á milli línanna í „Annál- um“ hans. Svetóníus var fremur lítill rit- snillingur og lét vaða á súðum og blandar sögulegum staðreyndum og örgustu gróu- sögum saman í einn hrærigraut. Sagna- ritara nútímans tekst þó oftast að vinna sannleikann úr og hann finnur oft ýmis- legt í gömlu rómversku kjaftasögunum, Cládíus keisari. sem lýsir ágætlega aldarhætti og hugar- fari manna á þeim tímum. Cládíus keisari var einn þeirra, sem varð fyrir barðinu á Tacitusi og Svetoníusi, og allt fram á vora tíma stóð dómur þeirra því nær óhaggaður. Sagnfræðingar vorra Óskar Magnússon. daga hafa nú komist að raun um, að. frá- sagnir þessarra tveggja sagnaritara eru mjög hlutdrægar, og hafa nú veitt Cládí- usi og flestum hinna keisaranna fulla upp- reisn. Tíberíus Cládíus Drúsus fæddist í Lyon á Frakklandi 10 árum fyrir Krists burð. Hann var sonur Drúsusar, stjúpsonur Ágústusar keisara, og Antoníu, sem var af ætt Júlíusar Caesars. Frá barnæsku þjáðist hann af ýmsum kvillum. Hann var fótaveikur og átti örð- ugt með göngu. Höfuð hans riðaði, og hann stamaði hroðalega. Auk þess var honum hætt við krömpum og hann froðufelldi og gat ekki haldið munnvatni sínu, ef hann komst í geðshræringu. Á þeim tímum var það ekki óvanalegt í Róm, að shkir vanmetagripir eins og Cládíus litli væru bornir út, til þess að losna við uppeldið á þeim. En bæði var það, að Drúsus faðir hans var hið mesta góð- menni og gat ekki fengið af sér að bera út barn sitt, og einnig hitt, að það hefði sennilega mælst illa fyrir, ef barn af keis- araættinni hefði verið borið út, þótt ekki væri aðfundið ef alþýðumenn gerðu slíkt. Drúsus faðir Cládíusar var ástmögur Ágústusar keisara. Hann dó af byltu af hestbaki, er hann var staddur við Rín á herferð til Germaníu. Þá var Cládíus barn í reifum. Cládíus átti tvö systkini, og voru þau bæði eldri en hann. Germanicus bróðir hans varð hinn mesti ágætismaður og hugljúfi hvers manns. Hann varð einnig mesti hermaður og sigur- sæll sem verið hafði faðir hans og aðrir frændur. Er hann dó í blóma aldurs síns, harmaði hann gervallur Rómalýður. Cládíus ólst upp með móður sinni í Róm við lítið ástríki, því hún var harðlynd kona sem hún átti kyn til. Þótti henni lítill gleði- auki að veshngs Cládíusi, þegar hún bar hann saman við hin önnur börn, sem voru hin gervilegustu. Sagði hún jafnan, að Cládíus væri skrípamynd af manni, og ef tíðrætt varð um einhvern hálfvita, varð

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.